„Við erum að fara niður“ Búið er að ná Ford F-150 jeppa sem að fór í gegnum ísbreiðuna á Norður-Íshafinu í miðjum jeppaleiðangri í mars síðastliðnum á þurrt land. Íslenska fyrirtækið Arctic Trucks kom bæði að jeppaleiðangrinum í mars sem og björgunaraðgerðum núna í ágúst. Innlent 31. ágúst 2022 15:02
Myndband: Fox News gagnrýnir „bensínhák“ Harry prins Fox News hefur í gegnum tíðina fjallað ítrekað um að loftslagsbreytingar séu farsi, búinn til af fjölmiðlum. Eða þá að þær eru komnar til af náttúrulegum ástæðum en ekki af mannavöldum. Fox News gagnrýndi á dögunum Harry bretaprins fyrir að láta bensínhák sinn ganga í lausagangi í lengri tíma. Bíllinn sem um ræðir er Audi e-Tron, rafbíll. Bílar 31. ágúst 2022 07:00
Rivian R1S loksins afhendur kaupendum Rafmagnsjeppinn R1S frá Rivian er loksins kominn í hendur almennra kaupenda. Hingað til hafa allar afhendingar verið til starfsfólks Rivian. Fyrsta afhendingin var í síðustu viku. Bílar 29. ágúst 2022 07:00
Kia vill að EV9 verði alvöru jeppi Kia hefur hafið kynningu á rafbílalínu sinni, EV á EV6 með góðum árangri. Næsti bíll í línunni er EV9 sem er ætlað að vera alvöru jeppi samkvæmt Kia. Hann á að geta vaðið djúpt og klifrað upp brattar hæðir og yfir höfuð, vera jeppi sem er knúinn áfram á rafmagni. Bílar 27. ágúst 2022 07:01
Dodge Hornet vekur reiði hjá Alfa Romeo Dodge og Alfa Romeo eru systurfélög sama móðurfélags, Stellantis. Dodge kynnti nýlega jepplinginn Hornet sem hefur náð talsverðum vinsældum. Dodge segir að 14.000 forpantanir hafi borist sama dag og bíllinn var kynntur. Bíllinn er tengiltvinnbíll. Bílar 23. ágúst 2022 07:01
6 kr/km Það hefur verið hávær umræða í gangi um breytta gjaldtöku í samgöngum. Annarsvegar hefur umræðan snúist um veggjöld á stærri verkefnum tengt jarðgöngum og brúarsmíði. Hinsvegar hefur umræðan snúist um ójafnvægi í núgildandi gjaldtöku þar sem nýorkubílar eru undanskyldir enda gjaldið tekið í gegnum sölu á bensíni og dísil. Hér verður ekki rætt um möguleg gangna- og brúargjöld enda myndu bifreiðar greiða slík gjöld að jöfnu óháð orkugjafa. Skoðun 22. ágúst 2022 13:30
Myndband: Dodge ætlar að framleiða háværa rafbíla Ameríski bílaframleiðandinn Dodge hefur í gegnum tíðina framleitt bíla sem flestir ganga fyrir stórum V8 vélum sem framleiða hávaða. Nú eru straumhvörf yfirvofandi og Dodge ætlar að rafvæða framboð sitt. Dodge ætlar þó að halda fast í einkenni sín, gírskiptingar og hávær útblásturshljóð verða meðal þess sem rafvædd framtíð ber í skauti sér ef marka má nýjan hugmyndabíl frá Dodge. Bílar 21. ágúst 2022 07:00
576 hestafla Kia EV6 GT er öflugasta Kia sögunnar Kia er að prófa nýjar djarfar leiðir í þróun rafbíla. Á næsta ári ætlar Kia að kynna 576 hestafla GT frammistöðu útgáfu af EV6 sem á að standa í helstu sportbílum samtímans. Bílar 20. ágúst 2022 07:01
Nýjar vélareglur í Formúlu 1 staðfestar FIA, Alþjóða akstursíþróttasambandið hefur staðfest nýjar vélareglur fyrir Formúlu 1 sem munu taka gildi árið 2026. Staðfesting á reglunum ætti að gera bílaframleiðendunum Audi og Porsche kleift að staðfesta þátttöku sína í Formúlu 1. Bílar 18. ágúst 2022 07:01
Rafmagnaður BMW M3 verður byltingarkenndur með kunnuglegri akstursupplifun Yfirmaður M-deildar BMW, Frank van Meel segir að framtíðar bílar M deildarinnar verið rafbílar með kunnulega aksturseiginleika, sem eru aðal einkenni M bílanna. Bílar 16. ágúst 2022 07:00
