Gönguleiðum að gosinu lokað í kvöld Líkt og síðustu daga mun gönguleiðum inn á gossvæðið á Reykjanesskaga vera lokað klukkan 18 í kvöld. Fyrir það verður opið inn á svæðið frá Suðurstrandarvegi. Samkvæmt lögreglunni á Suðurnesjum gekk lokun vel í gær og voru engin óhöpp skráð. Innlent 25. júlí 2023 09:09
Veðurguðirnir aldrei með slökkviliðsmönnum í liði Slökkviliðsstjórinn í Grindavík segir að mögulega þurfi að grípa til róttækari aðgerða svo hindra megi frekari gróðurelda í kringum eldstöðina við Litla Hrút. Veðurguðirnir séu ekki með slökkviliðinu í liði, hvernig sem viðri. Innlent 24. júlí 2023 19:02
„Þetta sýnir að fólk þarf að fara varlega“ Eldfjallafræðingur segir að viðbúið hafi verið að barmur gígsins við Litla-Hrút myndi gefa sig í dag strax í gær. Í gær hafi mikill fjöldi fólks verið á svæðinu þar sem hraun rann niður á sléttuna og það ítreki mikilvægi þess að fólk fari varlega og hlýði fyrirmælum. Innlent 24. júlí 2023 14:21
Björgunarsveitarmaður slasaðist við gosstöðvarnar Björgunarsveitarmaður velti fjórhjóli við gosstöðvarnar við Litla-Hrút í gærkvöldi. Hann var í kjölfarið fluttur með sjúkrabíl á Landspítalann. Innlent 24. júlí 2023 08:49
Slæm loftgæði á Ísafirði og í Hveragerði í dag Mikil loftmengun er á Ísafirði og í Hveragerði í dag og gætu viðkvæmir fundið fyrir einkennum vegna slæmra loftgæða. Gasmengun frá gosinu berst til norðurs og austurs yfir suðvestanvert landið. Innlent 24. júlí 2023 07:46
Hraunrennslið nú alfarið neðanjarðar Hraunrennsli í eldgosinu virðist nú vera alfarið neðanjarðar og gígskálinn virkar einungis sem bullsjóðandi pottur án yfirborðsrennslis. Í kvöld má greina nokkra staði í hraunbreiðunni þaðan sem hraun vellur upp úr hraunrásum neðanjarðar. Innlent 23. júlí 2023 23:21
Gosmóðan verður degi lengur og líkur á súru regni Rigning á höfuðborgarsvæðinu, þar sem gosmóðan hefur hangið í loftinu gæti orðið súr. Náttúruvásérfræðingur segist telja litlar líkur á að rigningin verði til trafala til skamms tíma. Veðurspá bendir til þess að gosmóðan verði degi lengur yfir höfuðborgarsvæðinu en áður var reiknað með. Nú gera spár ráð fyrir að bæti í vind á miðvikudag en ekki þriðjudag, líkt og áður var gert ráð fyrir. Innlent 23. júlí 2023 22:10
Veggir gígsins muni hrynja innan skamms Eldfjallafræðingur segir að líklegt sé að gígurinn við Litla-Hrút muni bresta von bráðar. Brotni hann til austurs gæti stórslys orðið verði ekki búið að rýma svæðið. Hann segir að líkur séu á að nýr gígur opnist austur af Keili. Innlent 23. júlí 2023 19:15
Gossvæðinu alltaf lokað klukkan sex Lögreglan á Suðurnesjum lokaði aðgangi að gosstöðvunum við Litla-Hrút klukkan 18 í gær og í tilkynningu segir að lokunin hafi gengið vandræðalaust fyrir sig. Nú hefur verið ákveðið að svæðinu verði lokað klukkan 18 á meðan eldgos varir. Innlent 23. júlí 2023 09:38
Frekari ákvörðun um opnun tekin í fyrramálið: „Viðbragðsaðilar að hörfa frá“ Vel gekk í kvöld þegar gossvæðið við Litla-Hrút á Reykjanesi var lokað almenningi af lögreglu. Björgunarsveitarmaður segir þó aðeins hafa þurft að rökræða við einhverja göngugarpa. Ákvörðun um mögulega opnun svæðisins á morgun verður tekin í fyrramálið. Mikil mengun er nú á svæðinu. Innlent 22. júlí 2023 19:29
