Handbolti

Erum við ó­sann­gjörn við Ómar Inga sem þjóð?

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ómar Ingi Magnússon endaði sem fjórði markahæsti leikmaður Evrópumótsins og skoraði 18 mörk úr 21 skoti í síðustu tveimur leikjunum.
Ómar Ingi Magnússon endaði sem fjórði markahæsti leikmaður Evrópumótsins og skoraði 18 mörk úr 21 skoti í síðustu tveimur leikjunum. Vísir/Vilhelm

Einar Jónsson og Rúnar Kárason mættu til Stefáns Árna Pálssonar og gerðu upp Evrópumótið í Besta sætinu þar sem íslenska landliðið náði fjórða sæti og spilaði í fyrsta sinn um verðlaun í sextán ár. Sérfræðingarnir ræddu sérstaklega frammistöðu fyrirliðans Ómars Inga Magnússonar.

Ómar Ingi Magnússon endaði mótið með tólf mörk úr tólf skotum á móti Króatíu og átti á undan mjög góðan leik á móti Dönum. Það var allt annað að sjá hann í þessum tveimur síðustu leikjum heldur en lengst af í mótinu.

„Ómar var bara fínn en ég hefði nú alveg viljað sjá hann taka tvö til þrjú skot í viðbót. Hann var með hundrað prósent nýtingu og á bara mjög flottan leik. Hann var bara sjóðandi heitur þannig að það hefði mátt setja upp meira fyrir hann. Hann tók eitt gott þarna fyrir utan en ég hefði viljað sjá kannski tvö þannig í viðbót. Ég sá nokkur tækifæri til að skjóta þarna en ég sé bara tækifæri til að skjóta fyrir utan,“ sagði Rúnar Kárason.

„Hann var bara flottur, leiðtogi og ískaldur á vítalínunni. Það þarf bara alveg hrikaleg gæði til að taka svona mörg vítaskot og skora úr þeim öllum,“ sagði Rúnar en Ómar nýtti öll tíu vítin sín í leiknum og fiskaði þrjú þeirra sjálfur.

Hefði sennilega verið enn betri í þeim leik

„Maður sá hann svolítið í síðasta leik á móti Dönum, þá steig gaurinn upp. Hann þekkti sviðið og ef við hefðum verið að spila til úrslita áðan hefði hann sennilega verið enn betri í þeim leik,“ sagði Stefán.

Ómar Ingi endaði sem fjórði markahæsti leikmaður Evrópumótsins og skoraði 18 mörk úr 21 skoti í síðustu tveimur leikjunum.

„Geltandi líka á dómarana og mér finnst Ómar hafa vaxið sem manneskja og leiðtogi eða allavegana svona sjáanlega. Kannski hefur hann alltaf verið svona,“ sagði Rúnar.

Hann fær að heyra það

„Erum við ósanngjörn við Ómar sem þjóð? Hann fær að heyra það,“ sagði Stefán.

„Ef Messi getur ekkert með Argentínu heldurðu þá að menn séu bara að klappa hann upp. Það verður allt brjálað. Það er bara þannig. Mér finnst bara að við eigum að geta gert kröfur á þessa stráka. Ég segi það fullum fetum að þetta var ekki gott mót hjá Ómari, því miður. Hann var frábær á móti Dönum en ég vil bara sjá hann gera betur,“ sagði Einar.

„Ég veit ekki hverju er um að kenna. Það þarf bara að greina það,“ sagði Einar. Honum finnst samlífið hjá Gísla Þorgeiri Kristjánssyni og Ómari Inga ekki ganga alveg upp í landsliðinu þótt þeir spili saman með félagsliði.

Jafnvægið á milli Ómars og Gísla ekki nógu gott

„Mér finnst jafnvægið á milli Ómars og Gísla ekki nógu gott. Það hefur einhvern veginn farið af Ómari yfir á Gísla núna. Ómar hefur náttúrulega átt frábær mót þegar hann hefur verið heill síðustu ár en þá hefur Gísli ekki fundið sig. Nú var Gísli algjörlega „outstanding“ og þá finnst mér Ómar einhvern veginn ekki vera að finna sig í raun og veru. Hann var ágætur en ekki að því marki sem ég tel að hans geta sé,“ sagði Einar.

„Mér finnst bara Ómar vera stórkostlegur leikmaður en mér finnst þetta bara mót undir [yfir] pari hjá honum,“ sagði Einar.

Það má hlusta á meira um þetta og annað í kringum íslenska landsliðið í Besta sætinu þar sem menn voru að gera upp lokaleikinn á móti Króatíu sem og allt mótið. Allur þátturinn er aðgengilegur hér fyrir neðan sem og á öllum hlaðvarpssveitum.


Tengdar fréttir

Gísli Þor­geir og allir hinir verðlaunastrákar sögunnar

Gísli Þorgeir Kristjánsson varð tíundi íslenski leikmaðurinn til að vera valinn í úrvalslið stórmóts í handbolta karla þegar hann var valinn í úrvalslið Evrópumótsins í handbolta í gær. Ísland hefur átt leikmann í úrvalsliði fimmtán sinnum frá því farið var að velja slík lið.

Leynast öflugar ís­lenskar skyttur ein­hvers staðar?

Sérfræðingarnir í Besta sætinu veltu því fyrir sér hvað vantar í íslenska liðið til að liðið taki næsta skref og nái mögulega í verðlaun á stórmótum á næstu árum. Það er einkum eitt sem þeir kalla eftir í kjölfarið að liðið tapaði tveimur síðustu leikjum sínum á Evrópumótinu og endaði í fjórða sætinu.

„Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“

Sérfræðingar Besta sætisins segja ekkert annað koma til greina en að bjóða Snorra Steini Guðjónssyni, landsliðsþjálfara Íslands, nýjan samning fram yfir Ólympíuleikana 2028. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×