Hin árlega pílagrímaganga Hadsjí
Ein og hálf milljón erlendra pílagríma gekk í dag frá borginni Mína til Arafatfjalls í Sádi Arabíu. Hin árlega pílagrímaganga Hadsjí stendur yfir, sem allir múslimar sem hafa heilsu og efni á, verða að ganga minnst einu sinni yfir ævina.