Barrichello beit frá sér í Valencia Rubens Barrichello var ökumanna sprettharðastur á götum Valencia í dag á Brawn bíl, en McLaren ökumennirnir Heikki Kovalainen og Lewis Hamilton voru skammt undan.Munaði liðlega 0.1 sekúndu á köppunum þremur. Formúla 1 21. ágúst 2009 10:23
Fyrsta viðtalið við Massa eftir slysið Ítalrlegt sjónvarpsviðtal við brasilíska ökumanninn Felipe Massa verður birt í þættinum Rásmarkið á Stöð 2 Sport í kvöld. Þá verður til umfjöllunar slysið sem hann lenti í á brautinni í Ungtverjalandi. Staðgengill hans, Luca Badoer verður einnig í viðtali í þættinum, en hann hefur verið ökumaður Ferrari í áratug. Formúla 1 20. ágúst 2009 14:36
Stofnandi You Tube fjárfestir í Formúlu 1 Chad Hurley, annar af stofnendum hins vinsæla vefsvæðis You Tube hefur ákveðið að fjárfesta í nýja USF1 liðinu frá Bandaríkjunum. Liðið byrjar að keppa í Formúlu 1 árið 2010. Hurely er margfaldur miljarðamæringur á ameríska vísu og fyrirtækið sem hann stofnaði var selt Google fyrir 1.65 miljarða dala árið 2006. Formúla 1 20. ágúst 2009 12:43
Hamilton stefnir á sigur á Spáni McLaren liðið vann síðasta Formúlu 1 mót og stefnir á annan sigur í röð á Valencia brautinni á Spáni um næstu helgi. Nýr og endurbættur bíll verður í höndum Lewis Hamilton og Heikki Kovalainen. Formúla 1 19. ágúst 2009 14:49
Staðgengill Massa nýtur stuðnings Schumachers Luca Badoer frá Ítalíu ekur í staðinn fyrir Felipe Massa í kappakstrinum í Valencia um helgina. Hann var valinn eftir að ljóst varð að Michael Schumacher getur ekki keppt vegna hálsmeiðsla. Formúla 1 19. ágúst 2009 09:36
Groesjan staðfestur sem ökumaður Renault Frakkinn Romain Goresjan var í dag staðfestur sem ökumaður Renault í stað Nelson Piquet, sem var sagt upp störfum fyrir nokkrum vikum. Groesjan keppir fyrir Renault á Valencia brautinni á Spáni um næstu helgi. Formúla 1 18. ágúst 2009 09:54
Keppnisbanni aflétt af Renault og Alonso FIA aflétti í dag keppnisbanni sem dómarar Formúlu 1mótsins í Ungverjalandi höfðu sett á liðið eftir keppnina, vegna atviks sem kom upp í þjónustuhléi. Formúla 1 17. ágúst 2009 17:48
Ferrari vill Schumacher í bíl 2010 Þó Michael Schumacher hafi ákveðið að keppa ekki i Valencia á Spáni um aðra helgi, þá er enn ekki ljóst hvort hann tekur þátt í öðrum mótum á árinu með Ferrari. Luca Badoer mun keyra bíl Massa í Valencia, en framhaldið er ekki ljóst. Formúla 1 13. ágúst 2009 09:32
Frakkinn Groesjean í stað Nelson Piquet Franski ökumaðurinn Romain Groesejan tekur við hlutverki Nelson Piquet hjá Renault, sem var rekinn úr sæti ökumanns eftir síðasta kappakstur. Groesejan fær sitt fyrsta tækifæri á Valencia brautinni á Spáni, á sama tíma og Luca Badoer ekur í stað Felipe Massa hjá Ferrari. Formúla 1 13. ágúst 2009 08:41
Shumacher: Leiður og vonsvikinn Michael Schumacher er hundsvekktur að geta ekki keppt að sinni í Formúlu 1, vegna hálsmeiðsla sem hann hlaut í mótorhjólakappakstri í febrúar. Ekki er þó útséð með hvort hann keyrir síðar á árinu, eða jafnvel á því næsta samkvæmt fréttum frá Ferrari. Formúla 1 12. ágúst 2009 13:56
