

Donald Trump
Fréttir tengdar 45. og 47. forseta Bandaríkjanna, Donald Trump.

Háttsettir Repúblikanar styðja rannsókn á Trump
Tveir ríkisstjórar tjáðu sig um málið í dag.

Trump rifjar upp Mueller-æfingarnar
Orð og setningar eins og nornaveiðar, hneyksli, forsetaáreiti, "það hefur aldrei verið komið jafn illa fram við forseta“ og "þetta má ekki gerast aftur“, eru farin að birtast í miklu magni á Twitter-síðu Trump og í yfirlýsingum hans til fjölmiðla.

Rússar vona að samtöl Pútín og Trump verði ekki opinberuð
Þetta sagði Dmitry Peskov, talsmaður Pútín, í morgun varðandi opinberun uppskriftar símtals Trump og Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu.

Hvíta húsið vissi af kvörtun uppljóstrara skömmu eftir símtal Trump og Zelenskí
Uppljóstrari innan CIA lét lögfræðing leyniþjónustunnar vita áður en hann lagði inn formlega uppljóstrarakvörtun sem veitti honum lagalega vernd. Hvíta húsið virðist því hafa vitað nær frá upphafi hvaðan kvörtunin kom.

Draga stórlega úr leyfilegum fjölda flóttamanna í landinu
Átján þúsund manns verður veitt hælisvist á næstu tólf mánuðum í Bandaríkjunum, um helmingi færri en leyfilegur fjöldi var í fyrra.

Trump ræðst á heimildarmenn uppljóstrarans og segir að njósnurum hafi verið refsað í gamla daga
Starfsmönnum fastanefndar Bandaríkjanna hjá SÞ er sagt hafa brugðið þegar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sagði við þá að sá sem veitti uppljóstraranum sem kvartaði undan símtali forsetans við Úkraínuforseta upplýsingar um símtalið væri nálægt því að vera njósnari.

Innihald eftirrits af símtali Trumps og kvörtun uppljóstrara sögð sláandi
Bandaríska þingið birti í dag kvörtun uppljóstrara sem segir að ríkisstjórn Donalds Trump forseta hafi um fjögurra mánaða skeið reynt að fá forseta Úkraínu til að rannsaka pólitískan andstæðing Trumps. Forsetaembættið er sagt reyna að hylma yfir málið og fela eftirrit af símtali Trumps og Úkraínuforseta.

Reyndu að fela upplýsingar um símtal Trump og Zelensky
Leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings hefur birt svokallaða uppljóstrarakvörtun sem leitt hefur til þess að Demókratar á þingi hafa hafið formlegt ákæruferli á hendur Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.

Biden segir síðustu daga hafa verið undarlega
Biden var gestur Jimmy Kimmel í gærkvöldi þar sem þeir ræddu, meðal annars, símtal Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við Voldomyr Zelensky, forseta Úkraínu.

Sagður hafa hótað því að segja af sér fái hann ekki lausan tauminn
Starfandi yfirmaður bandarísku leyniþjónustunnar er sagður hafa hótað að segja af sér vegna tilmæla Trump-stjórnarinnar um að hann haldi þétt að sér spilunum þegar hann kemur fyrir bandaríska þingið á morgun.

Símtal Trumps sagt skýrt dæmi um embættisbrot
Bandaríkjaforseti birti í dag uppskrift af símtali við forseta Úkraínu.

Segir Trump hafa hagað sér eins og mafíósi
Adam Schiff, þingmaður Demókrataflokksins, segir gróft upprit Hvíta hússins af samtali Donald Trump, forseta, og Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, sýna Trump hafa hagað sér eins og mafíósi.

Trump bað Zelensky um að rannsaka Biden
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, bað Volodymyr Zelensky, forseta Úkraínu, um að starfa með William Barr, dómsmálaráðherra, og Rudy Giuliani, einkalögmanni sínum, til að rannsaka Joe Biden, pólitískan andstæðing sinn, og son hans.

Fóru ítarlega yfir "Úkraínu-Gate“
Þáttastjórnendur Bandaríkjanna gerðu stólpagrín að nýjustu vendinum í pólitíkinni í Bandaríkjunum.

Allt sem þú þarft að vita um hið formlega ákæruferli á hendur forseta Bandaríkjanna
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, lýsti því yfir í kvöld að demókratar í neðri deild þingsins myndu nýta meirihluta sinn þar til þess að hefja formlega rannsókn því hvort Donald Trump hafi framið embættisbrot í starfi með því að hafa þrýst á úkraínsk stjórnvöld að rannsaka pólitískan andstæðing hans.

