

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Gary Martin kveður Ísland: „Takk fyrir mig“
Komið er að tímamótum á ferli enska sóknarmannsins Gary Martin sem leikið hefur hér á landi við góðan orðstír nær óslitið frá árinu 2010. Englendingurinn er á leið heim eftir farsælan feril hér á landi og hann þakkar fyrir sig í hjartnæmri færslu á samfélagsmiðlum.

Skandall og ósanngjarnt gagnvart stelpum í fótbolta
Björgvin Karl Gunnarsson, þjálfari kvennaliðs FHL í fótbolta, segir það ósanngjarnt gagnvart stelpum í fótbolta að ekki skuli vera sami fjöldi liða í Bestu deildum karla og kvenna. Kollegi hans í kvennaboltanum er sammála og segir það algjöran skandal að það séu aðeins tíu lið sem skipa Bestu deild kvenna.

Leikdagur í Izmir: Sálfræðihernaður í gangi í Tyrklandi
Þeir Stefán Árni Pálsson, Guðmundur Benediktsson og Kjartan Henry Finnbogason hituðu upp fyrir leik Tyrklands og Íslands í Þjóðadeildinni á þaksvölunum á Renaissance hótelinu í miðborg Izmir.

Afsakar sig með því að segja Frakka vera í tilraunamennsku
Hvað er að gerast hjá Frökkum? Það er ekkert skrýtið að sumir spyrji eftir stórt tap í París fyrir helgi. Landsliðsþjálfarinn hefur ekki áhyggjur og segist vera að prófa sig áfram með nýja leikmenn.

Drottning Lengjudeildarinnar upp í þriðja sinn á fjórum árum
Murielle Tiernan og félagar í Fram tryggðu sér sæti í Bestu deild kvenna í fótbolta á næsta ári með stórsigri á deildarmeisturum FHL í lokaumferðinni.

Gengið vel gegn Tyrkjum: Ferna Arnórs og ógleymanlegt kvöld í Eskisehir
Karlalandsliðið í fótbolta hefur átt góðu gengi að fagna gegn Tyrkjum í gegnum tíðina. Tyrkir hafa aðeins unnið strákana okkar tvisvar í 13 viðureignum liðanna.

Uppselt á leik Tyrklands og Íslands
Uppselt er á leik Tyrklands og Íslands sem fer fram á Gürsel Aksel vellinum í Izmir í Tyrklandi í kvöld.

Ritaði ítarlega grein um Gylfa Þór: „Íslenska þjóðin í hans horni“
Á vef breska miðilsins The Athletic í morgun birtist ítarleg grein um íslenska landsliðsmanninn í fótbolta, Gylfa Þór Sigurðsson leikmann Vals. Í greininni er farið yfir undanfarin tvö ár í lífi leikmannsins og reynt að fá betri mynd af þeirri ákvörðun hans að snúa aftur heim til Íslands og halda áfram með ferilinn hér heima.

Sextán ára frændur bættu met hjá Barca B
Toni Fernández og Guille Fernández eru ekki aðeins jafnaldrar og frændur því þeir eru báðir að skapa sér nafn innan raða Barcelona.

Fór af velli á þrettándu mínútu í síðasta leiknum
Bandaríska knattspyrnukonan Alex Morgan lék sinn síðasta leik á ferlinum í nótt en hún tilkynnti fyrir leikinn að fótboltaskórnir væru að fara upp á hillu.

„Getum hrist aðeins upp í hlutunum“
„Við þurfum einna helst að einbeita okkur að okkur leik, hvernig við ætlum að verjast og hvernig ætlum að sækja. Við erum búnir að greina leikinn þeirra gegn Wales og sáum hvernig þeir spila,“ segir Åge Hareide, landsliðsþjálfari Íslands, eftir æfingu liðsins í Izmir í Tyrklandi í gær.

Segir að Heimir Hallgríms verði að sýna hver sé stjórinn
Fyrrum landsliðsþjálfari Íra hefur smá áhyggjur af því Heimir Hallgrímsson sýni það ekki nógu skýrt hver það sé sem ráði hjá írska fótboltalandsliðinu í dag.

„Á ekki líða fyrir það að vera sonur minn“
Einn efnilegasti knattspyrnumaður landsins, hinn 14 ára gamli Alexander Rafn Pálmason, kom inn á í sinum fyrsta leik í Bestu deildinni á dögunum. Hann hefur verið á reynslu í Danmörku og stefnir þangað aftur.

Van Dijk vill vera áfram hjá Liverpool
Ensku blöðin slá því upp í morgun að fyrirliði Liverpool vilji fá nýjan samning hjá félaginu.

Dagskráin í dag: Hvað gera strákarnir okkar í Tyrklandi?
Eftir flottan sigur gegn Svartfellingum á föstudagskvöld spilar íslenska karlalandsliðið í fótbolta gegn Tyrklandi á útivelli í kvöld, í Þjóðadeild UEFA, í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

England loks tekið úr handbremsu: „Leikmenn eiga allt hrós skilið“
England lagði lærisveina Heimis Hallgrímssonar hjá Írlandi 2-0 með mörkum tveimur fyrrverandi leikmanna yngri landsliða Íra, þeim Declan Rice og Jack Grealish. Sérfræðingar eru á því að nýr þjálfari Englands hafi tekið liðið úr handbremsu.