Bílalyfta Herjólfs kramdi tvö ökutæki Bílalyfta Herjólfs fór niður öðrum megin er skipið var að bakka frá bryggju í Landeyjahöfn með þeim afleiðingum að tveir bílar krömdust. Engin slys urðu á fólki. Innlent 15. ágúst 2022 12:36
FÍB telur að olíufélög skuldi verðlækkun Félag íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB telur að íslensku olíufélögin séu ekki að fylgja lækkuðu heimsmarkaðsverði á hráolíu á sama hátt og hækkunum á sömu hráolíu er gjarnan fylgt. Eins bendir FÍB á þá staðreynd á heimasíðu sinni að síðan hráolíuverð hefur lækkað um tæp 30% hefur eldsneytisverð lækkaðum 4,2% fyrir bensín og 4,7% fyrir dísel. Dönsk olíufélög hafa hins vegar lækkað bensín um 18,4% og dísel um 16,8% á sama tíma. Bílar 15. ágúst 2022 07:01
Nýr rafbíll frá MG Nýr rafbíll frá MG er væntanlegur til BL á haustmánuðum. Um er að ræða hlaðbak sem ber heitið MG4 sem er sérlega vel búinn fimm manna fjölskyldubíl í C millistærðarflokki. Forsala á MG4 hófst í vikunni og eru fyrstu bílarnir væntanlegir til BL við Sævarhöfða í lok október. Bílar 12. ágúst 2022 07:00
Myndband: Reipitog á milli Ford F-150 Lightning og Rivian R1T Tveir stórir rafpallbílar takast á í reipitogi. Bílarnir tveir eru ekki beinir keppinautar. Þeir eru þó meðal fyrstu rafpallbílanna sem komu á markað. Í myndbandinu má sjá Ford F-150 Lightning og Rivian R1T í reiðitogi. F-150 er talsvert stærri en R1T en þó ögn þyngri. Báðir eru bílarnir fjórhjóladrifnir. Bílar 10. ágúst 2022 07:00
Geggjað bílasafn á Breiðdalsvík Eitt glæsilegasta bílasafn landsins er á Breiðdalsvík en það er í gamla frystihúsinu á staðnum. Á safninu eru um tuttugu bílar, allt glæsikerrur, svo ekki sé minnst á sportbíla safnsins. Innlent 9. ágúst 2022 20:05
Tesla Model Y að verða mest seldi bíll heims Rafjepplingurinn Tesla Model Y er á hraðri leið með að vera mest seldi bíll ársins 2022 þegar horft er til tekna af sölu. Á næsta ári er útlit fyrir að Model Y verði mest seldi bíll heims þegar kemur að seldum eintökum. Það verður að teljast merkilegur árangur fyrir stóran rafbíl. Bílar 8. ágúst 2022 07:00
Elon Musk: Tæknilegar breytingar og verðið mun hækka á Cybertruck Framkvæmdastjóri Tesla, Elon Musk segir að margt hafi breyst síðan bíllinn var fyrst kynntur árið 2019. „Það þýðir að tæknilýsingin og verðið munu breytast,“ sagði Musk á hluthafafundi Tesla, sem kallast Cyber Roundup. Bílar 6. ágúst 2022 07:00
Porsche blæjubíllinn sem var aldrei smíðaður Porsche hefur nú birt frumgerð af blæju útgáfu af Cayenne sem er nú orðin 20 ára. Frumgerðin var kynnt sem hluti af 20 ára afmæli Cayenne. Hún er ekki ökuhæf og er í raun lítið annað en skelin. Bílar 5. ágúst 2022 07:00
DeWALT trukkurinn í fyrsta sinn á Íslandi DeWALT Yellow Deamon verkfæratrukkur með tengivagn er nú á ferðinni um landið. Trukkurinn er troðfullur af verkfærum sem hægt er að skoða og prófa og fá ráðgjöf sérfræðinga. Keppt verður um titilinn Skrúfumeistari Íslands og boðið upp á hamborgara. Trukkurinn verður staddur á Reyðarfirði á morgun, föstudag. Samstarf 4. ágúst 2022 14:12
Haukur Viðar á Heklunni Íslandsmeistari í torfæru Haukur Viðar Einarsson á bíl sínum Heklunni varð um helgina Íslandsmeistari í sérútbúnaflokki Íslandsmótsins í torfæru í fyrsta sinn, þegar tvær síðustu keppnir tímabilsins fóru fram á Akureyri. Haukur endaði með 101 stig í mótinu. Í öðru sæti varð Geir Evert Grímsson á Sleggjunni með 85 stig og í þriðja sæti varð Íslandsmeistari síðasta árs, Skúli Kristjánsson á Simba með 84 stig. Bílar 3. ágúst 2022 07:01
