Enn stöðugt streymi í Svartsengi Eldgosið sem hófst á Sundhnúksgígaröðinni þann 29. maí hefur nú staðið í rétt rúmar þrjár vikur og áfram gýs úr einum gíg rétt austan Sundhnúks. Landris helst stöðugt í Svartsengi og því ljóst að meiri kvika flæðir inn í kvikuhólfið en gýs upp úr því. Innlent 20. júní 2024 13:41
„Ég sakna vina minna úr Grindavík“ „Hvenær getum við komist heim til Grindavíkur?“ er haft eftir ónefndu gríndvísku barni í nýrri skýrslu umboðsmanns barna. „Ég sakna vina minna úr Grindavík,“ segir annað barn. Innlent 20. júní 2024 10:35
„Sorglegt að þurfa að rífa þetta hús“ Grindvíkingar syrgja nýlegt íþróttahús bæjarins sem þarf að rífa en segja það einnig nauðsynlegt til að tryggja öryggi. Innlent 19. júní 2024 21:36
Stýra hvorki né stoppa hraunflæði með vatni Slökkvilið og verktakar hafa staðið í ströngu við að halda hraunflæði í skefjum við Svartsengi síðasta sólarhringinn. Innlent 19. júní 2024 21:01
Hætta hraunkælingu og meta stöðuna í dag Slökkviliðsmenn í Grindavík hafa hætt að dæla vatni yfir hraunið sem teygði sig upp yfir varnargarðinn við Svartsengi. Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri almannavarna segir fyrsta hraunkælingaraðgerð frá Heimaeyjargosinu hafa verið tilraun en að þegar hafi verið búið að stöðva framgang hraunsins. Innlent 19. júní 2024 09:15
Hraunkælingin ekki gengið snurðulaust fyrir sig Slökkviliðsmenn á vegum Brunavarna Suðurnesja voru í nótt að dæla vatni á hraun við varnargarðinn við Svartsengi. Kælingin hefur ekki gengið snurðulaust fyrir sig þar sem upp komu vandræði með vatnsþrýstinginn. Innlent 19. júní 2024 07:43
Hraunkælingin gengur vel og heldur áfram í alla nótt Slökkvilið Grindavíkur hóf fyrr í kvöld ásamt úrvalsliði viðbragðsaðila að dæla vatni yfir hraun sem hóf að teygja sig yfir varnargarðinn við Svartsengi. Um er að ræða fyrstu hraunkælingu af þessu tagi síðan í Heimaeyjargosinu. Innlent 18. júní 2024 22:50
Slökkvilið undirbýr hraunkælingu við varnargarð við Svartsengi Í dag fór lítil spýja úr eldgosinu við Sundhnúk yfir varnargarð við Sýlingafell. Varnargarðurinn ver orkuverið í Svartsengi. Slökkvilið Grindavíkur vinnur á vettvangi auk ýmissa verktaka á vegum almannavarna á vinnutækjum sem eru reyna að reyna að stöðva flæði yfir varnargarðinn. Ekki hefur sú aðferð verið notuð síðan í Vestmannaeyjagosinu 1973. Innlent 18. júní 2024 18:36
Eldgosið stöðugt og gosmengun til norðurs Eldgosið á Reykjanesi er stöðugt og áfram gýs úr einum gýg. Hraun flæðir mestmegnis til norðurs meðfram Sýlingarfelli. Landris heldur áfram í Svartsengi á svipuðum hraða, sem er þó minni en áður en eldgosið hófst. Gasmengun fer til norðvesturs og síðar norðurs í dag og mun mælast á norðanverðu Reykjanesi. Færist í átt til höfuðborgarsvæðisins á morgun. Innlent 18. júní 2024 14:10
Rífa íþróttahúsið Bæjarstjórn Grindavíkur hefur falið sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs að hefja undirbúningsvinnu við niðurrif á Hópinu, fjölnotaíþróttahúsi Grindvíkinga. Innlent 18. júní 2024 09:06
Kostnaður ríkissjóðs vegna Grindavíkur um áttatíu milljarðar Áætlað er að kostnaður ríkissjóðs vegna fjölbreyttra stuðningsaðgerða við Grindavík í kjölfar jarðhræringa á Reykjanesskaga árin 2023 og 2024 nemi um áttatíu milljörðum króna. Fjármálaráðuneytið hefur tekið saman kostnað ríkisins sem fellur til vegna ýmissa stuðningsaðgerða við Grindavík. Þyngst vegu framlag ríkissjóðs vegna kaupa Þórkötlu á íbúðarhúsnæði í Grindavík. Innlent 14. júní 2024 15:33
