

Alþingi
Fréttir af löggjafarþingi Íslendinga, þingmönnum og fleiri tengdum málum.

Framtíð okkar í Evrópu
Ljóst er að innrásin í Úkraínu mun hafa mikil og langvarandi áhrif á sviði alþjóðamála og innan allrar Evrópu. Þegar friði og lýðræði er ógnað með þeim hætti sem við sjáum í dag kallar það á viðeigandi viðbrögð af okkar hálfu.

„Langar mest að gráta“
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra er búinn að setja fyrirhugað frumvarp sitt um afglæpavæðingu neysluskammta á salt. Halldóra Mogensen, þingmaður Pírata, sem barist hefur fyrir lagabreytingu í þá átt, á vart orð til að lýsa vonbrigðum sínum.

Mun þögn Þjóðkirkjunnar senda tvo menn í fangelsi?
Nú standa yfir réttarhöld yfir tveimur mönnum sem verða mögulega dæmdir í þriggja ára fangelsi. Í ákærunni er glæpur þeirra sagður sá að svíkja „fjárframlög úr ríkissjóði“ og valda „íslenska ríkinu verulegri fjártjónshættu og fjártjóni í reynd“. Þessi meintu fjárframlög úr ríkissjóði voru sóknargjöld.

Þurfa konur bara að vera duglegri að taka verkjalyf?
Endómetríósa (legslímuflakk, stundum stytt í endó) er sjúkdómur sem getur valdið sárum verkjum og ófrjósemi og talið er að sjúkdómurinn hrjái allt að 10% kvenna. Erfitt getur verið að greina sjúkdóminn og greiningartími er því oftar en ekki mörg ár. Talið er að meðalgreiningartíminn sé allt að 7-9 ár.

Leggur til hækkun hámarksfjölda rafbíla sem geta notið ívilnunar
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra hefur lagt fram drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að hámarksfjöldi rafbíla sem geta notið ívilnunar frá virðisaukaskatti verði tuttugu þúsund bílar, en ekki fimmtán þúsund eins og nú er.

Stríð sem breytir heimsmyndinni
Stríðið í Úkraínu hefur breytt öllu. Hlutverk stjórnmálanna núna er að bregðast við breyttri heimsmynd af ábyrgð. Það þarf að ræða og mynda skilning á hvaða áhrif hin breytta staða hefur á Evrópu og á Ísland. Út frá því tökum við svo næstu skref.

Væntanlegur ráðherra ósáttur við ráðherra vegna Garðyrkjuskólans
Guðrún Hafsteinsdóttir, verðandi ráðherra er mjög ósátt við Ásmund Einar Daðason, ráðherra menntamála því hann hefur tilkynnt að eini Garðyrkjuskóli landsins verði fluttur frá Landbúnaðarháskóla Íslands undir Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi. Guðrún vill að skólinn verði sjálfstæður og áfram á Reykjum í Ölfusi.

Segir utanríkisstefnu Íslands notaða til að skýla auðkýfingum frá efnahagsþvingunum
Þingmaður Pírata segir að svo virðist sem utanríkisstefna Íslands hafi verið notuð til þess að skýla hvítrússneskum auðkýfingum frá mikilvægum efnahagsþvingunum. Þingmaðurinn hefur óskað eftir opnum fundi með utanríkisráðherra í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis.

Landhelgisgæsluna til Suðurnesja án tafar
Vegna hernaðar Rússlands gegn Úkraínu hefur Atlantshafsbandalagið gert viðeigandi ráðstafanir, viðbragðsstaða hefur verið aukin og varnarviðbúnaður styrktur.

Börn á sakaskrá
Ofbeldi hefur mikið verið í umræðunni og hefur verið rætt um börn og ungmenni sem að beita ofbeldi. Sumir hugsa kannski, þetta hefur alltaf verið svona það er engin breyting á ofbeldishegðun barna og ungmenna á Íslandi. Staðreyndin er þó sú að það er breyting.

Gamaldags hugsun í heilbrigðiskerfinu?
Nýlega fóru fram tvennar umræður þingmanna á Alþingi við heilbrigðisráðherra, annars vegar um fjarheilbrigðisþjónustu og hins vegar um geðheilbrigðismál. Oft var enda þörf en nú nauðsyn.

„Hvar er þríeykið okkar sem teiknar upp kröftuga aðgerðaáætlun?“
Helga Vala Helgadóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar, var gestur í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni í dag og ræddi þar geðheilbrigðismál sem hún segir olnbogabarn innan heilbrigðiskerfisins.

Við drögum ekki orkuna upp úr hatti
Það virðist sem að á síðustu árum hafi ríkt ákveðin hræðsla að ræða orkumál á Íslandi sem leitt hefur til ákveðnar stöðnunar hér á landi. Skort hefur hugrekki til þess að taka þessa umræðu af fullri alvöru og afleiðingarnar blasa við okkur.

Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig, VG dalar
Sjálfstæðisflokkurinn og Píratar bæta við sig mestu fylgi á milli mánaða samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Maskínu. Vinstri græn er eini stjórnarflokkurinn sem tapar fylgi á milli skoðanakannana.

Lét tilleiðast og tók umdeilt frumvarp af dagskrá
Heilbrigðisráðherra tók í dag umdeilt frumvarp um réttindi sjúklinga af dagskrá þingsins eftir mikla gagnrýni um samráðsleysi við sjúklingana sem það hefði áhrif á.

