Nefhjólið sást falla á myndavélum Alþingis

Augnablikið þegar nefhjól lítillar kennsluflugvélar féll á Austurvelli náðist á öryggismyndavél í Alþingishúsinu. Samkvæmt upplýsingum frá skrifstofu Alþingis verður myndskeiði úr öryggismyndavél af atvikinu deilt með Rannsóknarnefnd samgönguslysa í þágu rannsóknarinnar. Beiðni fréttastofu um afrit af upptökunni var hafnað á grundvelli reglna um stafræna vöktun og persónuvernd.

212
00:59

Vinsælt í flokknum Fréttir