Fáu spáð en vel fylgst með Vangaveltur eru margar um goslok við Grindavík, landris og -sig við Svartsengi og tengsl gosvirkninnar og þriggja eldgosa við Fagradalsfjall. Grunnmæligögn eru traust, um jarðskorpuhreyfingar, rúmmálsbreytingar í geymsluhólfi kviku og efnasamsetningu hennar, bæði úr gosunum við Grindavík og Fagradalsfjall. Gögnin segja forvitnilega sögu. Skoðun 14. júní 2024 15:00
Mikið svifryk í borginni og gosmóða líkleg síðar í dag Styrkur svifryks (PM10) var hár á nokkrum mælistöðvum í borginni í morgun, 14. júní. Skv. upplýsingum frá Veðurstofu Íslands orsakast hækkuð gildi af foksandi frá hálendinu og getur rykið legið yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Innlent 14. júní 2024 10:55
Telur að þetta geti orðið síðasta eldgosið á Sundhnúkareininni Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur telur að yfirstandandi eldgos geti orðið það síðasta á Sundhnúkagígaröðinni og að umbrotin þar gætu stöðvast síðsumars. Hann vonar að hægt verði að huga að því að byggja Grindavík upp aftur með haustinu. Innlent 13. júní 2024 20:40
Nokkuð mikil gasmengun frá gosinu heldur áfram næstu daga Gasmengun frá eldgosinu við Sundhnúk er nokkuð mikil og líklegt er að hún haldi áfram næstu daga. Hraunbreiðan í þessu gosi er orðin 9,2 km2 og rúmmál um 41 milljón m3 og þar með sú stærsta síðan í desember 2023. Innlent 13. júní 2024 16:20
Lokað í Bláa lóninu vegna gasmengunar Lokað verður í Bláa lóninu til hádegis í það minnsta í dag vegna slæmra loftgæða. Í nótt var suðaustanátt og gasmengun úr eldgosinu í Sundhnúkagígum blés til norðvesturs yfir Reykjanesbæ og Bláa lónið. Innlent 13. júní 2024 08:31
„Fylgir því þvílík sæla að koma hingað aftur“ Hópur kylfinga var mættur að leika sinn daglega hring á Húsatóftavelli í nágreni Grindavíkur í gær en völlurinn var opnaður á nýjan leik á sunnudaginn síðastliðinn eftir óvissu sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Meðal þeirra var einn af stofnendum Golfklúbbs Grindavíkur sem segir því fylgja þvílík sæla að geta snúið aftur á völlinn. Golf 12. júní 2024 10:01
Dregur úr gasmengun með auknum vindi næstu daga Gasmengun minnkar töluvert í dag og næstu daga með auknum vindi. Gosið mallar áfram og meginstraumur hrauns mjakast til norðurs og norðvesturs. Innlent 12. júní 2024 08:28
„Loksins koma jákvæðar fréttir frá Grindavík“ Fengist hefur leyfi til þess að opna Húsatóftavöll við Grindavík á nýjan leik eftir mikla óvissutíma sökum jarðhræringa á Reykjanesskaga. Kylfingar eru nú byrjaðir að flykkjast á völlinn á ný. „Loksins einhverjar jákvæðar fréttir frá Grindavík,“ segir framkvæmdastjóri Golfklúbbs Grindavíkur. Golf 12. júní 2024 08:00
Mesta mengunin vegna gossins mælst í Skotlandi Gosmóða frá eldgosinu í Sundhnúksgígaröðinni hefur legið yfir höfuðborgarsvæðinu og nágrenni í dag. Þorsteinn Jóhannsson, umhverfisfræðingur hjá Umhverfisstofnun, segir vindátt stjórna því hvert gosmóðan fer hverju sinni. Í dag hafi verið hægviðri í fyrsta sinn frá því að gosið hófst og því hafi móðan lagst yfir höfuðborgarsvæðið. Innlent 11. júní 2024 21:47
