Ísland í dag - „Ég ætla ekki að deyja úr þessu“
Yngri og yngri börn greinast með átröskun á Íslandi. Yngsta stúlkan sem greinst hefur er aðeins níu ára gömul. Eitt af vandamálunum á Íslandi er að börn og ungmenni eru ekki gripin fyrr en sjúkdómurinn er kominn á mjög alvarlegt stig. Kerfið í raun býður ekki uppá snemmbúið inngrip. Þessu vill Elín Vigdís Guðmundsdóttir, formaður Sáttar, breyta. Hún er með fyrsta stigs úrræði fyrir þennan hóp í smíðum og þekkir átröskun vel því hún sjálf barðist við þennan illvíga sjúkdóm.