
Tekinn með tólf kíló af hassi í farangrinum
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í þrettán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmum tólf kílóum af hassi til landsins með flugi í maí síðastliðinn.
Fréttir af málum sem rata fyrir dómstóla.
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt karlmann í þrettán mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla rúmum tólf kílóum af hassi til landsins með flugi í maí síðastliðinn.
Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt karlmann fyrir brot á barnaverndarlögum og stórfelldar ærumeiðingar gegn maka fyrir að hafa brotið sér leið inn í íbúð á Akureyri og hreytt ókvæðisorðum í eiginkonu sína fyrir framan börn þeirra.
Karlmaður á suðvesturhorni landsins hefur verið ákærður fyrir nauðgun, sifjaspell og stórfellt brot í nánu sambandi gegn dóttur sinni. Honum er gefið að sök að hafa nauðgað stúlkunni, sem þá var fimmtán ára, ítrekað yfir hálfs árs tímabil.
Kona hefur verið dæmd til 22 mánaða langrar fangelsisvistar fyrir að hafa staðið að innflutningi á tæplega 2,2 kílóum af nokkuð sterku kókaíni.
Innflutningur á kókaíni hefur aukist og neysla þar með. Sex sitja í gæsluvarðhaldi vegna þriggja ólíkra mála. Aðstoðaryfirlögregluþjónn segir rannsókn í fullum gangi.
Fullyrðingar kaupanda húss í Hafnarfirði, um að logið hafi verið að honum að húsið hafi verið fulltilbúið, virðast ekki halda vatni. Í dómi frá árinu 2013 vegna meintra galla á húsinu segir að óumdeilt sé að fasteignin hafi verið skráð fokheld við kaupin og að það hafi komið fram í sölugögnum.
Erlend kona hefur verið dæmd í sjö mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla hálfu kílói af kókaíni til landsins þann 18. júní síðastliðinn. Konan kom til landsins með flugi frá París í Frakklandi.
Karlmaður hefur verið dæmdur til átta mánaða langrar fangelsisvistar fyrir margvísleg brot í nánu sambandi, kynferðisbrot og brot gegn nálgunarbanni með því að hafa endurtekið og á alvarlegan hátt ógnað heilsu og velferð fyrrverandi sambýliskonu sinnar.
Landsréttur telur Jón Arnar Baldurs vanhæfan til þess að sitja sem sérfróður meðdómsmaður í hópmálsókn hluthafa Landsbankans gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni. Rétturinn fellst því á kröfu Björgólfs Thors sem krafðist þess að hann myndi víkja vegna tengsla við endurskoðunarfyrirtæki.
Karlmaður á fimmtugsaldri hefur verið fundinn sekur um að hafa snert lík hinnar sextán ára Amber Gibson á óviðeigandi hátt, eftir að hann kom að því, og í kjölfarið falið það. Bróðir stúlkunnar var á dögunum fundinn sekur um kynferðisbrot og morð á henni.
Norsk yfirvöld hafa krafist þess að Edda Björk Arnardóttir, sem hefur staðið í forræðisdeilu þar í landi, verði handtekin af íslenskri lögreglu og framseld til Noregs til að vera viðstödd réttarhöld í málinu.
Connor Gibson, tuttugu ára gamall skoskur karlmaður, hefur verið fundinn sekur um kynferðisbrot og morð á sextán ára systur sinni. Brotin voru framin í Hamilton í Skotlandi í nóvember árið 2021.
Rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra, á manndrápi sem átti sér stað í október á síðasta ári, er lokið.
Karlmaður sem sakaður er um nauðgun, stórfellda líkamsárás og stórfellt brot í nánu sambandi hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir ítrekuð brot gagnvart eiginkonu sinni á fjögurra ára tímabili. Brot mannsins gætu varðað allt að sextán ára fangelsi. Miskabótakrafa konunnar hljóðar upp á níu milljónir króna.
Pólskir bræður hafa verið dæmdir til fangelsisvistar fyrir stórfelld fíkniefnabrot og þjófnað. Meðal rannsóknaraðferða lögreglu var uppsetning eftirlitsmyndavélar og notkun eftirfarar- og hlerunarbúnaðar á bifreið sakbornings.
