Dæsti og bað dómarann um að tala hærra Aðalmeðferð í Barðavogsmálinu svokallaða hófst í aðalsal Héraðsdóms Reykjavíkur í morgun. Magnús Aron Magnússon, tvítugur karlmaður, er ákærður fyrir að hafa orðið karlmanni á fimmtugsaldri að bana í Barðavogi í júní í fyrra. Innlent 29. mars 2023 09:57
Þrjátíu daga skilorð fyrir árás á fyrrverandi kærustu: „Ég get ekki leyft neinum að leggja á mig hendur, aldrei“ Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að ráðast á fyrrum unnustu sína á heimili sínu á Akureyri. Árásin átti sér stað í september 2021. Innlent 28. mars 2023 18:07
Móðir sýknuð af því að sparka í og slá fimm ára son sinn Héraðsdómur Reykjaness hefur sýknað móður af því að hafa sparkað í og slegið fimm ára gamlan son sinn. Það var þáverandi eiginmaður konunnar og faðir drengsins sem tilkynnti um málið. Innlent 27. mars 2023 11:55
Taldi lögreglu hafa hótað sér í skýrslutökum Endurupptökudómur hefur hafnað beiðni Guðlaugs Agnars Guðmundssonar, sem dæmdur var fyrir peningaþvætti í tengslum við stórkostlegt fíkniefnasmygl, um endurupptöku á dómnum. Guðlaugur byggði meðal annars á því að við rannsókn málsins hafi lögregla beitt hann hótunum um að gera föður hans að sakborningi í málinu. Innlent 26. mars 2023 21:28
Páll gefst ekki upp og blæs til söfnunar Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, hefur sett af stað söfnun fyrir málskostnaði vegna áfrýjunar til Landsréttar. Páll var í vikunni dæmdur til að greiða blaðamönnum Kjarnans miskabætur vegna ummæla sem hann lét falla í tengslum við Samherjamálið. Innlent 26. mars 2023 12:27
Vafi féll þrítuga bróðurnum í vil Maður á þrítugsaldri sem ákærður var í Borgarholtsskólamálinu svokallaða var sýknaður þar sem ekki tókst að sanna á hann líkamsárás. Lögmaður eins sakfelldu segir koma á óvart að fullorðnir menn, sem ekki sæki nám en komi inn í skóla og taki þátt í átökum, séu sýknaðir. Innlent 25. mars 2023 19:05
„Gríðarlegur léttir að málinu sé lokið“ Margra ára skattsvikamáli hljómsveitarinnar Sigur rósar lauk í gær þegar að Landsréttur vísaði kröfu ríkisskattstjóra frá dómi. Lögmaður Jóns Þórs Birgissonar, eða Jónsa í Sigur rós eins og hann er oftast kallaður, segir skattstjóra hafa of víðtækar heimildir til kyrrsetningar. Innlent 25. mars 2023 12:41
Jónsi í Sigur Rós lagði ríkisskattstjóra Landsréttur hefur vísað kröfu á hendur Jónsa í Sigur Rós vegna skattamáls hljómsveitarinnar frá héraðsdómi. Ríkisskattstjóri ákvað að falla frá áfrýjun dómsmála á hendur þriggja af fjögurra hljómsveitarmeðlima, sem allir höfðu verið sýknaðir í héraðsdómi. Eftir stóð Jónsi – og endurskoðandi hans. Innlent 24. mars 2023 18:45
Páll dæmdur fyrir ummæli um Heimildarmenn Héraðsdómur Reykjavíkur hefur ómerkt ummæli sem Páll Vilhjálmsson, framhaldsskólakennari og bloggari, lét falla um blaðamenn Kjarnans. Páll hélt því fram að blaðamennirnir hefðu átt þátt í byrlun og þjófnaði í tengslum við umfjöllun um leynilega áhrifaherferð sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja. Innlent 24. mars 2023 14:05
Hrannar dæmdur í átta ára fangelsi Hrannar Fossberg Viðarsson, 24 ára karlmaður, var í dag dæmdur í átta ára fangelsi fyrir skotárás í Grafarholti í febrúar í fyrra. Hann þarf að greiða fólkinu sem hann skaut 3,3 milljónir króna annars vegar og 1,2 milljónir króna hins vegar. Dómur var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Verjandi Hrannars segir að dómnum verði áfrýjað. Innlent 24. mars 2023 13:10
