Berklasmit greindust hjá starfsfólki
Berklasmit greindust hjá tveimur starfsmönnum við skimun starfsfólks Heilsugæslunnar Miðbæ. Forstjóri Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins segir málið grafalvarlegt en skjólstæðingar stöðvarinnar hafi þó ekki verið útsettir fyrir smiti í samskiptum við starfsmennina. Ákveðið var að skima starfsfólkið eftir að skjólstæðingur greindist með berkla. Þá greindust einnig átta starfsmenn bráðamóttöku Landspítalans með berklasmit.