Evrópusambandið

Evrópusambandið

Fréttamynd

Sakar Orbán og fé­laga um land­ráð

Péter Magyar, sem kannanir benda til að sé líklegur til að velta Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, úr sessi í komandi kosningum þar í landi, segir að meintar uppljóstranir milli Búdapest og Moskvu um leynilegar upplýsingar Evrópusambandsins verði rannsakaðar. Kannanir benda til þess að flokkur Magyars geti sigrað Fidesz-flokk Orbáns í þingkosningum sem fara fram í næsta mánuði.

Erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Ung­verjar út í kuldann vegna leka til Rússa

Evrópusambandið takmarkar nú hvers konar trúnaðarupplýsingar Ungverjar fá aðgang að og leiðtogar velja að hittast í smærri hópum vegna gruns um að stjórn Viktors Orbán leki upplýsingum í Rússa.

Erlent
Fréttamynd

Að­lögun að ESB sé þegar hluti af dag­legu lífi

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir það hafa angrað sig í umræðunni um boðaða þjóðaratkvæðagreiðslu að minni hlutinn á Alþingi láti eins og þjóðin viti ekki sínu viti. Aðlögun að regluverki Evrópusambandsins sé hluti af daglegu lífi þjóðar og þings og ekkert myndi breytast í þeim efnum með áframhaldandi aðildarviðræðum.

Innlent
Fréttamynd

Leggur til að at­kvæða­greiðslunni verði frestað

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, mun leggja til breytingu á þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við Evrópusambandið, meðal annars þess efnis að atkvæðagreiðslunni verði frestað fram í október.

Innlent
Fréttamynd

Er ekki kominn tími til að afskrímslavæða báknið í Brussel?

Ósjaldan hef ég heyrt þau rök gegn Evrópusambandinu að því fylgi of mikið regluverk, sem hefti nýsköpunargleði, hagsæld, og tækniframfarir. Um leið er oft vísað til frelsisins sem ríkir vestanhafs þar sem afskipti stjórnvalda eru takmörkuð og slíkri stefnu líkt við hreina draumsýn. Sem ung kona, hef ég aðra sýn á málið.

Skoðun
Fréttamynd

Sterkari saman á óvissutímum

Engum dylst að við stöndum frammi fyrir mikilli og vaxandi óvissu í alþjóða- og öryggismálum, sem snertir okkur Íslendinga ekki síður en aðra. Þess vegna setti ríkisstjórnin öryggis- og varnarmál á oddinn.

Skoðun
Fréttamynd

Steinn í vegi aðildar að ESB

Umræðan um að Ísland geti gengið í Evrópusambandið en samt haldið sjávarútveginum utan við sameiginlegu sjávarútvegsstefnuna minnir á dæmisöguna um manninn sem ætlaði að færa stóran stein úr veginum. Vinur hans benti honum á að steinninn væri óhreyfanlegur sökum stærðar og hélt áfram göngu sinni, en sá þrjóski hélt áfram að lemja steininn og berja, ýta við honum og bölva en allt kom fyrir ekki.

Umræðan
Fréttamynd

Fyrri um­ræðu um þjóðar­at­kvæði lokið

Alþingismenn luku í gærkvöldi fyrri umræðu um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við ESB. Þingfundur stóð fram til að verða ellefu þar sem tekist var á um málið en að endingu lauk umræðunni og fer málið nú í síðari umræðu og til meðferðar hjá utanríkismálanefnd Alþingis.

Innlent
Fréttamynd

Fauk í Krist­rúnu í fyrirspurnartíma

Það fauk í Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra í óundirbúnum fyrirspurnum á Alþingi nú fyrir stundu en hún velti fyrir sér hvers kyns leikrit væri í gangi í þingsal; stjórnarandstaðan þráspyrði um sömu atriðin.

Innlent
Fréttamynd

Stakar styrk­veitingar taldar með í upptökutölfræðinni

Fyrrverandi forstöðumaður lagaskriftstofu EFTA segir að ekki sé hægt að líta á aðildarferli að Evrópusambandinu sem framsal réttarkerfisins. Með því að stilla landslögum upp gegn Evrópulögum sé ryki þyrlað í augu fólks og leikur að innleiðingartölfræði sé ekki gagnlegur.

Innlent
Fréttamynd

Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu

Ólöglegt verður að markaðssetja gervigreindarforrit sem geta framleitt kynferðislegt myndefni af raunverulegu fólki í Evrópu ef tillaga sem Evrópusambandið er með til meðferðar nær fram að ganga. Aðgerðirnar koma í kjölfar þess að gervigreindartók samfélagsmiðilsins X dreifði slíkum myndum í vetur.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Evrópa fer á mis við 30 billjóna dala tæki­færi í líf­eyris­málum

Það er ekki auðvelt að umbreyta þungum gegnumstreymiskerfum Frakklands og Þýskalands yfir í sjóðasöfnun eins og tíðkast í Danmörku, Hollandi og Svíþjóð. En ávinningurinn yrði mikill. Ef öll ESB-lönd ættu lífeyriseignir að verðmæti 140% af vergri landsframleiðslu þá myndu þessir sjóðir rúma næstum 30 billjónir Bandaríkjadala.

Umræðan
Fréttamynd

Notum þau verk­færi sem nýtast okkur best

Oft hafa verið hafðar uppi heitstrengingar um að einfalda verði regluverk hér á landi enda líði atvinnulífið og þar með samfélagið allt fyrir flókið kerfi sem á stundum geti virkað sem spennitreyja á umsvif og framfarir.

Skoðun
Fréttamynd

Segir Ís­land geta klárað við­ræður á einu og hálfu ári

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, segir að Ísland gæti orðið 28. aðildarríki Evrópusambandsins. Hægt yrði að klára aðildarviðræður, verði þær samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst, á einu og hálfu ári. Þá þyrfti að halda aðra atkvæðagreiðslu um aðild að sambandinu.

Erlent
Fréttamynd

Kvótahopp og ESB

Í nýlegri grein hér á Vísi fjallar ágætur maður um sjávarauðlindina og hugsanlega ESB-aðild. Hann hafnar þeirri fullyrðingu að við inngöngu myndu erlendir aðilar kaupa upp íslensk skip, leggja niður sjávarpláss og flytja aflann óunninn úr landi. Hann segist hafa „aðeins“ kynnt sér málið og komist að þeirri niðurstöðu að þetta sé einfaldlega ekki rétt. Því miður virðist rannsóknarvinna þessa ágæta manns hafa stoppað áður en komið er að raunverulegum kjarna málsins: Grunnsáttmálum Evrópusambandsins.

Skoðun
Fréttamynd

Krist­rún vísar þögn um ESB-málið á bug

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segist ekki ætla að liggja á skoðunum sínum varðandi þingsályktunartillögu um þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við Evrópusambandið, þvert á fullyrðingar pólitískra andstæðinga hennar þar um.

Innlent