Sársvekktur Andri Lucas: „Ég eiginlega veit ekki hvað hann dæmir á“
Framherjinn Andri Lucas Guðjohnsen skoraði mark Íslands í grátlegu 2-1 tapi gegn Frakklandi í undankeppni HM 2026. Hann veit ekkert af hverju seinna mark hans, undir lok leiks, var dæmt af.