Áhöfnum tveggja skipa Þorbjarnar sagt upp Áhöfn tveggja skipa í eigu Þorbjarnar í Grindavík hefur verið sagt upp, en gert er ráð fyrir því að skipverjunum verði útveguð ný störf. Gunnar Tómasson framkvæmdastjóri Þorbjarnar segir í samtali við Vísi að verið sé að endurskipuleggja útgerðina fyrir haustið. Viðskipti innlent 11. júní 2024 16:12
Skynsamlegt að loka gluggum og setja á hringrásarstillingu í bílnum Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi og má því búast við að það gjósi aftur á Reykjanesskaganum. Gosmóða mælist yfir höfuðborginni og víðar á Suðurlandi og Suðvesturlandi og er fólki ráðlagt frá því að hreyfa sig utandyra. Innlent 11. júní 2024 13:01
Loka vinnuskólanum og leikskólabörnum haldið innandyra Vinnuskóla Kópavogs auk Vinnuskóla Reykjavíkur var lokað í dag og starfsmenn sendir heim sökum slæmra loftgæða af völdum gosmengunar. Þá verður leikskólabörnum í Kópavogi haldið innandyra og ekki send í útivist í dag af sömu ástæðu. Innlent 11. júní 2024 12:06
Landris hafið að nýju og má gera ráð fyrir öðru gosi Landris er hafið á nýjan leik undir Svartsengi en það þýðir að það muni líklegast gjósa aftur á Reykjanesi. Áttunda eldgosið sem stendur yfir um þessar mundir mun því líklegast ekki verða það síðasta á svæðinu. Innlent 11. júní 2024 10:41
Gosmóða yfir höfuðborgarsvæðinu í dag Aðeins meiri virkni var í eldgosinu á Sundhnúksgígaröðinni í nótt en daginn áður og gígurinn ansi líflegur að sögn Bjarka Kaldalóns Friis, náttúruvársérfræðings hjá Veðurstofu Íslands. Innlent 11. júní 2024 07:41
„Þessi kostnaður hverfur ekki“ Fyrstu umræðu um fjórðu fjáraukalög ríkisstjórnarinnar lauk á ellefta tímanum á Alþingi í kvöld. Frumvarpið fer nú í aðra umræðu og aftur til fjárlaganefndar. Þingmenn stjórnarandstöðu ræddu óvæntan kostnað og afleiðingar aukinna útgjalda í ræðum sínum á þingi í kvöld. Ráðherra vísaði í svörum sínum til ófyrirsjáanlegra aðstæðna vegna náttúruhamfara. Innlent 10. júní 2024 23:42
Til skoðunar að færa Grindavíkurveg vestar Framkvæmdir við Grindavíkurveg hefjast væntanlega í vikunni en til skoðunar er að færa veginn vestar eftir að hraun rann yfir hann um helgina. Vegurinn fór um helgina undir hraun í þriðja sinn síðan eldvirknin hófst við Sundhnúk. Innlent 10. júní 2024 21:45
Gróðureldar villa um fyrir Veðurstofunni „Það sést ekki mikið. Það er erfitt að sjá á þessum vefmyndavélum hvar hrauntungan er. Maður sér reyk hér og þar en síðan er auðvitað mikið um gróðureld sem felur hvað er að gerast.“ Innlent 10. júní 2024 09:48
Áætlanir gera ráð fyrir að hraun fari yfir lagnir Hrauntunga úr eldgosinu við Sundhnjúka er nú í um 700 metra fjarlægð frá lögnum orkuversins HS orku. Framkvæmdastjóri segir að búið sé að gera allt sem hægt er til að tryggja órofna starfsemi orkuverksins og að atburðir gærdagsins hafi ekki haft nein áhrif. Innlent 9. júní 2024 12:01
Vonast til að opna Bláa lónið á næstu dögum Bláa lónið verður lokað í dag og á morgun hið minnsta. Að sögn framkvæmdastjóra er vonast til þess að hægt verði að opna aftur í næstu viku. Skilyrði fyrir opnun eru að tvær flóttaleiðir frá staðnum séu færar. Innlent 9. júní 2024 10:12
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu:„Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent