Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir og Kári Sigurðsson skrifa 4. nóvember 2026 12:33 Búsetuúrræði fyrir börn með fjölþættan vanda, sem rekin hafa verið af einkaaðilum, hafa verið mikið til umfjöllunar að undanförnu og vakið upp áleitnar spurningar. Þegar rætt er um þjónustu við börn sem þurfa yfirgripsmikinn og sérhæfðan stuðning ættu öryggi þeirra, velferð og réttur til viðeigandi þjónustu ætíð að vera í forgrunni. En í þeirri umræðu má alls ekki gleyma starfsfólkinu sem sinnir þessari þjónustu allan sólarhringinn. Þetta fólk vinnur oft við afar krefjandi, ófyrirsjáanlegar og jafnvel hættulegar aðstæður, með mikla ábyrgð á herðum sér. Hvernig eru réttindi þessa starfsfólks tryggð? Við hvaða vinnuaðstæður starfar það? Hver ber fjárhagslega ábyrgð þegar vaktir eru felldar niður fyrirvaralaust eða þegar starfsfólk telur rétt sinn brotinn? Og hvernig er bótarétti þess háttað ef það verður fyrir tjóni við störf sín? Faglegar starfsaðstæður, vinnuvernd og réttindi starfsfólks eru óaðskiljanlegur hluti af því hvernig velferðarþjónusta samfélagsins er skipulögð. Frá ríkisrekstri til einkavæðingar- og aftur til ríkisins? Áður fyrr annaðist ríkið rekstur þessara úrræða. Síðar var fyrirkomulaginu breytt og einkaaðilum meðal annars falið að sinna þjónustunni. Sveitarfélögin hafa gert þjónustusamninga við einkafyrirtæki og greitt fyrir reksturinn með opinberu fé. Í dag eru þessi úrræði sjö talsins. Mikil óvissa ríkir nú um málaflokkinn og hafa misvísandi upplýsingar komið fram í fjölmiðlum um hvað tekur við. Þessi þróun vekur upp grundvallarspurningar um stöðu starfsfólksins. Þegar rekstrarform breytist verður að tryggja að réttindi starfsfólks haldist óhögguð. Sameyki hefur gert kjarasamning við tvö þessara úrræða, Klettabæ og Vinakot. Rætur þeirra samninga liggja í samningum sem SFR, forveri Sameykis, gerði á sínum tíma og byggðust að stórum hluta á eldri kjarasamningi opinberra starfsmanna. Hjá hinum fimm úrræðunum, sem hafa sprottið upp á undanförnum árum, er réttarstaða starfsfólksins hins vegar mun óljósari. Hver ber ábyrgð á kjörum og réttindum? Sveitarfélögin og ríkið fjármagna þjónustuna með almannafé og bera ábyrgð á þeim samningum sem gerðir eru. Rekstraraðilarnir eru vinnuveitendur starfsfólksins og bera beina ábyrgð á ráðningarkjörum þess og vinnuumhverfi. Hvaða kröfur gera sveitarfélögin og/eða ríkið til einkaaðila um réttindi, kjör og aðbúnað starfsfólks í þjónustusamningum sínum? Og hvernig er eftirliti með því háttað? Opinberir þjónustusamningar verða að tryggja að þjónustan sé veitt með faglegum hætti. Vinnuvernd, starfskjör og réttindi starfsfólksins hljóta að skipta þar máli. Sérstakt áhyggjuefni er að dæmi eru um fyrirtæki sem neita að gera kjarasamning við Sameyki, þrátt fyrir að fjöldi starfsmanna þeirra sé í félaginu. Viðkomandi vinnuveitandi fullyrðir að hann fylgi kjarasamningi sem Sameyki gerir við sams konar úrræði. En hér verður að gera skýran greinarmun, þ.e. að segjast miða kjör við tiltekinn samning er ekki það sama og að vera bundinn af gildandi kjarasamningi við stéttarfélagið. Þegar fyrirtæki segist fylgja kjarasamningi tiltekins stéttarfélags en vill ekki semja við félagið vakna spurningar: Hvernig er tryggt að ákvæði samningsins séu virt og hver er réttarstaða starfsfólks ef ágreiningur rís? Þessum spurningum ættu bæði rekstraraðilar og sveitarfélögin sem kaupa þjónustuna að geta svarað. Kjarasamningar snúast um meira en laun. Þeir kveða á um réttindi og skyldur á vinnumarkaði og leggja grunn að samskiptum stéttarfélags og vinnuveitanda, túlkun samningsákvæða og lausn ágreiningsmála. Án kjarasamnings milli þessara aðila stendur starfsfólkið höllum fæti komi upp ágreiningur. Niðurfelling vakta og gróf