Gosmóðan komin til Vestfjarða: „Ef þú getur ekki komið að gosinu kemur gosið til þín“ Gosmóðan úr eldgosinu í Litla-Hrúti er nú komin til Vestfjarða. Búast má við því að hún haldi þaðan til austurs í átt að Tröllaskaga. Innlent 22. júlí 2023 15:01
„Við höfðum af þessu miklar áhyggjur“ Gossvæðinu á Reykjanesi verður lokað klukkan sex í kvöld vegna slæmrar hegðunar fólks. Lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir líklegt að aðgengi fólks að eldstöðvunum verði áfram takmarkað á næstunni enda sé engin ástæða fyrir því að ferðamenn geti haft aðgang að eldstöðvum allan sólarhringinn. Innlent 22. júlí 2023 12:31
Loka gosstöðvunum snemma vegna slæmrar hegðunar Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákveðið að loka aðgengi að gosstöðvunum við Litla-Hrút klukkan 18 í kvöld. „Erfiðlega gekk að hafa stjórn á fólki í gærkvöldi og nú sem oft áður er það tiltölulega fámennur hópur sem skemmir fyrir öllum hinum. Það hefur framangreindar afleiðingar að loka þarf gönguleiðum tímanlega,“ segir í tilkynningu. Innlent 22. júlí 2023 09:32
Gosmóðan kemur og fer Því hefur verið spáð að gosmóða muni liggja yfir höfuðborgarsvæðinu fram á þriðjudag en árrisulir íbúar höfuðborgarsvæðisins tóku vafalítið eftir því í morgun að hún er heldur minni en í gær. Veðurfræðingur segir þó að hún komi líklegast til með að leggjast af þunga á svæðið síðdegis. Innlent 22. júlí 2023 08:11
Gosmóðan ekki á förum í bráð Veðurfræðingur býst við áframhaldandi gosmóðu og mengun á höfuðborgarsvæðinu og nágrenni fram yfir helgi. Ekki er búist við vaxandi suðaustanátt fyrr en á þriðjudag. Loftgæðasérfræðingur hjá Umhverfisstofnun hvetur þá sem eru veikir fyrir að hafa hægt um sig. Innlent 21. júlí 2023 22:35
Fangaði augnablikið þegar veggur hrundi í hraunið: „Stórkostlegt að verða vitni að þessu“ Myndband náðist af því þegar hraunáin úr gosinu við Litla-Hrút gleypti jarðveg sem myndað hafði vegg við hraunána í gær. Augnablikið má horfa á hér að neðan. Innlent 21. júlí 2023 20:25
Esjan sést ekki fyrir gosmóðu Gosmóða liggur yfir höfuðborginni í bland við þokuloft og því lítið skyggni á svæðinu. Esjan sem vanalega sést út um gluggann frá höfuðstöðvum fréttastofu er horfin inn í móðuna. Innlent 21. júlí 2023 13:58
Gosmóða suðvestanlands og á Suðurlandi Nokkur gosmóða er nú suðvestanlands og á Suðurlandi sem dregur úr skyggni auk þess sem SO2 gasmengun eða brennisteinsdíoxíð frá eldgosinu mælist í dag á svæðinu frá Vogum að Sandgerði. Lögreglan á Suðurnesjum leggur áherslu á að ekki sé farið með ung börn að gosstöðvunum á Reykjanesi en aðstoða þurfti fjölskyldu með tvo lítil úrvinda börn á svæðinu í nótt. Innlent 21. júlí 2023 12:01
Aðstoðuðu fjölskyldu með úrvinda börn Gossvæðið við Litla Hrút á Reykjanesi er opið í dag en lögregla leggur áherslu á að ekki sé farið með börn á svæðið og að fólk með hjarta- eða lungnasjúkdóma gangi ekki að gosinu. Innlent 21. júlí 2023 09:40