Maður og kona af erlendum uppruna fengu í dag þunga dóma í Héraðsdómi Reykjaness. Fólkið hafði flutt inn kókaín en var hvorki eigandi þess né hafði skipulagt dreifinguna.
Þrjár frænkur Ásmundar Einars Daðasonar mennta-og barnamálaráðherra hafa byrjað með nýtt hlaðvarp um fjölskylduerjurnar á Lambeyrum. Þær segja skemmdarverk framin í hverjum mánuði og vonast til að hlaðvarpið geti stöðvað þau.
Til greina kemur að Steina Árnadóttir, hjúkrunarfræðingurinn sem ákærð er fyrir að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild Landspítalans, verði sakfelld fyrir manndráp af gáleysi fyrir Landsrétti.
Fyrirtöku í Bankastræti club-málinu svokallaða lauk í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Karlmaður, sem ákærður er fyrir alvarlegasta hluta líkamsárásarinnar, breytti afstöðu sinni til sakargifta. Hann játar að hafa stungið tvo en ekki þrjá eins og áður.
Nuddarinn Ioseb Gogiashvili hefur verið dæmdur til tveggja ára fangelsis fyrir kynferðisbrot gegn konu á heimili hennar. Ioseb flúði land en var handtekinn og framseldur til Íslands.
Mál héraðsdómara, sem stefndi ríkinu eftir að henni var tilkynnt um að hún hefði fengið ofgreidd laun og fór með sigur af hólmi, fer beint til Hæstaréttar. 260 af æðstu embættismönnum þjóðarinnar fengu sams konar tilkynningu.
Maður var í dag dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir nauðganir og stórfelld brot í nánu sambandi. Brotin voru framin gegn fyrrverandi eiginkonu hans í sumarbústað.
Formaður Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga gagnrýnir ákvörðun ríkissaksóknara, um að áfrýja sýknudómi hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, harðlega.
Sýknudómi Steinu Árnadóttur, hjúkrunarfræðings á Landspítalanum, hefur verið áfrýjað af ríkissaksóknara. Hún var sýknuð af ákæru um að hafa valdið dauða sjúklings á geðdeild spítalans fyrir tveimur árum, þar sem ekki taldist sannað að hún hefði haft ásetning til þess.
Karlmaður hefur verið dæmdur í 45 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir manndráp af gáleysi. Hann ók lyftara yfir erlendan ferðamann sem hafði verið að skoða listaverkið Eggin í Gleðivík við hafnarsvæðið á Djúpavogi. Maðurinn var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Áminning sem var veitt lögreglukonu sem gerði lítið úr þolendum kynferðisbrota og meðlimum Öfga á Facebook var í samræmi við lög. Þetta er niðurstaða Héraðsdóms Reykjavíkur sem taldi lögreglukonuna ekki eiga rétt á miskabótum vegna áminningarinnar og breytingar á starfi hennar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Ummæli lögreglukonunnar um vælandi kerlingar og byrlanir höfðu áhrif á niðurstöðu dómsins.
Málskotsbeiðni eiganda skemmtistaðarins The English Pub í máli gegn íslenska ríkinu hefur verið hafnað. Landsréttur úrskurðaði að djammbannið hafi verið löglegt.
Sverrir Þór Gunnarsson, betur þekktur sem Sveddi tönn, hefur verið ákærður af ríkissaksóknara í Brasilíu fyrir stórfelld fíkniefnalagabrot og skipulagða glæpastarfsemi. Þann 3. júlí síðastliðinn var fyrirtaka í málinu hjá dómstól í Rio de Janeiro þar sem sönnunargögn voru lögð fram.
Hreiðar Hermannsson, eigandi Orustustaða í Skaftárhreppi, segir að framkvæmdir við tíu milljarða króna hótel á jörðinni fari núna fullt en hann hafði betur í dómsmáli um vegtengingu fyrir helgi. Hann vonast til að hótelið verði opnað eftir átján til tuttugu mánuði.
Kona nokkur hefur verið sýknuð af kröfu fyrrverandi kærasta um miskabætur og fangelsisrefsingu vegna ummæla sem hún lét falla á samfélagsmiðlunum Facebook og Instagram árið 2022. Þar sakaði hún ónafngreindan karlmann um nauðgun en fyrrverandi kærastinn taldi augljóst að um sig væri að ræða.