Hólavallagarður friðlýstur
Hólavallagarður við Suðurgötu í Reykjavík var friðlýstur af umhverfisráðherra að beiðni Minjastofnunar við hátíðlega athöfn við sáluhlið garðsins í dag. Friðlýsingin tekur til Hólavallagarðs í heild, veggjar umhverfis garðinn, heildarskipulagsins, klukknaports, minningarmerkja og ásýndar.