Sigurður mælir með Krókamýri en Þórlaug segir leiðina erfiðari Vigdísarvallavegur var opnaður umferð á ný í dag sem gefur færi á styttri gönguleið að gosstöðvunum. Skiptar skoðanir eru þó um hvort hún sé betri. Innlent 20. júlí 2023 23:23
Eldgosin verða kröftugri og hraun mun fara til byggða Ármann Höskuldsson eldfjallafræðingur segir að búast megi við sífellt kröftugri eldgosum í þeirri hrinu Reykjaneselda sem nú sé hafin. Eldgos verði nær þéttbýli og með hraunrennsli til byggða. Innlent 20. júlí 2023 21:17
„Myndi ekki mæla með þessari leið við óvant göngufólk“ Tómas Guðbjartsson, göngugarpur og hjarta-og lungnaskurðlæknir, segist ekki mæla með því fyrir hvern sem er að fara Vigdísarvallaleið að gosstöðvunum við Litla-Hrút. Opnað var fyrir umferð um leiðina í dag. Innlent 20. júlí 2023 17:41
Stækka hættusvæðið við gosstöðvarnar Veðurstofa Íslands hefur uppfært hættumatskortið fyrir gosstöðvarnar við Litla-Hrút. Hættusvæðið þar sem ný gosop geta myndast hefur nú verið stækkað í suðvestur. Innlent 20. júlí 2023 14:58
Biðla til fólks að ganga ekki frá Vigdísarvallavegi Almannavarnir biðla til fólks að ganga ekki að Litla-Hrúti frá Vigdísarvallavegi sem var opnaður í morgun. Þó það sé styttra að eldgosinu í beinni loftlínu þá er engin stikuð gönguleið þaðan og leiðin því bæði erfiðari og hættulegri. Innlent 20. júlí 2023 14:02
Ný, styttri en vandasöm leið opnuð göngufólki í dag Opið verður að gosstöðvunum við Litla-Hrút í dag frá Suðurstrandavegi. Litlar breytingar hafa orðið á gosstöðvunum í nótt. Ný gönguleið að gosinu verður opnuð í dag. Innlent 20. júlí 2023 11:36
Lítið vantar upp á að hraun nái yfir vatnaskil til Faxaflóa Lítið virðist vanta upp á að hraun frá gosstöðvunum við Litla-Hrút geti farið að renna yfir vatnaskil til norðurs í átt að Faxaflóa og Reykjanesbraut, miðað við myndir sem teknar voru í gær af eldgígnum og hrauntjörninni norðan hans. Innlent 20. júlí 2023 10:40
Opna inn á gosstöðvar að nýju Opnað hefur verið fyrir aðgang að gossvæðinu við Litla-Hrút að nýju. Lokað var fyrir aðgang klukkan fimm í gær vegna lélegs skyggnis á svæðinu. Innlent 20. júlí 2023 10:18
Sami kraftur í gosinu eins og áður en gígurinn hrundi Litlar breytingar virðast hafa orðið á gosstöðvunum við Litla-Hrút í nótt en hraunið rennur nú í gamla farveginum á ný eftir að gígbarmurinn féll saman í fyrrinótt. Innlent 20. júlí 2023 07:45
„Ef gosið stendur nógu lengi þá mun Suðurstrandarvegurinn gefa sig“ Lífsháski skapaðist á gosstöðvunum við Litla-Hrút í nótt þegar gígbarmurinn hrundi skyndilega og glóandi hraunið flæddi niður á miklum hraða. Nokkru áður höfðu ferðamenn, sem stóðu við gíginn, verið reknir burt frá staðnum. Kristján Már Unnarsson var á vettvangi í dag. Innlent 19. júlí 2023 21:42
Stór hraunpollur vestan við gíginn Stór hraunpollur hefur myndast vestan við gíg eldgossins við Litla Hrút. Rannsóknarstofa í eldfjallafræði og náttúruvá við Háskóla Íslands hefur birt nýjar myndir af hraunpollinum. Innlent 19. júlí 2023 15:35