Trump bregst ókvæða við formlegri rannsókn um embættisbrot
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, virðist vera allt annað en ánægður með yfirlýsingu Nancy Pelosi, forseta fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, um að fulltrúadeildin muni hefja formlega rannsókn á því hvort að Trump hafi framið embættisbrot í starfi.

Þingið hefur formlega rannsókn á því hvort Trump hafi framið embættisbrot
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og leiðtogi demókrata í neðri deild þingsins, tilkynnti rétt í þessu að skipuð verði sérstök nefnd sem rannsaka eigi hvort Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafi framið embættisbrot með því að hafa þrýst á úkraínsk stjórnvöld að rannsaka pólitískan andstæðing hans.

Sögð ætla að tilkynna síðar í kvöld að formlegt ákæruferli á hendur Trump fyrir embættisbrot verði hafið
Nancy Pelosi, forseti fulltrúadeildar Bandaríkjanna og leiðtogi Demókrata í deildinni, mun tilkynna síðar í kvöld að til standi að hefja formlega rannsókn á því hvort Donald Trump, forseti Bandaríkjanna hafi framið embættisbrot með því að hafa þrýst á úkraínsk stjórnvöld að rannsaka pólitískan andstæðing hans.

Trump lofaði þjóðernishyggju í ræðu sinni hjá SÞ
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um ýmsa aðila í ræðu sinni á Allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í dag og teiknaði hann upp alvarlega mynd af stöðu heimsins og Bandaríkjanna.

Trump stöðvaði styrk til Úkraínu áður en hann talaði við nýja forsetann
Bandaríkjaforseti er sakaður um að hafa hótað Úkraínu að halda eftir hundruð milljóna styrk nema stjórnvöld þar veittu honum persónulegan pólitískan greiða.

Þegar Greta Thunberg rak augun í Trump
Á myndum má sjá ískalt augnaráð Thunberg þegar hún sér bandaríska forsetann ganga framhjá.

Þrýstingur á að kæra Trump fyrir embættisbrot eykst
Ásakanir um að Trump forseti hafi nýtt embætti sitt til að þrýsta á Úkraínustjórn um aðstoð gegn pólitískum andstæðingi hans hafa sett aukinn þrýsting á forystu Demókrataflokksins um að kæra Trump fyrir embættisbrot.

Bergdís afhenti Donald Trump trúnaðarbréf sitt
Bergdís Ellertsdóttir, sendiherra Íslands í Bandaríkjunum, afhenti Donald Trump, Bandaríkjaforseta, trúnaðarbréf sitt í liðinni viku.

Trump þrýsti á forseta Úkraínu að rannsaka son Joe Biden
Donald Trump, Bandaríkjaforseti, er sagður hafa beitt úkraínska forsetann, Volodymyr Zelensky, þrýstingi til að láta rannsaka son Joseph Biden, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna.

Trump kynntar mögulegar árásir gegn Íran í dag
Trump skipaði hernum að skipuleggja möguleg viðbrögð við árás á stærstu olíuvinnslustöð heimsins, sem stödd er í Sádi-Arabíu, en Bandaríkjamenn og Sádar saka yfirvöld Íran um að hafa komið að árásinni.

Loforð Trump sagt tengjast Úkraínu
Loforðið varð til þess að starfsmaður einnar af leyniþjónustum Bandaríkjanna, sem starfaði innan Hvíta hússins, tilkynnti atvikið og hefur það leitt til mikilla deila á milli þingmanna og Joseph Maguire, starfandi yfirmanns leyniþjónusta Bandaríkjanna, sem neitar að afhenda þinginu upplýsingar um kvörtun starfsmannsins.

Meint loforð Trump til annars þjóðarleiðtoga dregur dilk á eftir sér
Samskipti Donald Trump, forseta Bandaríkjanna, við annan þjóðarleiðtoga leiddu til þess að starfsmaður leyniþjónustu Bandaríkjanna lagði fram formlega "uppljóstrarakvörtun“ til innri endurskoðenda leyniþjónusta Bandaríkjanna.

Nýjar þvinganir og nýr þjóðaröryggisráðgjafi
Bandaríkjaforseti hefur skipað Robert O'Brien nýjan þjóðaröryggisráðgjafa.

Rógburði um Omar sem Trump magnaði upp á Twitter eytt
Stuðningsmaður forsetans laug upp á þingkonu demókrata sem er múslimi að hún hefði fagnað þegar 18 ár voru liðin frá hryðjuverkunum 11. september á dögunum.

Samningamaður í gíslatökum verður fjórði þjóðaröryggisráðgjafi Trump
Robert O'Brien var sérstakur sendifulltrúi forsetaembættisins í gíslatökumálum.