

Enski boltinn
Fréttir, myndbönd og tölfræði úr ensku deildinni.
Leikirnir

Nýjasti leikmaður Manchester United missir af fyrstu mánuðum tímabilsins
Varnarmaðurinn Leny Yoro, leikmaður Manchester United, mun missa af fyrstu mánuðum ensku úrvalsdeildarinnar vegna meiðsla.

Gallagher samþykkir að fara til Atlético Madrid
Enski landsliðsmaðurinn Conor Gallagher er á leið til spænska úrvalsdeildarfélagsins Atlético Madrid frá Chelsea.

Füllkrug til West Ham
West Ham United hefur keypt þýska framherjann Niclas Füllkrug frá Borussia Dortmund.

Salah í stuði og Carvalho skoraði aftur þegar Liverpool vann Man. Utd
Liverpool vann 3-0 sigur á erkifjendum sínum í Manchester United í æfingarleik í Bandaríkjunum í nótt.

Fjögur norsk mörk í sigri Man. City á Chelsea
Manchester City vann 4-2 sigur á Chelsea í æfingarleik liðanna í kvöld en leikurinn fór fram í Columbus í Ohio fylki í Bandaríkjunum.

Malacia aftur meiddur og missir mikið úr
Tyrell Malacia, vinstri bakvörður hjá enska úrvalsdeildarfélaginu Manchester United verður frá í að minnsta kosti tvo mánuði eftir að hafa meiðst aftur á hné.

Kveður Arsenal með hjartnæmu bréfi
Fulham gekk í gær frá kaupunum á Arsenal manninum Emile Smith Rowe sem yfirgefur nú uppeldisfélagið sitt.

Newcastle vill fá Guéhi í vörnina
Marc Guéhi, varnarmaður Crystal Palace og enska landsliðsins, er ofarlega á óskalista Newcastle United.

Ný taktík Arne Slot hjá Liverpool vekur athygli
Liverpool hefur unnið tvo fyrstu opinberu leiki sína undir stjórn hollenska stjórans Arne Slot og byrjar því undirbúningstímabilið vel.

Svar Klopp skýrt: Yrðu mesti álitshnekkir fótboltasögunnar
Jürgen Klopp, fyrrum knattspyrnustjóri Liverpool, er ekki tilbúin að segja hann sé hættur afskiptum af fótbolta. Hann lokaði engu að síður á möguleikann á því að taka við enska fótboltalandsliðinu.

Craig Shakespeare látinn
Fyrrverandi knattspyrnustjóri Leicester City, Craig Shakespeare, er látinn, sextugur að aldri.

Tilboð samþykkt í Gallagher en launakröfurnar gætu reynst of háar
Conor Gallagher vildi ekki skrifa undir samningsframlengingu við Chelsea og félagið hefur því samþykkt tilboð í hann frá Atletico Madrid. Gallagher er talinn spenntur fyrir skiptum til höfuðborgar Spánar en launakröfur hans gætu reynst of háar.

Meiðslin hrannast upp hjá Man. Utd
Æfingaferð Manchester United til Bandaríkjanna er að taka sinn toll því hver leikmaðurinn á fætur öðrum meiðist.

Fabio skoraði þegar Liverpool vann Arsenal
Liverpool tapaði kannski feluleiknum á móti Stefáni Teiti Þórðarsyni og félögum í Prestum en þeir byrja vel undir stjórn Arene Slot fyrir opnum dyrum.

Manchester City gengst við brotum
Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City gegnst við því að hafa ítrekað brotið reglu L.33 í regluverki ensku úrvalsdeildarinnar. Reglan snýr að upphafstíma leikja sem og áframhaldi þeirra eftir hálfleikshlé. Félagið mun greiða sekt sem nemur rúmum tveimur milljónum punda.

West Ham leitar að framherja og vill fá Füllkrug
West Ham hefur hafið viðræður við Borussia Dortmund um kaup á þýska landsliðsframherjanum Niklas Füllkrug.