Dulbjuggust sem Danir en það var ekki nóg
Kvöldið reyndist ansi dýrt fyrir þá 140 Serba sem ætluðu að lauma sér inn á Parken í kvöld, til að horfa á leik Danmerkur og Serbíu í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Ronaldo af bekknum og til bjargar
Hinn 39 ára gamli Cristiano Ronaldo var hetja Portúgals í kvöld þegar liðið vann nauman 2-1 sigur gegn Skotlandi í A-deild Þjóðadeildar UEFA í fótbolta.

Hættur eftir tvö föll en ævinlega þakklátur Selfossi
Björn Sigurbjörnsson er hættur sem þjálfari meistaraflokks kvenna í fótbolta hjá Selfossi eftir þrjú erfið ár. Hann skilur við liðið eftir fall niður um tvær deildir.

Glæsileg hjólhestaspyrna í sigri Dana
Danmörk er með fullt hús stiga eftir tvo leiki í riðli sínum í A-deild Þjóðadeildar UEFA í fótbolta, eftir þægilegan 2-0 sigur gegn Serbum á Parken í dag.

Þriðju hollensku tvíburarnir sem spila fyrir A-landsliðið
Jurrien og Quinten Timber eru tvíburabræður og spiluðu báðir í 5-2 sigri Hollands á Bosníu og Hersegóvínu í Þjóðadeild karla í knattspyrnu á laugardag. Þeir eru þriðja tvíburaparið sem spilar saman fyrr A-landslið Hollendinga.

Fyrirliðinn hefur verið að spila í meiri hita en er í Tyrklandi
„Skrokkurinn er bara góður en það þarf alltaf að taka aðeins á manni eftir svona æfingar þar sem það er gríðarlega stutt á milli leikja,“ segir Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska landsliðsins eftir æfingu liðsins í Izmir í Tyrklandi í dag.

ÍBV nálgast Bestu deildina en Grótta féll
Eyjamenn eru ansi nálægt því að geta fagnað sæti í Bestu deild karla í fótbolta eftir 6-0 risasigur á Grindavík í næstsíðustu umferð Lengjudeildarinnar í dag. Grótta féll en ÍR bjó sér til góða von um að fara í umspil.

Afmælisbarnið Gylfi Þór fær kannski kökusneið
Landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson fagnar 35 ára afmæli sínu í dag. Jóhann Berg Guðmundsson, fyrirliði íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu, segir Gylfa Þór mögulega fá kökusneið í tilefni dagsins en ekki mikið meira en það þar sem það er leikur annað kvöld.

Hlín tryggði Kristianstad mikilvæg þrjú stig á erfiðum útivelli
Hlín Eiríksdóttir gerði sigurmark Kristianstad þegar liðið lagði Hammarby á útivelli með tveimur mörkum gegn einu. Markið kom seint í leiknum.

Svona var blaðamannafundur Íslands fyrir leikinn gegn Tyrklandi
Landsliðsþjálfarinn Åge Hareide og fyrirliðinn Jóhann Berg Guðmundsson sátu fyrir svörum á blaðamannafundi á Gürsel Aksel leikvanginum, degi fyrir leik Íslands gegn Tyrklandi í Þjóðadeildinni í fótbolta.

Þorsteinn Leó hafði betur gegn Stiven og Orri Freyr fer vel af stað
Portúgalska úrvalsdeildin í handbolta er farin af stað og þar eru þrír íslenskir leikmenn í aðalhlutverki. Þorsteinn Leó Gunnarsson og félagar í Porto lögðu Stiven Tobar Valencia og félaga í Benfica að velli á meðan Orri Freyr Þorkelsson og félagar í Sporting byrja af krafti.

Tilbúinn að kaupa Boehly út
Það virðist mikið ósætti meðal eiganda enska knattspyrnuliðsins Chelsea og nú hefur Sky Sports greint frá því að Behdad Eghbali og Clearlake Capital séu tilbúin að kaupa Todd Boehly út en hann hefur verið andlit hinna misheppnuðu eigendaskipta félagsins.

„Ef þetta hefði gerst í karlafótbolta“
„Ef þetta hefði gerst í karlafótbolta,“ skrifar Magnús Örn Helgason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Gróttu um mynd sem birt var af þjálfara FHL og aðstoðarþjálfara Fram eftir sigur síðarnefnda liðsins á því fyrrnefnda í lokaumferð Lengjudeildar kvenna. Með sigrinum tryggði Fram sér sæti í Bestu deild kvenna að ári.

Fjölskyldan í fyrsta sæti hjá Falk sem missti af stórleiknum gegn Bröndby
Rasmus Falk, fyrirliði FC Kaupmannahafnar, missti af nágrannaslagnum gegn Bröndby á dögunum þar sem eiginkona hans, Jacqueline Ann Sofie Falk Østergaard, þurfti að gangast undir aðgerð eftir að hafa fætt fyrirbura fyrr í sumar.