

Fréttir af þekktasta kappakstri í heimi.
Williams-ökuþórinn Pastor Maldonado og kærasta hans Gaby eiga von á sínu fyrsta barni í september. Áhugamenn um Formúlu 1 kannast kannski við Gaby enda er hún fastagestur á öll mót og fylgist með sínum manni keppa við þá bestu í heimi.
Keppnistímabil Lewis Hamilton hefur ekki byrjað neitt sérstaklega vel hjá Mercedes í ár. Hann hefur jafnan klárað mótin á eftir liðsfélaga sínum Nico Rosberg og oftast verið hægari en hann í tímatökum.
Það er tilkomumikið að fylgjast með reyndum hæfileikamönnum stýra sérsmíðuðum og ógnarkraftmiklum bílum í gegnum beygjur. Sumir bókstaflega lifa fyrir það. Aðrir tengja ekki við það.
Williams-liðið í Formúlu 1 verður með Mercedes-vélar á næsta ári. Þetta var staðfest í dag. Williams hefur verið drifið af Renault síðan 2012 eftir að hafa verið í vélavandræðum með Cosworth.
Boðskortið á snekkjuna hans Kimi Raikkönen í Mónakó virðist ekki hafa tilgreint æskilegan klæðnað því þegar félagar hans frá Finnlandi komu í heimsókn höfðu einhverjir gleymt sundskýlunni.
Keppnislið Red Bull og Ferrari í Formúlu 1 eru mjög óánægð með leynidekkjaprófanir Pirelli og Mercedes eftir kappaksturinn á Spáni. Enginn vissi að prófanirnar færu fram, ekki einu sinni FIA sem rannsakar nú hvort einhverjir hafa gerst brotlegir gegn reglum Formúlu 1.
Pastor Maldonado slapp með skrekkinn þegar hann gat gengið frá hörðum árekstri við vegriðið í Mónakó dag. Í kjölfar slyssins var mótið stöðvað tímabundið á meðan hægt var að gera við öryggisveggi.
Romain Grosjean, frakkinn ungi hjá Lotus, verður færður aftur um tíu sæti á ráslínu í Kanada eftir tvær vikur. Hann hlýtur þessa refsingu fyrir að hafa ekið aftan á Daniel Ricciardo á Toro Rosso í Mónakó í dag.
Felipe Massa hefur verið sendur heim af sjúkrahúsinu í Mónakó eftir að hafa verið ekið þangað til frekari skoðunar vegna slyss í kappakstrinum í dag.
Nico Rosberg, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, vann Mónakókappaksturinn í dag. Hann leiddi mótið frá fyrsta hring og hélt forystunni örugglega allt mótið. Keke Rosberg, pabbi Nico, vann mótið fyrir þrjátíu árum, árið 1983.
Nico Rosberg, ökumaður Mercedes-liðsins í Formúlu 1, ætlar að halda með Bayern Munchen í úrslitaleik Meistaradeildarinnar í kvöld. Bayern mætir Borussia Dortmund á Wembley í leik um eftirsóttasta titil Evrópu.
Nico Rosberg verður fremstur á ráslínu í Mónakókappakstrinum á morgun. Hann var fljótastur umhverfis götubrautina þröngu í tímatökunum sem lauk nú rétt í þessu.
Reglubreytingar næsta árs munu skapa erfiðar og flóknar aðstæður fyrir Formúlu 1-ökumenn að mati Alain Prost, fjórfalds heimsmeistara í formúlunni. Prost var á sínum tíma kallaður "Prófessorinn“ vegna einstakrar hugsunar sinnar í bílnum.
McLaren-ökuþórinn Jenson Button segir bíl sinn standa betur að vígi í Mónakó en á öðrum kappakstursbrautum. Ástæðan sé sú að í Mónakó er keppt á hægri götubraut.
Þjóðverjinn Nico Rosberg á Mercedes var langfljótastur á æfingum fyrir kappaksturinn í Mónakó sem fram fer um helgina. Hann var einnig fljótastur í morgun. Liðsfélagi hans Lewis Hamilton varð næstfljótastur.
McLaren-liðið í Formúlu 1 mun knýja bíla sína með Honda-vélum frá árinu 2015. McLaren hefur verið með Mercedes-vélar síðan 1995 og átti þýski bílaframleiðandinn hlut í liðinu þar til nýverið.
