Láta stuðningsmennina ákveða á Twitter hvort að markvörðurinn fái nýjan samning Skoska úrvalsdeildarfélagið Livingston fer nýstárlegar leiðir til þess að ákveða hvort að markvörðurinn Gary Maley verði áfram hjá félaginu á næstu leiktíð en stuðningsmennirnir ráða þar ferðinni. Fótbolti 27. maí 2020 11:30
Fangelsaður fyrir að klípa í rass flugþjóns á leið til Íslands Breskur togarasjómaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi í Bretlandi fyrir að hafa kynferðislega áreitt flugþjón í flugi Easy-Jet til Íslands í október á síðasta ári. Erlent 27. maí 2020 10:53
Forsætisráðherrann fékk ekki að hitta móður sína fyrir andlátið Mark Rutte, forsætisráðherra Hollands, segir að hann hafi ekki fengið að hitta 96 ára gamla móður sína síðustu vikurnar sem hún lifði vegna heimsóknatakmarkana sem eru í gildi á hjúkrunarheimilum vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 26. maí 2020 11:59
Manntjónið á Bretlandi nálgast verstu spár stjórnvalda Tala látinna í kórónuveirufaraldrinum í Bretlandi er nú komin yfir 47.000 og nálgast svartsýnustu spár stjórnvalda. Aðstoðarráðherra í málefnum Skotlands sagði af sér í dag vegna viðbragða ríkisstjórnarinnar við uppljóstrunum um að nánasti ráðgjafi Boris Johnson forsætisráðherra hefði brotið gegn fyrirmælum yfirvalda um að fólk héldi sig heima. Erlent 26. maí 2020 11:12
Ráðgjafi Johnsons segist ekki sjá eftir neinu Dominic Cummings, helsti ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sagði í dag að um fjögur hundruð kílómetra langt ferðalag sitt, sem sagt er í trássi við kórónuveirutakmarkanir, hafi verið hugsað til þess að vernda fjölskyldu sína. Erlent 25. maí 2020 17:20
Punkturinn settur aftan við tímabilið hjá konunum Tímabilinu 2019-20 í tveimur efstu deildum kvenna í fótbolta á Englandi hefur verið slaufað vegna kórónuveirufaraldursins. Enski boltinn 25. maí 2020 14:18
Veiran á svo hröðu undanhaldi að hún setur framtíð Oxford-bóluefnis í uppnám Bóluefnissérfræðingur og yfirmaður Jenner-stofnunarinnar við hinn breska Oxford-háskóla segir aðeins helmingslíkur á því að bóluefni sem stofnunin þróar nú við nýju kórónuveirunni virki sem skyldi. Erlent 25. maí 2020 09:05
Hörð viðbrögð við ræðu Johnson: „Það er verið að hafa okkur að fíflum“ Boris Johnson, forsætisráðherra Bretlands, kom ráðgjafa sínum Dominic Cummings til varnar á daglegum upplýsingafundi ríkisstjórnarinnar vegna faraldurs kórónuveirunnar. Erlent 24. maí 2020 20:21
Tveir úr sama félaginu í ensku Championship-deildinni með veiruna Fjölmiðlar á Englandi greina frá því nú í morgun að tveir úr sama félaginu í ensku B-deildinni hafi greinst með kórónuveiruna eftir að leikmenn, þjálfarar og starfsfólk allra liðanna 24 gengust undir skoðun um helgina. Fótbolti 24. maí 2020 13:30
Segja Cummings hafa farið oftar frá Lundúnum Breski stjórnmálaráðgjafinn Dominic Cummings, sem gegnt hefur stöðu ráðgjafa Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands í tæplega eitt ár, stendur nú frammi fyrir nýjum ásökunum um að hafa virt ferðabann stjórnvalda vegna faraldursins að vettugi. Erlent 24. maí 2020 10:59
Bournemouth staðfestir smit í leikmannahópnum Bournemouth hefur staðfest að einn leikmaður liðsins sé með kórónuveiruna en enska úrvalsdeildin greindi frá því í gær að tveir aðilar tengdir ensku úrvalsdeildinni hafi greinst með veiruna. Sport 24. maí 2020 10:30
Ætla sér að prófa nýtt bóluefni gegn kórónuveirunni Rannsakendur við Oxford-háskóla á Bretlandi ætla sér að prufa nýtt bóluefni gegn kórónuveirunni á tíu þúsund manns til þess að komast að því hvort efnið virki. Nú þegar hafa þúsund sjálfboðaliðar fengið sprautu. Erlent 24. maí 2020 10:11
Tveir til viðbótar úr ensku úrvalsdeildinni með veiruna Tvö sýni reyndust jákvæð fyrir kórónuveirunni úr seinni skimun sem gerð var meðal leikmanna og annarra starfsmanna enskra úrvalsdeildarliða í vikunni. Í fyrri skimuninni reyndust sex jákvæð sýni og eru því minnst átta aðilar innan deildarinnar með veiruna. Fótbolti 23. maí 2020 23:00
„Ég sætti mig ekki við eina reglu fyrir þessa trúða og aðra fyrir okkur hin“ Breski fjölmiðlamaðurinn Piers Morgan er verulega ósáttur við fréttir af ferðalögum helsta ráðgjafa forsætisráðherra Bretlands á meðan útgöngubanni stóð. Erlent 23. maí 2020 19:11
