Leicester áfram á flautumarki og Sheffield marði Bristol Leicester og Sheffield United eru komin áfram í átta liða úrslit enska bikarsins. Leicester vann 1-0 sigur á Brighton á meðan Sheffield United marði B-deildarliðið Bristol 1-0. Enski boltinn 10. febrúar 2021 21:28
Segir Mourinho hafa gert lítið úr Shaw Ian Wright, sparkspekingur og fyrrum leikmaður til að mynda Arsenal, hreifst ekki af því hvernig Jose Mourinho fór með Luke Shaw á tíma þeirra saman hjá Manchester United. Enski boltinn 10. febrúar 2021 20:01
Swansea engin fyrirstaða fyrir sterkt lið City Manchester City er komið í átta liða úrslit enska bikarsins eftir 3-1 sigur á B-deildarliðinu Swansea er liðin mættust í Wales í kvöld. Enski boltinn 10. febrúar 2021 19:21
Skoski þjarkurinn sem hefur fundið sinn innri framherja Manchester United getur þakkað Scott McTominay fyrir að liðið sé komið í átta liða úrslit ensku bikarkeppninnar. Á undanförnum vikum hefur skoski miðjumaðurinn sýnt á sér nýja hlið og er byrjaður að raða inn mörkum. Enski boltinn 10. febrúar 2021 14:31
Klopp syrgir móður sína en gat ekki mætt í jarðarförina „Hún var mér allt,“ segir Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, um Elisabeth móður sína sem lést 19. janúar síðastliðinn, 81 árs að aldri. Enski boltinn 10. febrúar 2021 14:01
Ancelotti talaði um örlagastund fyrir Everton en veðjar hann á Gylfa í kvöld? Stórleikur kvöldsins í ensku bikarkeppninni er leikur Everton og Tottenham í sextán liða úrslitum ensku bikarkeppninnar sem verður spilaður á Goodison Park. Enski boltinn 10. febrúar 2021 13:31
Tala mikið um fjarveru Van Dijk en Liverpool saknar kannski Keita jafnmikið Tölfræðin hjá Liverpool í ensku úrvalsdeildinni öskrar á einn leikmann og hann heitir ekki Virgil van Dijk. Enski boltinn 10. febrúar 2021 11:00
Liverpool hefur grætt oftar en tapað á markaðnum síðustu ár Liverpool hefur ekki eytt miklu í nýja leikmenn síðustu misseri miðað við nágranna þeirra frá Manchester borg og þetta sést vel í fróðlegri úttekt CIES Football Observatory. Enski boltinn 10. febrúar 2021 08:00
Dagskráin í dag: FA-bikarinn í öllu sínu veldi: Stórleikur í Guttagarði Alls eru fjórir leikir í 16-liða úrslitum FA-bikarsins á dagskrá í dag. Þar ber helst að nefna leik Everton og Tottenham Hotspur. Þá sýnum við beint frá GTS Iceland sem og sérstöku góðgerðamóti í golfi hjá PGA-mótaröðinni. Sport 10. febrúar 2021 06:01
„Við þurftum á góðum úrslitum að halda eftir Everton leikinn“ Ole Gunnar Solskjær sagði að sínir menn hefðu þurft á góðum úrslitum að halda eftir leikinn gegn Everton á dögunum. Það tókst með herkjum en Manchester United er komið í 8-liða úrslit FA-bikarsins eftir 1-0 sigur á West Ham United í framlengdum leik. Fótbolti 9. febrúar 2021 22:35
McTominay tryggði Man Utd sæti í átta liða úrslitum | Sjáðu markið Scott McTominay tryggði Manchester United sæti í 8-liða úrslitum FA-bikarsins á Englandi er liðið vann 1-0 sigur á West Ham United í framlengdum leik á Old Trafford í kvöld. Enski boltinn 9. febrúar 2021 22:05
Jóhann Berg og félagar úr leik | Sjáðu mörkin Jóhann Berg Guðmundsson og liðsfélagar hans í Burnley féllu í kvöld úr leik í FA-bikarnum er liðið tapaði 0-2 á heimavelli fyrir enska B-deildarliðinu Bournemouth. Enski boltinn 9. febrúar 2021 19:30
Man. Utd mætir Real Sociedad á Ítalíu Fyrri leikur enska liðsins Manchester United og spænska liðsins Real Sociedad, í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í fótbolta, mun fara fram í Tórínó á Ítalíu í næstu viku. Enski boltinn 9. febrúar 2021 16:20
Sá útvaldi ætlar að slá gamla liðið sitt út úr bikarnum David Moyes mætir með Hamrana á sinn gamla heimavöll þegar Manchester United og West Ham eigast við á Old Trafford í sextán liða úrslitum ensku bikarkeppninnar. Enski boltinn 9. febrúar 2021 15:31
Arsenal getur ekki farið til Portúgals og mætir Benfica í Róm Fyrri leikur Benfica og Arsenal í 32-liða úrslitum Evrópudeildarinnar fer fram í Róm. Enski boltinn 9. febrúar 2021 14:07