Næsta kynslóð af Dodge Charger og Challenger verða rafbílar Gömlu vígin falla nú hvert á fætur öðru. Fleiri og fleiri rótgrónir framleiðendur eru að snúa sér að hreinum rafbílum. Dodge er sá nýjasti í þeim hópi og það með sportbílum sínum, Charger og Challenger. Bílar 2. ágúst 2022 07:01
Dacia Duster á toppnum annan mánuðinn í röð Flestar nýskráningar í júlí voru skráningar bíla af Toyota tegund með 296 bíla og Kia var í öðru sæti með 239. Dacia var í þriðja með 234 bíla nýskráða. Vinsælasta nýskráða undirtegundin í júlí var Dacia Duster, annan mánuðinn í röð, með 226 bíla nýskráða. Upplýsingar um nýskráningar eru fengnar af vef Samgöngustofu. Bílar 1. ágúst 2022 07:01
Alfa Romeo ætlar óvænt að kynna nýjan sportbíl á næsta ári Ítalski framleiðandinn, Alfa Romeo hefur gefið út að sportbíllinn sem er búið að bíða eftir lengi verði kynntur á fyrri helmingi næsta árs. Bílinn mun svipa til T33 Stradake, samkvæmt yfirmanni verkefnisins hjá Alfa Romeo, Jean-Philippe Imparato. Bílar 30. júlí 2022 07:01
Númeraplötur hækka um 136 prósent Ný gjaldskrá Samgöngustofu tekur gildi í byrjun ágúst. Almenn verðhækkun er fimm prósent en athygli vekur að skráningarmerki, almennt kölluð númeraplötur, hækka í verði um 136 prósent. Innlent 29. júlí 2022 10:24
Ódýrara að leggja einkaþotu en bíl Það er ódýrara að leggja einkaþotu á Reykjavíkurflugvelli en bíl í bílakjallara í miðbæ Reykjavíkur. Fimm daga stæði á Reykjavíkurflugvelli kostar 35.485 fyrir einkaþotu. Innlent 27. júlí 2022 07:27
Skýring á brotthvarfi Herbert Diess frá Volkswagen Group Ákvörðun um uppsögn Herbert Diess, framkvæmdastjóra Volkswagen Group kom mörgum í opna skjöldu. Raunveruleg ástæða þess að hann var að endingu látinn taka pokann sinn var sú að eina verkefnið sem var eftir á borði hans síðan í desember síðastliðnum, olli talsverðum seinkunum á kynningum rafbíla eins og Porsche Macan, Artemites verkefni Audi og Bentley rafbílum. Diess var enn yfir hugbúnaðardeildinni CARIAD sem virðist hafa verið síðasta hálmstráið. Bílar 27. júlí 2022 07:01
Háskólanemar hanna bíl sem fjarlægir koltvísýring úr andrúmsloftinu Bíllinn gengur undir nafninu Zem og er frumgerð af rafbíl sem notar sérstakar síur sem hreinsa koltvísýring úr loftinu á meðan á akstri stendur. Bíllinn er hannaður af nemendum við Eindhoven háskóla í Hollandi. Bíllinn er ekki fyrsti byltingarkenndi bíllinn sem nemendur skólans hanna. Bílar 26. júlí 2022 07:01
Framkvæmdastjóri Volkswagen Group hættir Herbert Diess, framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar hefur sagt starfi sínu lausu og mun láta af því 1. september næstkomandi. Næsti framkvæmdastjóri Volkswagen samsteypunnar verður Oliver Blume, núverandi framkvæmdastjóri Porsche. Bílar 23. júlí 2022 07:00
Dótturfélag Hyundai nýtti sér barnaþrælkun í Alabama Fyrirtækið SMART Alabama LLC nýtti sér barnaþrælkun við gerð parta fyrir bíla bifreiðaframleiðandans Hyundai. Í sumum tilvikum voru starfsmenn fyrirtækisins einungis tólf ára gamlir. Viðskipti erlent 22. júlí 2022 23:02
Segir fásinnu að stuðningur við rafbíla sé óhagkvæmur Formaður rafbílasambands segir mikið af ranghugmyndum í nýrri skýrslu Hagfræðistofnunar um hagkvæmni loftslagsaðgerða. Stofnunin gefi sér mikið af röngum forsendum og algjör fásinna sé að skella loftslagsskuldinni á rafbíla. Innlent 22. júlí 2022 12:55