
Dagur Kári vinnur rúma milljón í verðlaun
The Good Heart, kvikmynd Dags Kára Péturssonar, fékk áhorfendaverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Kraká.
Fréttir af íslenskum og erlendum kvikmyndum og þáttum, bíóbransanum og sjónvarpsframleiðslu.
The Good Heart, kvikmynd Dags Kára Péturssonar, fékk áhorfendaverðlaun á kvikmyndahátíðinni í Kraká.
„Ég hef ekki stundað sjósund sem sport en hef þurft að synda ansi mikið í sjónum að undanförnu,“ segir Ólafur Darri Ólafsson leikari sem er byrjaður að undirbúa sig fyrir aðalhlutverkið í nýrri kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpið.
Ákveðið hefur verið að breyta nýjustu kvikmynd M. Night Shyamalan, The Last Airbender, í þrívíddarmynd. Tæknilið vinnur nú hörðum höndum við að breyta myndinni fyrir frumsýningu hennar 2. júlí. Þessi ákvörðun kemur ekki á óvart því nánast önnur hver mynd í Hollywood er gefin út í þrívídd eftir velgengni Avatar.
Eins og kemur fram hér annars staðar á síðunni hefur Bond 23 verið frestað um óákveðinn tíma. Það þýðir að leikstjóri myndarinnar, Sam Mendes, verður að finna sér eitthvað annað að gera. Mendes var auðvitað ekki lengi að finna nýtt verkefni því hann er orðaður við endurgerð á hinni sígildu kvikmynd Galdrakarlinn í Oz eða The Wizard of Oz.
DVD-útgáfan af Avatar kemur út á morgun og menn eru þegar farnir að spá sölumetum í unnvörpum. Mestu athyglina vekur þó viðtal við leikstjóra
F. Scott Fitzgerald er einn þeirra bandarísku rithöfunda sem verða alltaf að hálfgerðri tískubylgju í Hollywood. Kvikmyndir sem byggja á verkum hans koma í gusum en svo gerist kannski ekki neitt í þeim efnum svo árum og áratugum skiptir.
„Þetta er fyrsta kvikmynd sinnar tegundar sem gerð er hér á Íslandi,“ segir Ingólfur Haukur Ingólfsson, rúmlega þrítugur sendibílastjóri og kvikmyndagerðarmaður frá Hafnarfirði.
Leikarinn David Cross, sem fer með hlutverk Tobiasar Funke í gamanþáttunum Arrested Development, segir að hugmyndin um að gera kvikmynd eftir þáttunum muni ekki líta dagsins ljós.
Pierce Brosnan segist ekki vera að leika Tony Blair í kvikmynd Romans Polanski, The Ghost Writer.
Baltasar Kormákur hyggst gera kvikmynd um þrekraun Guðlaugs Friðþórssonar, sem synti í land við ótrúlega erfiðar aðstæður eftir að skip hans fórst við Vestmannaeyjar árið 1984. Ef myndin tekst vel og verður vinsæl má fastlega gera ráð fyrir að fleiri geri sannsögulegar kvikmyndir um atburði frá níunda áratugnum. Hér eru fimm hugmyndir að eitís-myndum:
Að minnsta kosti þrjár kvikmyndir eru á teikniborðum virtra Hollywood-leikstjóra sem fjalla um atburði nátengda íslenskri sögu. Tvær kvikmyndir eru sagðar vera í undirbúningi um líf og starf hins íslensk/bandaríska skákundurs Bobby Fischer.
„Þeir sem hafa séð þessa mynd segja að hún dálítið lík myndinni Varði fer á vertíð. Ég hef nú bara ekki séð þá gloríu," segir Erling Bang, sem leikur og leikstýrir kvikmyndinni Zoom Boom Boom.
Ólafur Darri Ólafsson leikur aðalhlutverkið í nýjustu kvikmynd Baltasars Kormáks, Djúpinu. Handrit myndarinnar er sótt í samnefndan einleik Jóns Atla Jónassonar en það verk var innblásið af einstöku björgunarafreki Guðlaugs Friðþórssonar.
„Við erum með þetta á teikniborðinu núna, þetta gæti verið mjög spennandi,“ segir Bragi Þór Hinriksson leikstjóri og framleiðandi. Framhaldsmyndin Algjör Sveppi og dularfulla hótelherbergið verður að öllum líkindum fyrsta íslenska kvikmyndin sem gerð verður með þrívíddartækni. Fyrsta myndin um Sveppa og ævintýri hans sló eftirminnilega í gegn í sumar en nú á að hugsa hlutina í stærra samhengi. „Þrívíddartæknin hefur gengið í gegnum mikla þróun undanfarin tvö ár og nú er svo komið að hún er orðin yfirstíganleg,“ segir Bragi kokhraustur.