Staða Toney í uppnámi
Staða enska framherjans Ivan Toney, sóknarmanns enska úrvalsdeildarfélagsins Brentford, hefur gjörbreyst eftir að maðurinn sem félagið hafði hugsað sér sem arftaka hans meiddist á hné og verður lengi frá.

Man. Utd. kaupir danska undrabarnið sem skoraði tíu mörk gegn Liverpool
Sextán ára gamall Dani að nafni Chido Obi-Martin er við það að ganga til liðs við Manchester United frá Arsenal, þar sem hann hefur verið undanfarin tvö ár og raðað inn mörkum með unglingaliðinu.

Eins og staðan er í dag útilokar Klopp að snúa aftur í þjálfun
Jurgen Klopp, fyrrverandi knattspyrnustjóri enska úrvalsdeildarfélagsins Liverpool, segir að eins og staðan sé í dag útiloki hann að snúa aftur í þjálfun. Afstaða sem gæti breyst innan nokkurra mánaða en Þjóðverjinn segist of ungur til þess að taka sér ekkert fyrir hendur.

Nýi 52 milljóna punda leikmaður Man. Utd á hækjum
Ferill Leny Yoro með Manchester United byrjaði ekki vel því hann meiddist strax í fyrsta leik. Nú lítur út fyrir að meiðslin gætu verið alvarleg.

Fulham kaupir Smith Rowe og skilur Liverpool eitt eftir
Liverpool er eina félagið í fimm bestu deildum Evrópu sem hefur ekki keypt leikmann fyrir komandi tímabil.

Skytturnar kynna Calafiori til leiks
Enska knattspyrnufélagið Arsenal hefur staðfest komu varnarmannsins Riccardo Calafiori. Hann kemur frá Bologna og kostar 42 milljónir punda eða tæpan sjö og hálfan milljarð íslenskra króna.

Man. Utd vill hundrað þúsund manna leikvang fyrir árið 2030
Eigendur Manchester United vonast eftir því að byggja nýjan hundrað þúsund manna leikvang á næstu sex árum.

Tottenham sækir annan Kóreumann
Enska úrvalsdeildarliðið Tottenham Hotspur hefur náð samkomulagi við kóreska liðið Gangwon FC um kaupin á Yang Min-hyuk.

Phillips vill fara frá Man City
Miðjumaðurinn Kalvin Phillips vill yfirgefa Englandsmeistara Manchester City. Hann var á láni hjá West Ham United á síðustu leiktíð. Þar spilaði hann svo illa að hann missti sæti sitt í enska landsliðshópnum.

Segir að Liverpool muni spila með „alvöru framherja“ í vetur
Arne Slot, nýráðinn þjálfari enska knattspyrnufélagsins Liverpool, segir að sínir menn muni spila með „alvöru framherja“ á komandi tímabili eða svokallaða níu.

Meiðslamartröð Man Utd heldur áfram
Manchester United tapaði 2-1 gegn Arsenal er liðin mættust í vináttuleik í Bandaríkjunum í nótt. Rasmus Höjlund kom Man United yfir áður en hann fór meiddur af velli. Leny Yoro, hinn nýi miðvörður Manchester-liðsins, fór einnig af velli meiddur.

Nico Williams með eftirsóttari mönnum
Stjórnendur Athletic Bilbao fá engan frið frá helstu stórliðum Evrópu sem hafa mikinn áhuga á að tryggja sér þjónustu vængmannsins Nico Williams eftir frammistöðu hans á EM í sumar.

Håland segir leikmenn hafa verið of þreytta á EM
Erling Håland fékk langt sumarfrí í ár meðan að margir af bestu leikmönnum heims tóku þátt í Evrópumeistaramótinu. Håland segir að þreyta leikmanna hafi haft augljós áhrif á frammistöðu þeirra á mótinu.

Ferðast rúmlega einn hring í kringum hnöttinn í æfingaleiki
Þessa stundina búa félög í ensku úrvalsdeildinni sig undir komandi tímabil. Gríðarlegur munur er á liðunum sem ferðast mest í æfingaleiki og þeim sem ferðast minnst.