brot á vinnutíma Til Sameykis hafa borist ábendingar um að starfsfólk hafi þurft að sæta breytingum á vaktaskrám með engum eða mjög skömmum fyrirvara, til dæmis þegar börn dvelja hjá fjölskyldum sínum yfir jól eða hátíðir. Dæmi eru um að starfsfólki hafi einfaldlega verið neitað um laun fyrir vaktir sem voru felldar niður. Samkvæmt meginreglum vinnuréttar og kjarasamninga er útgefin vaktaskrá bindandi. Sveiflur í dvöl skjólstæðinga tilheyra rekstraráhættu vinnuveitandans og þeirri áhættu verður ekki varpað yfir á starfsfólkið með launaskerðingum. Hvert rennur fjármagnið sem sveitarfélögin greiddu fyrir þessa þjónustu þegar launin skila sér ekki til starfsfólksins? Þá eru dæmi um að starfsfólk vinni 16 tíma vaktir. Þar að auki verður að spyrja: Hvernig er hvíldartími virtur og er tryggt að lögmæltur frítökuréttur skapist þegar gengið er á lágmarkshvíld? Starfsfólk í búsetuúrræðum þarf að sýna fyllstu árvekni, bregðast við ófyrirsjáanlegu hátterni og tryggja öryggi barna í miklum vanda. Starfsfólk getur ekki borið ábyrgð á öryggi annarra ef öryggi þess sjálfs og grundvallarhvíld eru ekki tryggð. Bótaréttur starfsfólks: Sérstök vernd í hættulegu starfi Í kjarasamningum Sameykis við ríkið er kveðið á um víðtækari bótaábyrgð vinnuveitanda ef starfsmaður verður fyrir líkams- eða munatjóni við að sinna einstaklingi sem getur ekki borið ábyrgð á gjörðum sínum eða hefur verið dæmdur til vistunar. Sambærilegt ákvæði var tekið upp í kjarasamninga Sameykis við Klettabæ og Vinakot. Ákvæðið var sett inn vegna þess að starfsaðstæður geta verið beinlínis hættulegar. Þau veita starfsmanni rýmri rétt en almennar reglur skaðabótaréttar, þannig að starfsmaður getur beint bótakröfu beint að vinnuveitanda sínum án þess að þurfa að sanna sök eða krefja skjólstæðinginn sjálfan um bætur. Hvernig er þessu háttað hjá hinum fimm heimilunum sem ekki hafa gert kjarasamning við Sameyki? Nýtur starfsfólk þeirra sambærilegrar verndar? Velferð barna og starfsfólks helst í hendur Þegar opinberu fé er varið í mikilvæga velferðarþjónustu verður að gera skýrar kröfur um að bæði þeir sem njóta þjónustunnar og þeir sem veita hana njóti fyllstu réttinda. Sveitarfélög og ríkið geta ekki vísað ábyrgðinni frá sér þegar kemur að kjörum, aðbúnaði starfsfólks og eftirliti á þeim einkareknu heimilum sem þau fjármagna.Sú ábyrgð nær ekki síður til barnanna sjálfra. Þótt sveitarfélag eða ríkið feli einkaaðila að annast þjónustu við börn í sérstaklega viðkvæmri stöðu getur það ekki um leið útvistað ábyrgð sinni á velferð þeirra, öryggi og þeirri þjónustu sem þeim ber að fá. Ábyrgðin hverfur ekki þótt reksturinn skipti um hendur. Að lokum er full ástæða til að spyrja hvort þessari viðkvæmu þjónustu sé ekki alfarið betur borgið í opinberum rekstri, þar sem hagnaðarsjónarmið einkaaðila ráða ekki för og réttindi starfsfólks eru tryggð með kjarasamningum opinberra starfsmanna. Stjórnvöld verða að eyða allri óvissu varðandi þennan málaflokk, standa vörð um réttindi starfsfólksins og tryggja að faglega og örugglega sé staðið að málum ekki síst í þágu barnanna. Höfundar eru Jenný Þórunn Stefánsdóttir lögfræðingur Sameykis og Kári Sigurðsson formaður Sameykis. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kári Sigurðsson Mest lesið Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Ég er hugsi – hvar er farsæld barnanna? Herdís Þórsteinsdóttir skrifar Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Sjá meira
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun
Skoðun Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson skrifar
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar
Hver gætir að réttindum þeirra sem gæta barnanna okkar? Jenný Þórunn Stefánsdóttir,Kári Sigurðsson Skoðun