Meint brot afans fyrndust vegna mistaka lögreglu Íslenska ríkið þarf að greiða konu sem kærði afa sinn fyrir kynferðisbrot 1,4 milljónir í miskabætur. Mistök lögreglu urðu til þess að málið fyrndist á meðan það var til rannsóknar þar. Innlent 24. mars 2023 11:09
Fékk unga stelpu til að senda sér nektarmyndir Karlmaður hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir að senda ungri stúlku nektarmyndir, fá hana til að senda sér kynferðislegar myndir áður en hún náði fimmtán ára aldri, fyrir að hafa viðhaft klúrt, lostugt og óviðeigandi orðbragð við hana og fyrir að biðja hana um að kyssa sig í bifreið sinni á fáförnum vegi. Innlent 23. mars 2023 22:31
Brotaþoli hafi ítrekað beðið ákærða að hætta Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann fyrir nauðgun, fyrir að hafa haft samræði við konu án hennar samþykkis. Í ákæru segir að brotaþoli hafi árangurslaust ítrekað beðið ákærða að hætta. Innlent 23. mars 2023 21:13
Hefur áhyggjur af því að fangelsi landsins séu að fyllast af „barnungum afbrotamönnum“ Verjandi Gabríels Douane hefur áhyggjur af þeirri þróun að fangelsi landsins séu að fyllast af barnungum afbrotamönnum og kallar eftir auknum stuðningi og úrræðum stjórnvalda. Þá er hún ósátt við að rúmlega þrítugur karlmaður hafi verið sýknaður í dag af þátttöku sinni í Borgarholtsskólamálinu. Innlent 23. mars 2023 17:03
Gabríel Douane dæmdur í tveggja ára fangelsi Gabríel Douane hefur verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir þátt sinn í Borgarholtsskólamálinu svokallaða og tvær aðrar líkamsárásir. Þrír ungir karlmenn fengu sex mánaða skilorðsbundinn dóm en einn ákærðu var sýknaður. Innlent 23. mars 2023 15:54
Sakaður um að hafa myndað sambýliskonu sína þegar hún svaf Karlmaður á Norðurlandi eystra hefur verið ákærður fyrir kynferðisbrot með því að hafa tekið kynferðislegar ljósmyndir af sambýliskonu sinni í óþökk hennar. Aðalmeðferð í málinu fer fram í apríl. Innlent 23. mars 2023 11:52
Bentu hvor á annan í máli sem endaði með sjö hundruð milljóna sekt Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt Þorkel Kristján Guðgeirsson til greiðslu 713 milljón króna sektar fyrir brot í rekstri tveggja félaga í hans eigu. Þorkell taldi sök í máli annars félagsins liggja hjá öðrum starfsmanni, sem vísaði á móti alfarið á Þorkel. Innlent 23. mars 2023 11:35
Úr farbanni í gæsluvarðhald vegna dóms fyrir að skera annan mann á háls Erlendur karlmaður hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 12. apríl næstkomandi vegna evrópskrar handtökuskipunar eftir að maðurinn var sakfelldur fyrir tilraun til manndráps og líkamsárás erlendis. Innlent 21. mars 2023 15:39
Augljóst að aðalmeðferð geti ekki farið fram við Lækjartorg Verjandi nítján ára manns sem ákærður er fyrir tilraun til manndráps á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember í fyrra segir gæsluvarðhald sem hann hefur sætt leggjast verulega á hann. Hann sér ekki hvernig aðalmeðferð í málinu eigi að geta farið fram í húsakynnum Héraðsdóms Reykjavíkur. Innlent 21. mars 2023 14:45
Vildi ekki svara því hvort hann hefði verið á Bankastræti Club Þingfestingu í Bankastræti Club málinu var framhaldið eftir hádegi í Héraðsdómi Reykjavíkur. Fimm karlmenn til viðbótar komu fyrir dóminn og neituðu allir sök í málinu. Einn ákærðu vildi ekki svara spurningunni hvort hann hefði verið á skemmtistaðnum umrætt kvöld. Innlent 21. mars 2023 14:00
