
Newcastle fór illa með tíu leikmenn Fulham
Newcastle United gerði góða ferð í höfuðborgina þegar liðið heimsótti nýliða Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Newcastle United gerði góða ferð í höfuðborgina þegar liðið heimsótti nýliða Fulham í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Leandro Trossard reyndist hetja Brighton er hann tryggði liðinu stig gegn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag. Lokatölur 3-3, en Trossard skoraði öll mörk gestanna.
Graham Potter stýrði Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í dag þegar liðið heimsótti Crystal Palace í Lundúnarslag.
Granit Xhaka, miðjumaður Arsenal, var eðlilega kátur eftir 3-1 sigur liðsins gegn erkifjendum sínum í tottenham í ensku úrvalsdeildinni í dag. Xhaka skoraði þriðja mark Arsenal í dag og segir liðið hafa verið með yfirburði á vellinum frá upphafi til enda.
Arsenal vann öruggan 3-1 sigur er liðið tók á móti erkifjendum sínum í Tottenham í toppslag ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.
Franski framherjinn Cristopher Nkunku hefur nú þegar staðist læknisskoðun hjá Chelsea og mun ganga í raðir félagsins frá RB Leipzig eftir tímabilið.
Erki ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, hefur fulla trú á því að sínir menn geti sigrað Englandsmeistara Manchester City er liðin mætast í borgarslag í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Hann segir einnig að liðið ætli ekki að einbeita sér eingöngu að því að stöðva norsku markamaskínuna Erling Braut Haaland.
Brasilíumaðurinn Emerson Royal, hinn skrautlegi bakvörður Tottenham, hefur á undanförnum mánuðum eytt tæpum 130 milljónum króna í hinar ýmsu lausnir til að bæta sig sem knattspyrnumaður. Hann hefur meðal annars ráðið njósnara til að fylgjast með Achraf Hakimi, bakverði PSG.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, hefur komið liðsmanni sínum, Trent Alexander-Arnold, til varnar eftir að sá síðarnefndi fékk ekki tækifæri með enska landsliðinu í nýliðnu verkefni liðsins í Þjóðadeildinni.
Erik ten Hag, knattspyrnustjóri Manchester United, segist enn hafa trú á fyrirliða liðsins, Harry Maguire, þrátt fyrir þá gagnrýni sem varnarmaðurinn hefur þurft að þola undanfarnar vikur.
Enska úrvalsdeildarfélagið Newcastle og ástralska félagið Central Coast Mariners hafa komist að samkomulagi um kaupin á hinum 18 ára framherja Garang Kuol.
Alfie Haaland, fyrrum leikmaður Manchester City og faðir norsku markamaskínunnar Erling Braut Haaland, telur að sonur sinn muni ekki stopp lengi hjá Englandsmeisturum Manchester City þar sem hann vilji prófa sig í öllum sterkustu deildum Evrópu.
Enska knattspyrnuliðið Hull City hefur rekið þjálfara liðsins, Georgíumanninn Shota Arveladze, aðeins örfáum klukkustundum fyrir leik Hull og Luton í ensku B-deildinni sem fram fer í kvöld.
Svo virðist sem Nike leggi meiri áherslu á að lokka Erling Haaland til fyrirtækisins frekar en að halda Harry Kane hjá því.
Marcus Rashford, sóknarmaður Manchester United, var í dag útnefndur besti leikmaður septembermánaðar í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Farhad Moshiri, eigandi Everton á Englandi, er sagður vera langt kominn í viðræðum um að selja félagið til bandarísks viðskiptajöfurs. Fátt hefur gengið upp þrátt fyrir mikil fjárútlát í stuttri eigendatíð Moshiris.
West Brom hefur ákveðið að breyta stuttbuxum kvennaliðs félagsins vegna áhyggna vegna blæðinga leikmanna þess.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, er að endurheimta nokkra leikmenn sem glímt hafa við meiðsli undanfarnar vikur fyrir komandi átök liðsins.
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri karlaliðs Liverpool, gerði góðlátlegt grín að hárgreiðslu gríska bakvarðarins Kostas Tsimikas á fyrstu æfingu liðsins eftir landsleikjahlé.
Antonio Conte, þjálfari karlaliðs Tottenham Hotpur í fóbolta, segir orðróm þess efnis að hann sé að hætta hjá félaginu til þess að taka við Juventus að nýju óvirðingu við hann og kollega hans hjá Tórínóliðinu.
Útlit er fyrir að Cristiano Ronaldo verði í byrjunarliði Manchester United, í fyrsta sinn í sjö vikur, þegar liðið mætir meisturum Manchester City í stórleik um helgina í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta.
Sean Dyche, fyrrum stjóri Watford og Burnley, átti gott samband við tónlistargoðið Elton John þegar hann var hjá fyrrnefnda liðinu. Elton var eigandi Watford frá 1976 til 1990 og aftur frá 1997 til 2002 og er heiðursforseti félagsins.
Tími hjá sálfræðingi gæti hjálpað Harry Maguire í þeim vandræðum sem hann glímir við um þessar mundir. Þetta segir Gary Neville, fyrrverandi leikmaður enska landsliðsins.
Þjálfari West Ham United var sérstaklega ánægður með markið sem Dagný Brynjarsdóttir skoraði gegn Chelsea í ensku ofurdeildinni í gær.
Grétar Rafn Steinsson er orðaður við starf tæknilegs ráðgjafa hjá PSV sem leikur í hollensku úrvalsdeildinni í fótbolta. Grétar Rafn starfar í dag fyrir Tottenham Hotspur á Englandi.
Dagný Brynjarsdóttir bar að venju fyrirliðabandið þegar West Ham United heimsótti Englandsmeistara Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Dagný kom West Ham óvænt yfir en heimakonur svöruðu með þremur mörkum og unnu á endanum 3-1 sigur.
Ensk stórlið vilja feta í fótspor Manchester City og eiga fjölda félaga sem mynda net um hnöttinn. City Group, sem á Manchester City, á einnig meirihluta í félögum í ellefu öðrum löndum um allan heim.
Leiðin í byrjunarlið enska landsliðsins virðist vera býsna löng fyrir Trent Alexander-Arnold, leikmann Liverpool, allavega ef marka má orð landsliðsþjálfarans Gareths Southgate.
Douglas Luiz, leikmaður enska úrvalsdeildarliðsins Aston Villa, hefur gagnrýnt brasilískan sjónvarpsmann harðlega fyrir að hlutgera kærustu hans, fótboltakonuna Alishu Lehmann, sem leikur einnig með Villa.
Ný gögn sýna fram á að ráðherra í ríkisstjórn Boris Johnson, fyrrum forsætisráðherra Bretlands, hafi beitt sér fyrir því að hópur frá Sádí-Arabíu hafi getað fest kaup á enska knattspyrnufélaginu Newcastle United. Kaupin hafa sætt gagnrýni þar sem þau eru sögð hluti af stefnu sadískra yfirvalda til að hreinsa sig af mannréttindabrotum.