
„Vorum ekki að hlaupa kerfin af krafti“
Emil Barja fyrirliði Hauka var ósáttur eftir tap hans manna gegn Grindavík í HS Orku höllinni í kvöld. Haukar eru með þrjú töp á bakinu eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Domino´s deildinni.
Emil Barja fyrirliði Hauka var ósáttur eftir tap hans manna gegn Grindavík í HS Orku höllinni í kvöld. Haukar eru með þrjú töp á bakinu eftir fyrstu fjórar umferðirnar í Domino´s deildinni.
Grindavík er enn með fullt hús stiga í Dominos deild karla þegar fjórum umferðum er lokið. Liðið vann sjö stiga sigur á Haukum í kvöld, lokatölur 82-75.
Sigurlausir Þórsarar mættu í Seljaskóla og mættu ÍR. Eftir jafnan og spennandi fyrri hálfleik þá keyrðu ÍR-ingar yfir gestina í síðari hálfleik.
Mál Kristófers Acox, landsliðsmanns í körfubolta, gegn Knattspyrnufélagi Reykjavíkur verður tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Það er nóg um að vera á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Tíu beinar útsendingar eru á þessum næst síðasta fimmtudegi janúar mánaðar; frá golfi, fótbolta, rafíþróttum og körfubolta.
Miguel Cardoso, portúgalskur bakvörður í Val, fær ekki háa einkunn fyrir sóttvarnir í leik Vals og KR í Domino´s deildinni í körfubolta á dögunum.
Íslandsmeistarar KR hafa samið við Brandon Nazione um að leika með liðinu út tímabilið.
Sérfræðingar Domino's Körfuboltakvölds gáfu Darra Frey Atlasyni, þjálfara KR, hæstu einkunn fyrir upplegg hans í sigrinum á Val í Domino's deild karla í gær.
Benedikt Guðmundsson er að eignast nýjan uppáhalds leikmann í Domino's deild karla. Sá heitir Everage Richardson og leikur með ÍR.
„Þetta var að sjálfsögðu mjög sætur sigur, þetta var persónulegra en aðrir leikir en að sama skapi þurftum við að horfa á þennan leik einsog hvern annan leik og halda þeirri uppbyggingu áfram sem við erum byrjaðir á,” sagði Darri Freyr Atlason, þjálfari KR, hæst ánægður með sigurinn á Val í kvöld er liðin mættust í Domino's deild karla.
Jón Arnór Stefánsson og Kristófer Acox mættu KR í fyrsta sinn eftir vistaskiptin til Vals í sumar. Þá stýrði Finnur Freyr Stefánsson Val í fyrsta sinn gegn KR, liðinu sem hann gerði fimm sinnum að Íslandsmeisturum.
KR vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í kvöld á móti Val. Mikið var rætt og ritað fyrir leik um mörg vistaskipti KR-inga í Vals liðið. Leikurinn endaði 71 - 80 KR í vil og var Finnur Freyr þjálfari Vals þungur á brún eftir leikinn.
Keflavík hefur unnið alla þrjá leiki sína í Domino's deild karla á tímabilinu á meðan Haukar eru með einn sigur og tvö töp.
„Þetta var leiðinlegur og ógeðslega flatur leikur. Einhvern veginn náði enginn að komast í takt, hvorki við né Haukar. Þetta var ljótur leikur,“ sagði Hjalti Vilhjálmsson þjálfari Keflavíkur eftir sigur hans manna gegn Haukum í Domino´s deildinni í kvöld.
„Það verða örugglega blendnar tilfinningar hjá mjög mörgum í kvöld,“ segir Teitur Örlygsson um leik sem körfuboltaáhugafólk, og aðrir sem fíla gott drama, hafa beðið í ofvæni. Reykjavíkurslag Vals og KR í Dominos-deild karla.
Jón Arnór Sverrisson átti frábæran leik með Njarðvíkingum í dramatískum sigri í Síkinu á Sauðárkróki í gærkvöldi.
Logi Gunnarsson verður fertugur í haust en lætur ungu strákana oft líta illa út í Domino´s deildinni þessa dagana.
Mánudagurinn 18. janúar er runninn upp og það eru átta beinar útsendingar á sportrásum Stöðvar 2 í dag. Fótbolti, körfubolti, handbolti og rafíþróttir.
Logi Gunnarsson tryggði Njarðvík sigur með minnsta mun er liðið mætti Tindastól á útivelli í Domino's deild karla í kvöld, 108-107.
Logi Gunnarsson var hetja Njarðvíkur er liðið vann sigur á Tindastól með minnsta mun, 108-107, eftir framlengdan leik í kvöld.
Grindvíkingar keyrðu Suðurstrandarveginn og höfðu betur gegn Þór í Þórlákshöfn.
Nýliðar Hattar tóku á móti ÍR sem er spáð góðu gengi í Domino's deild karla í vetur. Hattarmenn eiga enn eftir að vinna leik á tímabilinu.
Bikar- og deildarmeistarar Stjörnunnar sóttu Þór Ak. heim og höfðu betur eftir spennandi lokamínútur.
Ægir Þór Steinarsson, leikstjórnandi Stjörnunnar, er líklega sneggsti körfuboltamaður landsins um þessar mundir.
Umræðan í framlengingu Körfuboltakvölds fer í ýmsar áttir.
Kjartan Atli Kjartansson og félagar hans í Körfuboltakvöldi fóru yfir Vesturbæjarinnrásina sem hefur átt sér stað að Hlíðarenda.
Sérfræðingarnir í Dominos Körfuboltakvöldi eru heillaðir af nýjasta liðsmanni KR í Dominos deild karla.
Fjölbreytt efni íþrótta á sportstöðvum Stöðvar 2 í dag.
Þórsliðin í Dominos deild karla voru tekin fyrir í Körfuboltakvöldi Kjartans Atla Kjartanssonar sem miðlaði biturri reynslu sinni frá því að hann brást Teiti Örlygssyni.
Logi Gunnarsson var magnaður er Domino's deild karla snéri aftur fyrir helgi. Njarðvíkingurinn skoraði 30 stig af 85 í liði Njarðvíkur sem tapaði fyrir Haukum í Ljónagryfjunni á fimmtudagskvöldið.