Aðdáendur danska grínparsins Franks Hvam og Caspers Christiansen þurfa ekki að kvíða neinum þurrki. Danskir fjölmiðlar greina nefnilega frá því að félagarnir séu með stórt verkefni í smíðum.
„Þetta er alveg ótrúlega skemmtilegt og miklu meira en ég bjóst við,“ segir Sverrir Þór Sverrisson en alls sáu 8.500 manns fjölskyldumyndina Algjör Sveppi og leitin að Villa sem frumsýnd var á fimmtudaginn.
Keppnismyndir Vitrana, aðalkeppnisflokks Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar í Reykjavík, hafa verið kynntar. Gildar til keppni eru fyrstu eða aðrar myndir leikstjóra í fullri lengd og hlýtur sigurvegarinn titilinn Uppgötvun ársins og gripinn Gyllta lundann. "Það ferskasta í alþjóðlegri kvikmyndagerð“ segir í tilkynningu frá hátíðinni.
„Við munum auglýsa eftir þátttakendum auk þess sem við sérveljum nokkra,“ segir Pálmi Guðmundsson sjónvarpsstjóri Stöðvar 2.
„Ég held að íbúunum sé alveg slétt sama, fullkomlega, það verður allavega engum alíkálfi slátrað þegar maður kemur,“ segir kvikmyndagerðarmaðurinn Ólafur Jóhannesson. Hann er á leiðinni heim til Búðardals þar sem nýjasta kvikmynd hans, Laxdæla Lárusar
Það ríkti góð stemning á Patreksfirði um hvítasunnuhelgina þar sem hátíð íslenskra heimildarmynda, Skjaldborg, fór fram í þriðja sinn.
Bandarísk kvikmyndaaðsókn hefur einkennst af einu; börn og unglingar flykkjast í bíó um þessar mundir. Samkvæmt nýjust aðsóknartölum eru það þessir hópar sem kaupa popp og kók í amerískum kvikmyndahúsum og skemmta sér konunglega.
Kvikmyndaleikstjórinn Baltasar Kormákur er með mörg járn í eldinum en hans stærsta verkefni til þessa ¿ Víkingr ¿ sem kostar að lágmarki 45 milljónir dollara, fer í tökur eftir áramót og er leikmyndavinna þegar hafin. Myndin verður að mestu tekin hér á landi.
Sautján myndir verða sýndar á kvikmyndahátíðinni Bíódagar sem verður haldin í Háskólabíói 17. apríl til 4. maí á vegum Græna ljóssins. Opnunarmyndin verður Me and Bobby í leikstjórn Friðriks Guðmundssonar sem fjallar um samskipti Sæmundar Pálssonar og skáksnillingsins Bobbys Fischer.
"Myndin fjallar um mann sem liggur fyrir dauðanum á gjörgæslu," svarar Börkur aðspurður um verðlaunamyndina. "Hún er svo stutt að það má eiginlega ekki segja meira frá því en mMyndina má sjá í heild sinni á heimasíðunni minni," segir Börkur.
Bruce Willis og Tracy Morgan úr þáttunum 30 Rock og Saturday Night Live leika aðalhlutverkin í gamanmyndinni A Couple of Cops sem verður fyrsta stórmyndin sem Kevin Smith leikstýrir.
Arnold Schwarzenegger hefur bæst í hóp vöðvabúntanna sem leika í hasarmyndinni The Expendables. Arnold mun leika sjálfan sig, ríkisstjóra Kaliforníu, í litlu hlutverki enda verður hann aðeins á tökustað í einn dag. Aðrir leikarar verða Jet Li, Mickey Rourke, Jason Statham, Do
Sjarmatröllið Jude Law leikur klæðskipting á korseletti í nýjustu mynd sinni sem er eingöngu byggð upp á viðtölum. Myndin sem ber titilinn Rage verður frumsýnd á Berlínarhátíðinni á sunnudag. Myndin kostaði innan við eina milljón bandaríkjadala, eða 112 milljónir íslenskra króna, í framleiðslu þrátt fyrir að með helstu hlutverk fari Jude Law, Judi Dench, Steve Buscemi og fyrirsætan Lily Cole.
Þrjár hundamyndir verða frumsýndar hérlendis á næstunni og verður gaman að sjá hvort Íslendingar séu jafnspenntir fyrir þessum loðnu ferfætlingum og bandarísku kvikmyndagestirnir voru.
George Clooney og Adam Sorkin, þekktastur fyrir West Wing-þættina, ætla að gera kvikmynd um hugsanleg réttarhöld yfir bílstjóra Osama bin Laden, Salim Ahmed Hamdan.