Ferrari forsetinn svekktur útaf Schumacher Luca Montezemolo, forseti Ferrari eru verulega svekktur að Michael Schumacher getur ekki keppt. Hann segir að Schumacher hafi verið eins og lítill spenntur strákur þegar honum var boðið að keyra bíl Felipe Massa og honum þyki verulega leitt að geta ekki keppt vegna meiðsla sem hann hlaut í mótorhjólaóhappi í febrúar. Formúla 1 12. ágúst 2009 08:25
Schumacher getur ekki keppt í Valencia Michael Schumacher tilkynnti formlega í morgun að hann getur ekki keppt í Valencia um aðra helgi eins og til stóð. Meiðsli sem hann hlaut í mótorhjólaslysi í febrúar sködduðu hann á hálsi og hann telur ljóst eftir æfingar að það gangi ekki upp að keppa í Formúlu 1 að sinni. Formúla 1 11. ágúst 2009 08:19
Schumacher með 2.2 miljóna öryggishjálm Micheal Schumacher keppir í stað Felipe Massa um aðra helgi og mætir með nýjan Schubert hjálm sem er metin á 2.2 miljónir króna. Formúla 1 10. ágúst 2009 08:12
Schumacher varði brúðkaupsafmælinu í kappakstri Michael Schumacher er eldheitur þessa dagana í undirbúningi fyrir fyrsta Formúlu 1 kappakstur sinn síðan 2006. Hann æfði kart kappakstur í tvo daga í vikunni og svo mikill er áhuginn að á afmæli brúðkaups síns dvaldi hann á kartbraut við Garda vatnið við æfingar. Formúla 1 8. ágúst 2009 08:35
Niki Lauda: Schumacher sá eftir að hætta Austurríkismaðurinn Niki Lauda telur að Michael Schumacher hafi séð eftir að hætt árið 2006 og hann hafi aldrei losnað við kappaksturs bakteríuna. Þess vegna hafi hann farið í mótorhjólakappakstur. Formúla 1 7. ágúst 2009 11:52
Stóru liðin sækjast eftir Nico Rosberg Frank Williams segir að mörg lið hafi áhuga á Nico Rosberg. sem er liðsmaður Williams ásamt Kazuki Nakajima. Rosberg ákvað að vera áfram hjá Williams í fyrra, þó McLaren hefði áhuga á kappanum. Formúla 1 7. ágúst 2009 09:21
Ekki tekist að bjarga BMW BMW liðið sem er hætt að keppa í Formúlu 1 tókst ekki að selja liðið í tæka tíð fyrir undirskrift FOTA keppnisliða við FIA, en skráningu lauk í gær og tólf lið eru skráð í Formúlu 1 frá 2010 til 2011. Formúla 1 6. ágúst 2009 10:38
Ferrari býst ekki við Schumacher kraftaverki Luca Montezemolo, forseti Ferrari segist ekki búast við neinu kraftaverki frá Michael Schumacher þegar hann snýr aftur á kappakstursbrautina. Hann keppir í stað Felipe Massa á Spáni í ágúst. Formúla 1 5. ágúst 2009 13:24
Ferrari í fýlu við Frank Williams Forráðamenn Ferrari eru afar ósáttir að Frank Williams og lið hans hafi sett sig á móti því að Michael Schumacher fái einn æfingadag á 2009 bíl. Williams vill að farið sé að reglum um æfingabann og ekki skapað fordæmi á breytingum. Formúla 1 4. ágúst 2009 17:49