Brighton og Sheff. United hafa „eytt“ meira en Liverpool í síðustu tíu gluggum Manchester City hefur eytt langmestu allra félaga í Evrópu þegar nettóeyðsla síðustu tíu félagsskiptaglugga er skoðuð. Liverpool er 22 sætum neðar á listanum. Enski boltinn 9. febrúar 2021 09:00
„Ég kveikti á sjónvarpinu, sá tuttugu leikmenn í svipuðum treyjum og slökkti aftur“ Það voru margir knattspyrnuáhugamenn sem voru ósáttir með treyjurnar sem Sheffield United og Chelsea spiluðu í er liðin mættust á Bramall Lane á sunnudagskvöldið. Enski boltinn 9. febrúar 2021 07:01
Dagskráin í dag: Hörkuleikur á Old Trafford og Domino's Körfuboltakvöld Fjórar beinar útsendingar eru á dagskrá Stöðvar 2 Sports í dag. Enskur fótbolti, spænskur fótbolti sem og Domino’s Körfuboltakvöld. Sport 9. febrúar 2021 06:01
Segir að Lampard væri enn í starfi ef Werner hefði staðið undir verðmiðanum Greame Souness, stjóri Chelsea, segir að ef Timo Werner hefði gert það sem hann hefði verið keyptur til Chelsea til þess að gera - þá væri Frank Lampard enn stjóri Chelsea. Enski boltinn 8. febrúar 2021 23:01
Daily Mirror: Ramos vill til Man. United Sergio Ramos, varnarmaðurinn og fyrirliði Real Madrid, rennur út af samningi í sumar og það lítur allt út fyrir að spænski varnarmaðurinn sé á leið frá félaginu. Enski boltinn 8. febrúar 2021 22:30
Bielsa hafði betur í slag reynsluboltanna Leeds vann í kvöld 2-0 sigur á Crystal Palace á heimavelli. Sigurinn skýtur Leeds upp í tíunda sæti deildarinnar og upp fyrir meðal annars Arsenal. Enski boltinn 8. febrúar 2021 21:56
Fjölskyldan fékk sendar morðhótanir eftir rauða spjaldið Mike Dean hefur beðið um að þurfa ekki að dæma í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta um næstu helgi eftir að fjölskyldu hans bárust morðhótanir í hans garð. Enski boltinn 8. febrúar 2021 12:31
Boltastrákur á Etihad fyrir nokkrum árum en núna í aðalhlutverki í sigri á meisturunum Phil Foden átti frábæran leik þegar Manchester City vann Englandsmeistara Liverpool, 1-4, í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Ekki er langt síðan Foden var boltastrákur á Etihad, heimavelli City. Enski boltinn 8. febrúar 2021 11:00
Guardiola í góðum málum með allt nema vítin: Ederson gæti tekið næsta víti Pep Guardiola, knattspyrnustjóri Manchester City, getur ekki kvartað yfir miklu þessa dagana en City jók forskot sitt á toppi ensku úrvalsdeildarinnar með 4-1 stórsigri á Liverpool á Anfield í gær. Enski boltinn 8. febrúar 2021 10:01
Klopp sagði að Alisson gæti hafa verið kalt á fótunum Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, kom markverði liðsins, Alisson, til varnar eftir tapið fyrir Manchester City og lagði til áhugaverða útskýringu á mistökum hans. Enski boltinn 8. febrúar 2021 09:02
Jota orðinn bestur í heimi í meiðslunum Diogo Jota er fjölhæfur knattspyrnumaður og það á ekki bara við í raunheimum. Hann er líka öflugur í tölvuheiminum. Enski boltinn 8. febrúar 2021 08:31
Fyrrum fyrirliði Man Utd gagnrýnir hugarfar Liverpool liðsins Roy Keane skilur ekkert í titilvörn Liverpool í ensku úrvalsdeildinni á þessari leiktíð. Enski boltinn 8. febrúar 2021 07:01
Klopp: Erfitt að útskýra þessi úrslit Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, kveðst ekki óánægður með spilamennsku síns liðs þrátt fyrir að hafa steinlegið fyrir Manchester City í stórleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 7. febrúar 2021 23:00
Tuchel sótti þrjú stig á Bramall Lane Chelsea vann þriðja leik sinn í röð undir stjórn Thomas Tuchel þegar liðið heimsótti botnlið Sheffield United í síðasta leik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Enski boltinn 7. febrúar 2021 21:08
Man City steig stórt skref í átt að titlinum með því að gjörsigra Liverpool á Anfield Manchester City er komið í kjörstöðu á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að hafa gengið frá Englandsmeisturum Liverpool í stórleik dagsins á Anfield. Enski boltinn 7. febrúar 2021 18:20