EM karla í handbolta 2026

EM karla í handbolta 2026

Evrópumótið í handbolta karla fór fram 15. janúar til 1. febrúar 2026 í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Danir urðu Evrópumeistarar og Íslendingar höfnuðu í fjórða sæti.

Leikirnir




    Fréttamynd

    Dagur fékk háa sekt fyrir reiðilesturinn á EM

    Dagur Sigurðsson, landsliðsþjálfari Króatíu í handbolta, hefur verið sektaður um rúma hálfa milljón króna fyrir ræðu sem hann flutti á síðasta Evrópumóti. Króatíska handknattleikssambandið var einnig sektað fyrir að flagga óleyfilegum fána.

    Handbolti

    Fréttir í tímaröð

    Fréttamynd

    „Leiðin­leg tíma­setning á þessum meiðslum“

    Þorsteinn Leó Gunnarsson er kominn aftur á gott skrið eftir meiðsli sem héldu honum frá keppni á EM með íslenska landsliðinu. Hann hefði viljað spila meira á því móti en eftir á að hyggja segir hann landsliðsþjálfarann hafa tekið rétta ákvörðun.

    Handbolti
    Fréttamynd

    „Gagn­rýnin og við­bjóðurinn aldrei verið meiri“

    Íslenski landsliðsmarkvörðurinn Björgvin Páll Gústavsson var hársbreidd frá því að verða fyrsti íslenski handboltamaðurinn til að vinna þrenn verðlaun á stórmótum. Björgvin Páll og félagar í íslenska karlalandsliðinu urðu að sætta sig við fjórða sætið á Evrópumótinu en hann hafði áður unnið silfur á Ólympíuleikunum í Peking 2008 og brons á Evrópumótinu í Austurríki 2010.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Brand miðlar málum eftir föst skot Al­freðs

    Eftir að hafa stýrt Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í handbolta ákvað Alfreð Gíslason að senda loks gagnrýnendum sínum tóninn. Einn forvera hans í starfi, hinn þykkmotta Heiner Brand, er sammála Alfreð en segir suma gagnrýni þó eiga fullan rétt á sér.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Erum við ó­sann­gjörn við Ómar Inga sem þjóð?

    Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp Evrópumótið í Besta sætinu þar sem íslenska landliðið náði fjórða sæti og spilaði í fyrsta sinn um verðlaun í sextán ár. Sérfræðingarnir ræddu sérstaklega frammistöðu fyrirliðans Ómars Inga Magnússonar.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Metáhorf á Ís­landi og þriðjungur Dana sá sigurinn

    Áhugi Íslendinga á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta var gífurlegur og það sýna meðal annars áhorfstölur. Aldrei hafa fleiri horft á íþróttaviðburð hér á landi en þegar Ísland mætti Danmörku í undanúrslitum síðasta föstudag.

    Handbolti
    Fréttamynd

    „Al­gjör þvæla að fara að rugga því eitt­hvað“

    Fyrrum landsliðsmaður í handbolta telur að íslenska landsliðið geti farið alla leið á næstu árum. Þá þarf allt að ganga upp en efniviðurinn er nægilega góður. Ísland hafnaði í fjórða sætinu á Evrópumótinu. Liðið hefur ekki komist í undanúrslit á stórmóti frá árinu 2010 og því skráðu drengirnir nöfn sín í sögubækurnar á síðustu tveimur vikum. Leikmenn liðsins eru flestallir á frábærum aldri og því ætti framtíðin að vera björt.

    Handbolti
    Fréttamynd

    Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðs­son?

    Ein stærsta stjarna nýafstaðins Evrópumeistaramóts í handbolta er án efa Dagur Sigurðsson sem stýrði Króötum til bronsverðlauna og jós úr skálum reiði sinnar á eftirminnilegum blaðamannafundi. Dagur er orðinn svo mikil stjarna að króatískur förðunarfræðingur setti sig í líki þjálfarans.

    Lífið
    Fréttamynd

    Leynast öflugar ís­lenskar skyttur ein­hvers staðar?

    Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu.

    Handbolti