Dvöldu í möstrum í um 30 klukkustundir
Þingfesting í máli Anahitu Babaei og Elissu Bijou fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Þær eru ákærðar fyrir húsbrot og brot gegn lögum um siglingarvernd með því að hafa í september 2023 farið í leyfisleysi um borð í hvalveiðiskipin Hval 8 og Hval 9, komið sér fyrir í tunnu í möstrum skipanna og neitað að yfirgefa þrátt fyrir fyrirmæli lögreglu þar um.