Cummings segir ekkert athugavert við ferðalög sín á meðan ferðabann var í gildi Helsti ráðgjafi forsætisráðherra Bretlands sem gagnrýndur hefur verið fyrir að hafa ferðast um langa vegu til þess að einangra sig eftir að hafa fundið fyrir einkennum kórónuveirunnar, segir hegðun sína ekki hafa verið óeðlilega og hann hafi farið að lögum. Erlent 23. maí 2020 15:29
Þingmanni vikið úr flokknum eftir handtöku Breskur þingmaður úr röðum velska stjórnmálaflokksins Plaid Cymru hefur verið handtekinn vegna gruns um líkamsárás Erlent 23. maí 2020 14:22
Kalla eftir afsögn ráðgjafa Johnson eftir brot á sóttvarnareglum Kallað hefur verið eftir afsögn Dominic Cummings, helsta ráðgjafa forsætisráðherra Bretlands, eftir að Cummings ferðaðist frá Lundúnum til Durham eftir að hafa verið gert að einangra sjálfan sig eftir að hafa fundið fyrir einkennum kórónuveirusmits. Erlent 23. maí 2020 09:41
Stungin til bana fyrir framan dóttur sína Þrjátíu og tveggja ára gömul bresk kona, Melissa Belshaw, var stungin til bana í gær fyrir framan þrettán ára dóttur sína. Belshaw mæðgurnar höfðu verið á gangi um Upholland Road í nágrenni bæjarins Wigan þegar maður, sem fórnarlambið þekkti til, réðst á þær. Erlent 21. maí 2020 22:59
EasyJet hefur sig til flugs á ný Breska lággjaldaflugfélagið EasyJet mun hefja farþegaflug á nýjan leik þann 15. júní næstkomandi. Viðskipti erlent 21. maí 2020 11:01
Kante æfði ekki með Chelsea í dag af ótta við veiruna Það var enginn N’Golo Kante sjáanlegur á æfingu Chelsea í dag og Matt Law, blaðamaður á The Telegraph, segir að það eigi sér eðlilega skýringu. Hann hafi fengið frí frá æfingu dagsins og óvíst hvenær hann æfir aftur með liðinu. Fótbolti 20. maí 2020 20:14
„Þjóðargersemin“ Kafteinn Moore verður aðlaður Hinn 100 ára gamli Tom Moore, sem barðist í seinni heimsstyrjöldinni sem kafteinn í breska hernum og safnaði tæpum sex milljörðum króna til styrktar Heilbrigðisstofnunar Bretlands (NHS) í apríl mánuði, verður aðlaður af Elísabetu II Bretadrottningu og fær því heiðursriddaranafnbót. Erlent 19. maí 2020 21:47
Aðstoðarþjálfari Jóhanns Bergs með kórónuveiruna Enska úrvalsdeildarfélagið Burnley hefur staðfest að Ian Woan, aðstoðarþjálfari félagsins, sé enn þeirra sex úr ensku úrvalsdeildinni sem greindist með kórónuveiruna. Fótbolti 19. maí 2020 20:04
Komust yfir persónuupplýsingar níu milljón viðskiptavina EasyJet Breska flugfélagið EasyJet hefur beðist afsökunar eftir að óprúttnir aðilar komust yfir persónuupplýsingar níu milljóna viðskiptavina í „háþróaðri“ tölvuárás. Viðskipti erlent 19. maí 2020 11:49
Skoska slaufað og Celtic krýndir meistarar Celtic hafa verið krýndir skoskir meistarar níunda árið í röð. Keppni í skosku úrvalsdeildinni var formlega hætt í dag. Fótbolti 18. maí 2020 11:34
Björgólfur Thor metinn á 275 milljarða króna Björgólfur Thor Björgólfsson er á meðal hundrað ríkustu manna Bretlands samkvæmt nýjum lista The Sunday Times. Viðskipti erlent 17. maí 2020 12:42
Skilur að fólk sé pirrað á flóknum reglum Boris Johnson forsætisráðherra Bretlands segir skiljanlegt að fólk sé pirrað á nýjum reglum yfirvalda þar í landi, en ríkisstjórnin hefur verið gagnrýnd fyrir flókna reglusetningu í kórónuveirufaraldrinum. Erlent 17. maí 2020 11:38
Sjóðir Ratcliffe og annarra auðkýfinga rýrna Samanlagður auður þúsund ríkustu einstaklinga Bretlands hefur minnkað, í fyrsta sinn í tíu ár. Ástæðan er faraldur kórónuveirunnar sem valdið getur sjúkdómnum Covid-19. Einn þeirra sem tapað hefur vegna faraldursins er Jim Ratcliffe, landeigandi á Íslandi. Viðskipti erlent 17. maí 2020 08:22
Ákærð fyrir morð eftir að líkamsleifar fundust í ferðatöskum Bresk kona hefur verið ákærð fyrir morð eftir að líkamsleifar konu fundust í tveimur ferðatöskum í Forest of Dean á suðvestur Englandi. Erlent 16. maí 2020 08:12
Kane styður hetjurnar í fremstu víglínu gegn faraldrinum og sitt gamla félag Harry Kane, landsliðsfyrirliði Englands í fótbolta, er mikið gæðablóð ef mið er tekið af ákvörðun hans um að sýna heilbrigðisstarfsfólki stuðning og styrkja um leið sitt gamla félag Leyton Orient. Enski boltinn 14. maí 2020 19:30
„Þetta er pólitísk yfirlýsing og meira en það“ Ísland og Bretland hafa gert með sér samkomulag um samstarf ríkjanna til næstu 10 ára. Skrefið markar þáttaskil í samskiptum ríkjanna að sögn utanríkisráðherra. Innlent 14. maí 2020 19:00