Manchester-liðin fara ekki sömu leið og Liverpool Manchester-liðin tvö, United og City, munu ekki fara sömu leið og nýta sér úrræði stjórnvalda til þess að borga starfsfólki sínu 80% af launum þeirra á meðan kórónuveirufaraldurinn stendur yfir. Fótbolti 6. apríl 2020 10:00
Fyrirliðarnir tala saman á WhatsApp: Einn kallaði launalækkunina ógeðslega Fyrirliðar allra liða í ensku úrvalsdeildinni eru komnir saman á samskiptaforritinu WhatsApp þar sem þeir ræða stöðuna sem upp er komin í fótboltanum en flest lið hafa beðið leikmenn sína um að taka á sig launalækkanir. Fótbolti 6. apríl 2020 08:30
Starfsmaður Liverpool ósáttur og finnst hann ekki vera hluti af „fjölskyldunni“ Það vakti athygli margra þegar Liverpool ákvað um helgina að nýta sér neyðarúrræði stjórnvalda hvað varðar greiðslu til sinna starfsmanna. Einn starfsmaður félagsins er ekki sáttur með ákvörðunina og lætur óánægju sína í ljós við BBC. Fótbolti 6. apríl 2020 08:00
Dagskráin í dag: FA bikarinn, efsta deild karla í knattspyrnu og Atvinnumennirnir okkar Beinum útsendingu frá íþróttaviðburðum hefur snarfækkað vegna útbreiðslu kórónuveirunnar eins og gefur að skilja. Til að mæta því hafa Stöð 2 Sport og hliðarrásir verið dagskrársettar með nýju dagskrárefni og endursýningum af safnefni til að stytta íþróttaþyrstum stundirnar. Sport 6. apríl 2020 06:00
Sjáðu markið sem skaut Macheda upp á stjörnuhimininn fyrir 11 árum Í dag eru komin 11 ár síðan Ferico Macheda, 17 ára ungstirni í herbúðum Manchester United, skoraði sigurmark liðsins gegn Aston Villa en Man Utd háði þá harða baráttu við Liverpool um Englandsmeistaratitilinn. Fótbolti 5. apríl 2020 20:15
Sigurmark Eiðs Smára kom Chelsea á bragðið Sigurmark Eiðs Smára Guðjohnsen í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar leiktíðina 2004/2005 lagði grunninn að fyrsta deildartitli Chelsea í hálfa öld. Fótbolti 5. apríl 2020 19:00
Schmeichel valinn besti markvörður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Þeir Gary Lineker, Alan Shearer og Ian Wright, allt miklir markaskorarar á sínum tíma, völdu í 10 bestu markverði í sögu ensku úrvalsdeildarinnar. Fótbolti 5. apríl 2020 18:00
Fékk fylgdarkonur í partý í miðjum faraldri Kyle Walker, leikmaður Manchester City, hefur beðist afsökunar á því að hafa boðið tveimur fylgdarkonum í partý í síðustu viku þvert á reglur um samkomubann vegna kórónuveirufaraldursins. Enski boltinn 5. apríl 2020 13:45
„Af hverju eru fótboltamenn allt í einu blórabögglarnir?“ Það er verið að gera knattspyrnumenn að blórabögglum, skrifar Wayne Rooney í pistli í Sunday Times varðandi umræðu um það hvernig leikmenn geti best veitt fjárhagslegan stuðning í baráttunni vegna kórónuveirufaraldursins. Enski boltinn 5. apríl 2020 12:45
Lingard orðaður við Arsenal Hinn 27 ára gamli Jesse Lingard hefur átt slæmt tímabil með Manchester United og hvorki skorað mark né átt stoðsendingu í 20 leikjum í ensku úrvalsdeildinni. Hann gæti verið á förum til Arsenal. Enski boltinn 5. apríl 2020 11:15
Segja launalækkun leikmanna skaða heilbrigðiskerfið Leikmannasamtökin á Englandi segja að það myndi bitna á heilbrigðiskerfinu í landinu ef að knattspyrnumenn tækju á sig 30% launalækkun. Ekki náðust samningar um slíka lækkun á fundi samtakanna með ensku úrvalsdeildinni í gær. Enski boltinn 5. apríl 2020 09:45
Ósáttur með ákvörðun Liverpool Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, er allt annað en sáttur með ákvörðun Liverpool að nýta sér neyðarúrræði stjórnvalda. Fótbolti 4. apríl 2020 23:00
Capello leyfði leikmönnum að ráða hver færi í markið Fabio Capello var landsliðsþjálfari Englands frá árunum 2007-2012. Á HM 2010 í Suður-Afríku leyfði hann leikmönnum sínum einfaldlega að velja sér hvaða markvörð þeir vildu fá í markið. Fótbolti 4. apríl 2020 22:15
Telur að það sé verið að stilla knattspyrnumönnum upp við vegg Danny Rose, vinstri bakvörður Newcastle United í ensku úrvalsdeildinni, segir að það sé verið að stilla knattspyrnumönnum upp við vegg þegar kemur að því hvað þeir eigi að gera við launin sín. Fótbolti 4. apríl 2020 21:45