Uppsögn vegna persónulegra lána dæmd ólögleg Fyrrverandi aðstoðarverslunarstjóri í verslun í Reykjavík fær 2,5 milljónir króna í bætur vegna ólögmætar uppsagnar. Starfsmaðurinn hafði slegið persónuleg lán hjá öðrum starfsmönnum í aðdraganda uppsagnarinnar. Héraðsdómur telur að ekki hafi verið rétt staðið að starfslokum starfsmannsins. Innlent 21. mars 2023 11:46
Með lambhúshettu í dómsal Ákæra gegn 25 mönnum vegna líkamsárásar á Bankastræti Club í nóvember verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Vegna þess fjölda sem er ákærður í málinu fer þingfesting fram í fjórum hollum og verða sex til sjö leiddir fyrir dómara í einu. Hinir ákærðu huldu andlit sín, meðal annars með lambhúshettu, áður en þingsal var lokað. Innlent 21. mars 2023 10:31
Þingfesta ákæru gegn 25 mönnum vegna árásarinnar á Bankastræti Club Ákæra á hendur 25 karlmönnum á aldrinum átján til 36 ára vegna árásarinnar á skemmtistaðnum Bankastræti Club í nóvember verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Nítján ára karlmaður er ákærður fyrir tilraun til manndráps og tíu félagar hans fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás. Innlent 21. mars 2023 08:51
Saksóknari fær frest til að ákveða með ákæru í hryðjuverkamáli Héraðssaksóknari fékk sjö vikna frest til þess að taka afstöðu til þess hvort gefin verði út ný ákæra í máli gegn tveimur karlmönnum sem hann sakaði um tilraun til hryðjuverka. Verjandi annars mannanna segir að koma verði í ljós hvort saksóknara takist að semja ákæru sem haldi vatni. Innlent 20. mars 2023 15:07
Segir fimm milljónir króna fyrir sjónmissi hlægilegar bætur Darius Osirus Kazlan varð fyrir hrottalegri líkamsárás á Kaffibarnum í febrúar 2018 sem leiddi til þess að hann missti sjón á vinstra auga. Fimm ár liðu þar til hann fékk bótagreiðslu frá ríkissjóði. Þar spilaði inn í að ofbeldismaðurinn flúði fyrst land og lést svo eftir að dómur var kveðinn upp. Darius telur bótagreiðsluna allt of lága fyrir sjónmissi. Innlent 19. mars 2023 09:04
Sjö ára þrautagöngu kennara lauk með sigri í Landsrétti Kennara, sem áminntur var og síðar sagt upp störfum hjá grunnskóla í Bláskógabyggð árið 2017, voru í gær dæmdar miskabætur vegna ólögmætrar áminningar og uppsagnar. Innlent 18. mars 2023 12:09
Landsréttur þyngir dóm vegna kynferðisbrots gegn þroskaskertum manni Landsréttur hefur þyngt dóm Héraðsdóms Reykjavíkur yfir karlmanni sem dæmdur var í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir kynferðisbrot gagnvart þroskahömluðum manni. Maðurinn var sóttur til saka fyrir að hafa í tvö skipti haft kynferðismök við manninn en nýtt sér yfirburði sína og aðstöðumun gagnvart manninum, sem er með þroskahömlun og gat ekki skilið þýðingu verknaðarins. Innlent 17. mars 2023 23:05
Dómar fyrir að smygla inn kókaínfylltri jólastyttu mildaðir Landsréttur dæmdi tvo karlmenn í tíu og tólf mánaða fangelsi fyrir tilraun til stórfellds fíkniefnainnflutnings, með því að hafa sótt jólastyttu fulla af kókaíni á pósthús, í dag. Mennirnir höfðu áður verið dæmdir í átján og 21 mánaðar fangelsi. Innlent 17. mars 2023 22:55
Segir sýknudóm vonbrigði Framkvæmdastjóri Frigusar segir dóm í máli gegn ríkinu og Lindarhvoli koma gríðarlega á óvart og vera vonbrigði. Íslenska ríkið og Lindarhvoll voru í dag sýknuð af kröfu félagsins vegna sölu á eignarhaldsfélaginu Klakka. Innlent 17. mars 2023 19:47
Framlengja gæsluvarðhald yfir byssumanninum Gæsluvarðhald yfir karlmanni um þrítugt var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur framlengt til miðvikudagsins 22. mars. Innlent 17. mars 2023 15:49