
Annað rútufyrirtækjanna innheimtir og greiðir vask en hitt ekki
Kynnisferðir telja samkeppnina við Leifsstöð ósanngjarna.
Fréttir af ýmsum málum tengdum ferðamennsku á Íslandi.
Kynnisferðir telja samkeppnina við Leifsstöð ósanngjarna.
Lögreglan á Suðurlandi óskaði eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar síðdegis í dag vegna fjögurra ferðamanna sem urðu innlyksa í Kerlingarfjöllum ásamt tveimur íslenskum leiðsögumönnum.
Þriggja hæða hús sem rís við smábátahöfnina á Borgarfirði eystri þykir nýstárlegt í laginu miðað við hefðbundin hafnarmannvirki og vekur forvitni aðkomufólks.
Íslensk kínversk fjölskylda er á öðrum degi í sóttkví hér á landi eftir komuna til Íslands frá Kína. Ástæðan er tilmæli sóttvarnalæknis og almannavarna til að koma í veg fyrir útbreiðslu Wuhan-kórónaveirunnar hér á landi.
Ekki er gert ráð fyrir áhrifum Wuhan-kórónaveirunnar á efnahagslífið í nýjustu spám Seðlabanka Íslands að sögn seðlabankastjóra.
Yfirvöld Kína hafa áhyggjur af því hve mörg flugfélög hafa hætt að fljúga til Kína vegna Wuhan-veirunnar svokölluðu.
Í janúar flutti Icelandair 17% fleiri farþega til Íslands en á sama tíma í fyrra, eða um 103 þúsund farþega, en það er í samræmi við áframhaldandi áherslu Icelandair á ferðamannamarkaðinn til Íslands.
Berglind Svavarsdóttir, formaður Lögmannafélagsins, segist ekki telja að það séu almennt góðir lögmannshættir að mæta á slysstað eða sjúkrahús og bjóða fram þjónustu sína.
Ástralinn Jeremy Ley ferðaðist nýverið til Íslands. Markmiðið var að fara í draumafríið sem hann og eiginkona hans höfðu alltað ætlað sér í. Hún lést nýverið úr krabbameini og því ákvað Ley að láta verða af Íslandsferðinni og mála ferðina, allt fyrir ástina í lífi hans.
Töluvert hefur verið tilkynnt um vasaþjófnað á fjölförnum ferðamannastöðum á Suðurlandi síðustu vikur.
Nature Resort ehf og ÍAV hf. undirrituðu í dag verksamning sem felur í sér að ÍAV verður aðalverktaki við uppbyggingu á baðlóni fyrir Nature Resort ehf við Vesturvör á Kársnesi í Kópavogi.
Leggja á nýjan veg mun vestar en núverandi vegur liggur, með gatnamótum fjær brekkurótum en nær Markarfljótssbrú. Verkinu að vera að fullu lokið fyrir 1. júlí í sumar.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar segir erfitt að spá fram í tímann afleiðingar veirunnar á íslenska ferðaþjónustu. Hópferðabann og niðurfelling flugs hafi strax haft áhrif og þá sérstaklega á hótel og hópfyrirtæki enda sé núna háanna tímabil í þjónustu við kínverska ferðamenn.
Komi til eldgoss þykir líklegast að það verði á sprungu norðvestan Þorbjarnar. Þá myndi fjallið virka eins og varnargarður fyrir Grindvíkinga.
Hratt landris í Svartsengiseldstöðinni, milli Grindavíkur og Bláa lónsins, hefur haldið áfram í dag. Fimm þúsund manns gætu verið innan hættusvæðis, fari svo að eldgos brjótist út.
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður rútufyrirtækisins Grayline, telur að farþegar fyrirtækisins séu mjög duglegir að nota bílbelti, með ákveðnum undantekningum þó.
Fólki hefur fjölgað mikið í þorpinu vegna mikilla umsvifa í ferðaþjónustu. Tæpur helmingur íbúa sveitarfélagsins er erlendir íbúar.
Lögreglan á Suðurnesjum tók í vikunni úr umferð erlendan leiðsögumann sem hvorki hafði atvinnuréttindi né dvalarleyfi hér á landi.
Aðstæður á lánamarkaði og þróun ferðaþjónustunnar eftir fall WOW air kippa forsendunum undan byggingu nýs hótels KEA á Akureyri, sem fyrirhugað var að reisa við Hafnarstræti 80.
Haukur Herbertsson, rekstrarstjóri Mountaineers of Iceland, segir að of mikið hafi verið gert úr því að Veðurstofan hafi gefið út gula viðvörun daginn sem farið var með hóp ferðamanna á vélsleðum við Langjökul.
Bræðurnir John og Eric Jackson fóru á dögunum í skemmtiferð á vegum Depla, eða Eleven Experiences. Þar gengu þeir fjöll, fóru í þyrluferð, veiddu, fóru í hvalaskoðun og margt fleira og var sýnt frá því í myndbandi á YouTube.
Bráðabirgðaniðurstaða krufningar á líkum tveggja kínverskra ferðamanna sem fundust á Sólheimasandi þann 16. janúar síðastliðinn bendir til þess að þau hafi orðið úti í óveðri sem gekk yfir þar dagana á undan.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar horfir til þess að farið verði yfir tilfelli vetrarins þar sem slys hafa orðið á ferðamönnum með tilliti til þess hvernig bæta megi kerfið.
Vegagerðinni barst ábending um hættulegar aðstæður skömmu áður en að alvarlegt slys varð á Skeiðarársandi í vikunni.
Ferðamálastofa gerir athugasemdir við einstaka þætti öryggisáætlunar ferðaþjónustufyrirtækisins Mountaineers of Iceland þótt áætlunin uppfylli formskilyrði 11. greinar laga um Ferðamálastofu nr. 96/2018.
Þau urðu viðskila við hóp sinn í blindbyl á Langjökli. Þau grófu sig í fönn og leituðu skjóls bak við vélsleðann í átta klukkustundir. Ferðaþjónustufyrirtækið fór í ferðina þrátt fyrir slæma veðurspá. Ellefu ára barn fékk kalsár.
Lík tveggja ferðamanna fundust á Sólheimasandi í dag og er talið að um par sé að ræða.
Eiríkur Jónsson segir með ólíkindum hvernig Ferðamálastofa hafi látið ferðaskrifstofuna Farvel teyma sig á asnaeyrunum í fjórtán mánuði. Fjöldi fólks tapaði allt frá hundruðum þúsunda upp í milljónir eftir að Farvel missti rekstrarleyfi.
Framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar telur Björn Leví vaða villu og svíma.
Kurr á fundi rekstraraðila ferðaþjónustu og þingmanna.