Stuðningsmenn Liverpool brjálaðir Stuðningsmenn enska knattspyrnufélagsins Liverpool eru brjálaðir út í Peter Moore framkvæmdastjóra félagsins fyrir það að nýta sér neyðarúrræði stjórnvalda. Fótbolti 4. apríl 2020 18:00
Ancelotti sagður vilja Real-par Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Everton, vill fá tvo fyrrverandi lærisveina sína frá Real Madrid að sögn spænska blaðsins Marca. Leikmenn sem Real vill losna við. Enski boltinn 4. apríl 2020 16:00
Liverpool nýtir neyðarúrræði stjórnvalda Enska knattspyrnufélagið Liverpool, efsta lið úrvalsdeildarinnar, hefur ákveðið að senda hluta starfsmannahóps síns í leyfi nú þegar algjört fótboltahlé er í Englandi vegna kórónuveirufaraldursins. Enski boltinn 4. apríl 2020 15:00
Hvetur samherja sína til að gefa 30% launa sinna til sjúkrahúsa í Manchester Fyrirliði Manchester United vill að leikmenn liðsins láti gott af sér leiða í baráttunni við kórónuveiruna. Enski boltinn 3. apríl 2020 15:30
Keppni í ensku úrvalsdeildinni hefst ekki í byrjun maí og ekki fyrr en það er öruggt og við hæfi Vilji er fyrir því að klára tímabilið í ensku úrvalsdeildinni. Það verður þó ekki gert fyrr en hættan af völdum kórónuveirufaraldursins er liðin hjá. Enski boltinn 3. apríl 2020 14:25
Gylfi í góða flokknum með Kante, Özil, Keita og Ruben Neves Gylfi Þór Sigurðsson er í góða hópnum meðal miðjumanna ensku úrvalsdeildarinnar í einu umdeildu vali eins aðdáanda deildarinnar. Enski boltinn 3. apríl 2020 14:00
Sancho gæti lokast inni hjá Dortmund ef spilað verður fram í júlí Það gæti verið erfitt fyrir Jadon Sancho, unga Englendinginn í liði Dortmund, að komast burt frá þýska félaginu ef spilað verður í ensku og þýsku úrvalsdeildinni inn í júlímánuð. Fótbolti 3. apríl 2020 13:30
Leikmenn Wolves mega ekki fara út í búð Wolves hefur skipað leikmönnum síum að haldast heima og þeir mega meðal annars ekki fara fara út í matvörubúð vegna kórónuveirunnar. Fótbolti 3. apríl 2020 12:00
Ísland og enski: Sóðalegt rautt spjald Guðna Bergs reyndist sögulegt Guðni Bergsson varð fyrsti íslenski knattspyrnumaðurinn til að fá reisupassann í ensku úrvalsdeildinni fyrir rúmum 24 árum síðan. Enski boltinn 3. apríl 2020 10:00
Eitt lið sagt hafa lagt það til að klára ensku úrvalsdeildina í Kína Enska úrvalsdeildin ætlar að gera allt til þess að klára 2019-20 tímabilið og sumar hugmyndir eru vissulega mun öfgakenndari en aðrar. Enski boltinn 3. apríl 2020 09:00
Nýjasta plan UEFA er að klára deildirnar í júlí og ágúst Sports Illustrated greinir frá því á vef sínum í gærkvöldi að nýjasta plan UEFA sé að klára deildirnar í júlí og ágúst. Þetta á að hafa komið fram í bréfi UEFA til félaganna. Fótbolti 3. apríl 2020 07:29
Rangt að láta Liverpool mæta Atlético Madrid Liverpool hefði ekki átt að mæta Atlético Madrid á Anfield í Meistaradeild Evrópu í fótbolta þann 11. mars, segir nýráðinn yfirmaður lýðheilsumála í Liverpool-borg. Enski boltinn 3. apríl 2020 07:00
Manchester United búið að eyða 11,5 milljörðum í Alexis Sanchez Manchester United veðjaði á Alexis Sanchez í janúar 2018 en risasamningur hans hefur ekki skilað neinu til félagsins nema endalausum útgjöldum. Enski boltinn 2. apríl 2020 13:30
Leikmenn í ensku úrvalsdeildinni úr takti við raunveruleikann Það þurfa allir að taka á sig skell á tímum kórónuveirunnar nema kannski leikmenn ensku úrvalsdeildarinnar ef marka má nýjustu fréttirnar frá Englandi. Menn óttast það að leikmenn í ensku deildinni séu ekki tilbúnir að taka á sig launalækkun. Sport 2. apríl 2020 10:45
Stjórn Liverpool hló að fréttum um að Mane sé á leið til Real Madrid Stuðningsmenn Liverpool geta verið aðeins rólegri því félagið ætlar ekki að selja stjörnur sínar í sumar. Enski boltinn 2. apríl 2020 09:30
Rashford vonast til þess að spila með Sancho hjá United Marcus Rashford, framherji Manchester United, segir Jadon Sancho frábæran leikmann og vonast til þess að spila með honum einn daginn en sá síðarnefndi er mikið orðaður við United-liðið þessar vikurnar. Fótbolti 2. apríl 2020 08:30