Nelson Piquet: Briatore slátraði mér Brasilíumaðurinn Nelson Piquet hefur fengið uppsagnabréf frá Renault og er ekki sáttur við aðferðir Flavio Briatore. Briatore hefur verið ófeiminn við að gagnrýna Piquet í fjölmiðlum frá því hann hóf að keppa með Renault í fyrra. Formúla 1 3. ágúst 2009 17:24
Massa: Þakklátur að sleppa lifandi Felipe Massa var útstkirfaður af spítalanum í Búdaest í dag, þar sem hann hefur dvalið síðustu 9 daga eftir óhappið í tímatökunni á Hungaroring brautinni. Fyrst var honum var hugað líf, en hann hefur braggast hratt á spítalanum eftir að neyðaraðgerð var framkvæmd á höfði hans. Formúla 1 3. ágúst 2009 12:19
FIA og FOTA semja um Formúlu 1 FIA, aþljóðabílasambandið og FOTA, samtök keppnisliða hafa undirritað samning til 31. desember 2012 sem nær yfir allt sem kemur að mótshaldi, tekjuskiptungu sjónvarpsréttar og öðru sem máli skiptir í rekstri mótaraðarinnar. Formúla 1 2. ágúst 2009 13:28
Schumacher byrjaður að keyra Ferrari Michael Schumacher lætur ekki deigan síga, þó æfingabann milli mót þýði að hann má ekki keyra 2009 Formúlu 1 bíl. Hann er að keyra 2007 Ferrari á Mugello brautinni í dag. Formúla 1 31. júlí 2009 11:20
Endurkoma Schumachers frábær fyrir íþróttina Ralf Schumacher, bróðir Michael Schumacher telur að endurkoma hans sé frábær lyftistöng fyrir íþróttina eftir margar neikvæðir fréttir af íþróttinni síðustu vikurnar. Formúla 1 30. júlí 2009 12:36
Schumacher mætir til leiks í stað Massa Michael Schumacher mun keppa í staðinn fyrir Felipe Masssa í kappakstrsmótinu í Valencia á Spáni í lok ágúst. Þetta var staðfest í dag af Schumacher, en orðrómi um þetta efni var neitað í gær af umboðsmanni hans. Formúla 1 29. júlí 2009 18:43
BMW hættir í Formúlu 1 í lok árs Formúlu 1 lið BMW mun ljúka þessu keppnistímabili, en hættir síðan þátttöku í mótaröðinni. Þetta var tilkynnt á blaðamannafundi í Munchen í dag. Formúla 1 29. júlí 2009 08:29
Massa heldur sjón á báðum augum Læknar tilkynntu í dag að Felipe Massa heldur sjón á báðum augum, en óttast var um vinstra augað sem varð fyrir hnjaski í óhappi hans á laugardaginn. Formúla 1 28. júlí 2009 18:24
Button hefur áhyggjur af gangi mála Jenson Button er ekki alls kostar sáttur við stöðuna hjá Brawn liðinu þessa dagana. Eftir draumabyrjun á árinu hefur hann ekki unnið í þremur síðustu mótum. Um helgina vann Lewis Hamilton sitt fyrsta mót og Mark Webber hefur sótt 15 stiga á forskot Buttons í stigamótinu. Formúla 1 28. júlí 2009 08:29
Neyðaraðgerð bjargaði lífi Massa Brasilíumaðurinn Felipe Massa hefur verið vakinn úr dái, en honum hefur verið haldið meira og minna sofandi síðan hann lenti í óhappi í tímatökum í Búdapest á laugardag. Sérstakur blaðamannafundur var haldin á AEK spítalanum í Búdapest í kvöld. Formúla 1 27. júlí 2009 21:41
Massa braggast hægt og rólega Læknar sem sjá um Felipe Massa á spítla í Búdapest eftir slys tímatökum á laugardaginn segja að líðan hans sé stöðug og fyrstu merki um að hann nái fullri heilsu séu jákvæð. Þó sé enn of snemmt að fullyrða stöðu hans. Formúla 1 27. júlí 2009 11:10