Sebastien Loeb, nífaldur heimsmeistari í rallý, segir Pólverjan Robert Kubica geta náð mun betri árangri í rallý en finnanum Kimi Raikkönen tókst. Kubica getur jafnvel barist um titilinn í heimsmeistararallinu.
Yfirmenn Lotus-liðsins í Formúlu 1 segja það væri ósanngjarnt gagnvart þeim liðum sem hafa náð árangrí með Pirelli-dekkin að breyta gúmmíblöndunni. Pirelli íhugar að gera breytingar fyrir breska kappaksturinn vegna gagnrýni á áhrif dekkjanna.
McLaren-liðið í Formúlu 1 hafnar því að Sergio Perez hafi verið beðinn um að taka því rólega í spænska kappakstrinum og berjast ekki við Jenson Button undir lokin. Ökumennirnir börðust af kappi í Barein í apríl.
Dietrich Mateschitz, eigandi Red Bull-liðsins í Formúlu 1, er mjög harðorður þegar hann talar um áhrif Pirelli-dekkjanna á kappaksturinn í ár. Liðið hans hefur undanfarið þurft að sætta sig við verri úrslit en beinn hraði bílanna ætti að skila.
Spánverjinn Fernando Alonso, ökumaður Ferrari-liðsins í Formúlu 1, vann sannfærandi sigur í kappakstrinum á Spáni í dag. Alonso hefur ekki unnið í Barcelona síðan árið 2006 og voru heimamenn því himinlifandi.
Mercedes-liðið mun ræsa báða bílana sína á fremstu tveimur rásstöðunum í spænska kappakstrinum á morgun. Nico Rosberg náð ráspól í tímatökunum og Lewis Hamilton varð annar. Heimsmeistarinn Sebastian Vettel verður þriðji.
McLaren-liðinu gekk ekki vel á föstudagsæfingunum fyrir spánska kappaksturinn sem fram fóru í dag. Þeir Jenson Button og Sergio Perez náðu aðeins tólfta og þrettánda besta tíma á seinni æfingunni.
Þeir Sebastian Vettel og Fernando Alonso kepptust um að eiga besta tíma í æfingum dagsins fyrir kappaksturinn í Barceloan á Spáni sem fram fer um helgina. Vettel hafði betur í seinni æfingunni en Alonso í þeirri fyrri.
Nýtt refsikerfi sem keppnisliðin í Formúlu 1 ræddu sín á milli á Spáni í dag hefur verið samþykkt. Reglunum verður að öllum líkindum breytt í haust þannig að nýjar refsingar taka gildi á næsta ári.
Enn á ný hefur Lewis Hamilton, liðsmaður Mercedes í Formúlu 1, lýst yfir aðdáun sinni á Fernando Alonso, liðsmanni Ferrari. Þeir félagar hafa hins vegar ekki alltaf virt hvorn annan því árið 2007 sprakk McLaren-liðið í loft upp þegar Alonso og Hamilton stóðu í mega deilum.
Kimi Raikkönen, liðsmaður Lotus-liðsins í Formúlu 1, mun aka áfram fyrir sama lið á næsta ári ef Lotus nær að smíða öflugan bíl og halda Kimi í forystu. Gerard Lopez, eigandi liðsins er sannfærður um þetta.
Robert Kubica, pólverjinn sem varð í hræðilegu rallýslysi í febrúar 2010, segist vilja snúa aftur í Formúlu 1 sem fyrst enda sé það eina mótaröðin sem hann vilji taka þátt í. Kubica hefur verið í stífri endurhæfingu þessi þrjú ár og tekið þátt í minniháttar rallýmótum undanfarið.
Keppnisliðin í Formúlu 1 ætla að ræða nýtt refsikerfi fyrir ökumenn yfir keppnishelgina á Spáni eftir viku. Charlie Whiting, keppnisstjóri í formúlunni, ætlar að standa fyrir fundinum.
Fyrrum Formúlu 1-ökuþórinn, Juan-Pablo Montoya, sem keppir nú í NASCAR í Bandaríkjunum rétt missti af sigri í mótaröðinni í gær. Montoya var samt ánægður með að ná að klára mótið.