

Fótbolti
Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.

Hljóðið þungt í Dyche: „Það er enginn peningur til“
Sean Dyche, knattspyrnustjóri Everton, var ekki upplitsdjarfur eftir 4-0 tapið fyrir Tottenham í ensku úrvalsdeildinni í gær. Hann segir að félagið eigi ekki pening til að kaupa nýja leikmenn.

Christoph Daum látinn
Einn fremsti fótboltaþjálfari Þýskalands á sínum tíma, Christoph Daum, lést í gær, sjötíu ára að aldri. Banamein hans var lungnakrabbamein.

Nökkvi skoraði í átta marka jafntefli
St. Louis City fór illa að ráði sínu gegn Portland Timbers í MLS-deildinni í Bandaríkjunum í nótt. Nökkvi Þeyr Þórisson skoraði eitt marka liðsins í 4-4 jafntefli.

Markaskorarar West Ham björguðu boltastrák
Tomás Soucek og Jarrod Bowen skoruðu ekki bara mörk West Ham United í sigrinum á Crystal Palace heldur komu þeir einnig boltastrák til bjargar.

Gagnrýndi Rashford: „Hann er ekki krakki lengur“
Alan Shearer, markahæsti leikmaður í sögu ensku úrvalsdeildarinnar, gagnrýndi Marcus Rashford fyrir frammistöðu hans í leik Brighton og Manchester United í gær.

Hógvær Raya segir vörslu gærdagsins ekki hafa verið hans bestu
David Raya, markvörður Arsenal, átti stóran þátt í því að liðið landaði 2-0 sigri er Skytturnar heimsóttu Aston Villa í ensku úrvalsdeildinni í gær.

Segir strax vera komna pressu á Ten Hag
Sparkspekingurinn Martin Keown, fyrrverandi leikmaður Arsenal og enska landsliðsins í knattspyrnu, segir að það se´strax komin pressa á Erik ten Hag, knattspyrnustjóra Manchester United.

Nýliðarnir sækja tíunda leikmann sumarsins
Nýliðar Ipswich hafa fest kaup á enska vængmanninum Jack Clarke. Hann er tíundi leikmaðurinn sem Ipswich kaupir í sumar.

Inter vann öruggan sigur gegn Íslendingaliði Lecce
Ítalíumeistarar Inter Milan vann öruggan 2-0 sigur er liðið tók á móti Íslendingaliði Lecce í ítölsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

Hákon lagði upp mark í sigri Lille
Íslenski landsliðsmaðurinn Hákon Arnar Haraldsson lagði upp fyrra mark Lille er liðið vann 2-0 sigur gegn Angers í 2. umferð frönsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Skytturnar nýttu sér færaklúður Aston Villa
Arsenal vann sterkan 2-0 útisigur er liðið sótti Aston Villa heim í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Markasúpa í leikjum dagsins í Lengjudeildunum
Óhætt er að segja að nóg af mörkum hafi verið skoruð í leikjum dagsins í Lengjudeildum karla og kvenna í dag. Alls litu 29 mörk dagsins ljós í fimm leikjum.

Elías hafði betur í fimm marka Íslendingaslag
Elías Rafn Ólafsson og félagar hans í Midtjylland unnu sterkan 3-2 sigur er liðið tók á móti Íslendingaliði SønderjyskE í dönsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í dag.

Lewandowski tryggði Börsungum stigin þrjú
Robert Lewandowski reyndist hetja Barcelona er liðið vann 2-1 sigur gegn Athletic Bilbao í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld.

West Ham, Fulham og Forest sóttu sína fyrstu sigra
Sex af sjö leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu er nú lokið. West Ham, Fulham og Nottingham Forest sóttu öll sína fyrstu sigra á tímabilinu.

Arnór skoraði sigurmark Blackburn
Blackburn Rovers vann 2-1 sigur á Oxford United í ensku B-deildinni í dag. Arnór Sigurðsson skoraði sigurmark liðsins.

Öruggur sigur Tottenham en viðvörunarbjöllur hringja hjá Everton
Tottenham vann afar öruggan 4-0 sigur er liðið tók á móti Everton í 2. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í dag.

Haaland með þrennu í sigri á nýliðunum
Manchester City er með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili. City vann nýliða Ipswich Town í dag, 4-1. Erling Haaland skoraði þrennu fyrir meistarana.

Ten Hag svekktur: „Verðum að halda áfram allt til loka“
Eins og gerðist margoft á síðasta tímabili fékk Manchester United á sig mark undir lok leiks gegn Brighton í ensku úrvalsdeildinni í dag. Erik ten Hag, knattspyrnustjóri United, segir að leikstjórn liðsins verði að vera betri.

Dramatískur sigur Brighton á United
Joao Pedro tryggði Brighton sigur á Manchester United, 2-1, í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Hann skoraði sigurmarkið þegar fimm mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma.

Guðrún Jóna stýrir Keflavík út tímabilið
Ákveðið hefur verið að Guðrún Jóna Kristjánsdóttir stýri Keflavík í síðustu fjórum leikjum liðsins í Bestu deild kvenna.

Jenas skammast sín og segist hafa haldið framhjá
Jermaine Jenas, sem var rekinn frá BBC fyrir að senda tveimur samstarfskonum sínum óviðeigandi skilaboð, segist skammast sín fyrir það sem hann gerði.

Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um Atla Eðvalds
Í dag fer Reykjavíkurmaraþonið fram þar sem margir hlaupa í þágu góðs málefnis. Þýskur blaðamaður hleypur til minningar um einn dáðasta íþróttamann Íslands.

Styttist í endurfundi hjá Lukaku og Conte
Napoli færist nær því að kaupa belgíska framherjann Romelu Lukaku frá Chelsea.

Bellingham missir líklega af leiknum gegn strákunum hans Heimis
Jude Bellingham missir væntanlega af næstu leikjum enska landsliðsins vegna meiðsla.

Byrjuðu þetta tímabil eins og þeir enduðu það síðasta: Sigurmark á 101. mínútu
Segja má að Þýskalandsmeistarar Bayer Leverkusen hafi tekið upp þráðinn þar sem frá var horfið á síðasta tímabili í upphafsleik þýsku úrvalsdeildarinnar í kvöld.

Jóhann Berg spilaði fyrsta leikinn gegn stjörnunum í Al Ahli
Í morgun var greint frá því að Jóhann Berg Guðmundsson væri genginn í raðir Al Orubah frá Burnley. Í kvöld lék hann svo sinn fyrsta leik fyrir sádi-arabíska félagið.

Andersen aftur til Fulham
Fulham hefur keypt danska landsliðsmanninn Joachim Andersen frá Crystal Palace.

Mikael og félagar tylltu sér á toppinn með stórsigri
Gott gengi Mikaels Neville Anderson og félaga í AGF hélt áfram þegar þeir unnu 0-4 útisigur á Álaborg í dönsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Arne Slot ætlaði ekki að vera svona harðorður um Quansah
Arne Slot, knattspyrnustjóri Liverpool, var á blaðamannafundi í dag spurður út í ákvörðun sína að taka Jarell Quansah af velli í hálfleik á móti Ipswich.