Áminntur fyrir að kalla þingmenn Samfylkingarinnar krónprinsessu og jóker
Birgir Ármannsson, forseti Alþingis, áminnti Friðjón R. Friðjónsson, varaþingmann Sjálfstæðisflokksins fyrir að kalla tvo þingmenn Samfylkingarinnar krónprinsessu og jóker í spilastokk Samfylkingarinnar.

Mikið inngrip að svipta trúfélag sóknargjöldum
Bryndís Haraldsdóttir, formaður allsherjar-og menntamálanefndar Alþingis segir útskúfunarmál í söfnuði Votta Jehóva, sem gerð voru skil í Kompás í gær, vekja þingheim til umhugsunar.

Kristinn kallar eftir skýrri afstöðu þingmanna í máli Assange
Kristinn Hrafnsson ritstjóri Wikileaks hefur rætt við þingmenn ýmissa ríkja og kallar eftir víðtækri pólitískri samstöðu sem feli í sér fordæmingu á meðferðinni á Julian Assange. „Nú er lag,“ segir hann í samtali við Vísi.

Innrásin í Úkraínu – mannréttindi og NATO-aðild Íslands
Pútín Rússlandsforseti hefur hafið styrjöld í Evrópu gegn frjálsri og fullvalda þjóð, tilverurétti hennar og mannréttindum. Átökin ógna friði í heiminum enda er engin vissa fyrir því að þau takmarkist við Úkraínu.

Meirihlutinn telur óþarft að grípa strax til aðgerða vegna verðbólguhækkana
Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu ríkisstjórnina harðlega á Alþingi í dag og sökuðu hana um andvararleysi gagnvart verðbólgu og verðhækkunum. Þingmaður Samfylkingarinnar segir brýnt að grípa tafarlaust inn í en þingmaður Vinstri grænna segir óþarft að grípa strax til aðgerða.

Sauð upp úr á Alþingi: „Ég hef sjaldan séð þingmann jafn æstan“
Það sauð upp úr á Alþingi nú síðdegis undir liðnum fundarstjórn forseta. Forsaga málsins er sú að Sigmar Guðmundsson, þingmaður Viðreisnar, spurði Lilju Alfreðsdóttur, menningar- og viðskiptamálaráðherra, hvort hún hygðist hækka veiðigjöld í ljósi þess að þingmeirihluti væri fyrir málinu og það óháð ríkisstjórnarvilja.

Déjà vu – hafa þau ekkert lært?
Ríkisstjórn leidd af jafnaðarmönnum í Svíþjóð tilkynnti rétt í þessu mótvægisaðgerðir fyrir heimilin í landinu vegna verðhækkana. Fordæmin hrannast nú upp; Bretland, Frakkland, Noregur, Svíþjóð. Úrræði vegna orkuverðshækkana, bensíngreiðslur sem taka mið af búsetu, aukinn afsláttur vegna rafmagnsbíla, húsnæðisstuðningur, tilfærslukerfin nýtt.

Frjálsar strandveiðar varða mannréttindi
Strandveiðikerfið í dag er miklum annmörkum háð Það heimilar aðeins veiðar í 48 daga á ári, 12 daga á mánuði frá maí til ágústs. Þá er potturinn lítill og klárast reglulega áður en strandveiðitímabilinu lýkur, með þeim afleiðingum að margir ná ekki að fullnýta veiðirétt sinn.

„Maður þolir illa að tapa“
Ásmundur Friðriksson þingmaður segir það vonbrigði að hafa ekki náð inn á lista í prófkjöri Sjálfstæðismanna í Rangárþingi ytra, þar sem hann sóttist eftir oddvitasætinu. Hann telur ýmsar ástæður fyrir slæmu gengi sínu.

Vildi verða sveitarstjóri en komst ekki á lista
Ásmundur Friðriksson alþingismaður var ekki meðal sex efstu á lista Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi Ytra. Hann sóttist eftir því að leiða listann en niðurstaða úr prófkjöri flokksins lá fyrir í kvöld.

Barnaleg trú á samstarfsvilja VG hafi orðið Samfylkingunni að falli
Formaður Samkfylkingarinnar segir flokkinnn ekki hafa náð markmiði sínu fyrir síðustu alþingiskosningar, að leiða saman ríkisstjórn frá miðju til vinstri. Barnaleg tiltrú flokksmanna á að Vinstri græn hefðu raunverulegan áhuga á ríkisstjórnarsamstarfi til vinstri hafi verið þeirra stærstu mistök.

Segir lýðheilsumál að banna ávaxtabagg en netverjar eru æfir
Heilbrigðisráðherra segir lýðheilsumál að banna nikótínpúða með nammi- og ávaxtabragði. „Við erum að hugsa um börn og unglinga,“ segir hann.

Falsspámenn frelsisins
Sumir þingmenn eru stórorðir um aukið frelsi. Frelsi til athafna og verslunar, líka með áfengi og lausasölulyf, frelsi til að velja sér nafn án afskipta ríkisins, frelsi til að keppa í hættulegum íþróttum. Frelsi einstaklingsins til að athafna sig svo lengi sem hann skaðar ekki aðra.

Willum vill banna bagg með ávaxtabragði og baggnotkun í menntastofnunum
Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur lagt til að sömu lög gildi um nikótínvörur, svo sem nikótínpúðar og rafrettur, og gilda um tóbaksvörur. Þá verði sala á nikótínvörum með nammi- og ávaxtabragði bönnuð.

Sakar ráðherra og Útlendingastofnun um valdarán
Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, þingmaður Pírata, sakaði Jón Gunnarsson dómsmálaráðherra og Útlendingastofnun um valdarán á Alþingi í dag undir liðnum fundarstjórn forseta.