

Allt það helsta sem gerist í fótbolta um víða veröld.
Gleðin var við völd á Norðurálsmótinu á Akranesi, þar sem strákar og stelpur í 7. og 8. flokki skemmtu sér í fótbolta. Andri Már Eggertsson var á svæðinu og ræddi við krakkana í nýjasta þætti Sumarmótanna sem nú má sjá á Vísi.
David Beckham hefur verið lagður inn á spítala af óþekktum ástæðum. Victoria Beckham birti mynd á samfélagsmiðlum af knattspyrnumanninum fyrrverandi í sjúkrarúmi með hægri handlegginn í fatla.
Knattspyrnumaðurinn Albert Guðmundsson og Guðlaug Elísa Jóhannsdóttir eru stödd saman í fríi ásamt börnum sínum tveimur á spænsku eyjunni Ibiza. Bæði hafa birt myndir frá dvölinni á samfélagsmiðlum.
Landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson hefur verið seldur frá danska félaginu AGF til Djurgården í Svíþjóð.
Hinn sextán ára ungi og efnilegi Alexander Máni Guðjónsson hefur verið seldur frá Stjörnunni til danska félagsins Midtyjlland.
Þjálfarinn Pep Guardiola var manna sáttastur með frammistöðu Manchester City í 5-2 sigri gegn Juventus í lokaleik riðlakeppninnar á heimsmeistaramóti félagsliða. Hann segir liðið ekki hafa spilað svona vel í mjög langan tíma.
Real Madrid vann afar öruggan 3-0 sigur gegn RB Salzburg í lokaleik riðlakeppninnar á heimsmeistaramóti félagsliða, endaði þar af leiðandi í efsta sæti H-riðilsins og mætir Juventus í sextán liða úrslitum.
Átján ára leikmaður argentínsks fótboltaliðs frá Buenos Aires lifði það ekki af að leggjast undir hnífinn eftir að hafa orðið fyrir hnémeiðslum.
Cristiano Ronaldo hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við sádi-arabíska félagið Al Nassr og mun því spila áfram á Arabíuskaganum.
Nicolás Otamendi, varnarmaður Benfica og argentínska landsliðsins, hefur ýtt undir væntingar að Lionel Messi verði með á heimsmeistaramótinu á næsta ári.
HamKam hefur samið við nýjan leikmann fyrir baráttuna í norsku úrvalsdeildinni en félagið sagði einnig frá því að sami leikmaður hafi verið að æfa hjá félaginu undir fölsku nafni.
Njarðvík komst í kvöld upp í efsta sæti Lengjudeildar karla í fótbolta eftir 3-1 sigur á nágrönnum sínum i Keflavík.
Manchester City varð í kvöld fyrsta liðið til að vinna alla þrjá leiki sína í riðlinum á heimsmeistarakeppni félagsliða í Bandaríkjunum.
Belgíska kvennalandsliðið í fótbolta vann í kvöld 2-0 sigur á Grikklandi í undirbúningsleik fyrir Evrópumótið í Sviss.
Finnar, mótherjar Íslands í fyrsta leiknum á Evrópumótinu í Sviss, léku í kvöld lokaleik sinn fyrir mótið.
Kylian Mbappé hefur kært gamla félagið sitt, Paris Saint-Germain, á ný og nú fyrir eineltistilburði þegar félagið var að reyna að þvinga hann til að skrifa undir nýjan samning.
Sviss og Noregur, mótherjar íslenska kvennalandsliðsins á Evrópumótinu í Sviss, léku bæði í kvöld síðasta undirbúningsleik sinn fyrir EM.
Serbneska landsliðið sem Ísland mætir á morgun, í generalprufunni fyrir EM kvenna í fótbolta, leikur undir stjórn „kraftaverkakonu“ sem bjó og starfaði lengi á Íslandi. Liðin mætast í Serbíu klukkan 17 að íslenskum tíma.
Rauð hitaviðvörun var við gildi þegar íslenska kvennalandsliðið æfði í smábæ nálægt höfuðborg Serbíu fyrr í dag.
Cristiano Ronaldo hefur nú skrifað undir nýjan samning við sádiarabíska félagið Al-Nassr og heldur því kyrru fyrir hjá félaginu.
Arsenal virðist vera að ganga frá kaupum á Christian Norgaard, fyrirliða Brentford í ensku úrvalsdeildinni. Miðjumaðurinn er sagður spenntur fyrir Meistaradeildarfótbolta á næsta tímabili.
Hinn 15 ára gamli Alexander Rafn Pálmason verður ef að líkum lætur dýrasti leikmaður sem KR hefur selt, þegar að því kemur, en danska knattspyrnufélagið Nordsjælland er sagt líklegast til að landa honum.
Steven Caulker, fyrrverandi leikmaður í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta, er orðinn leikmaður Stjörnunnar í Bestu deildinni.
Milos Kerkez hefur skrifað undir fimm ára samning við Liverpool, vinstri bakvörðurinn kemur frá Bournemouth fyrir fjörutíu milljónir punda.
„Ég er ótrúlega ánægður með það sem ég hef gert og ef ég tek þá ákvörðun að hætta þá væri ég sáttur. Það styttist í að ég ákveði mig,“ segir Birkir Bjarnason, leikjahæsti landsliðsmaður Íslands í fótbolta frá upphafi. Hann liggur undir feldi eftir stormasama lokadaga hjá félagi hans Brescia á Ítalíu.
Kylian Mbappé mætti aftur til æfinga með Real Madrid í gær, fjórum til fimm kílóum léttari eftir að hafa glímt við magakveisu sem sendi hann á spítala. Hann tekur ekki þátt í leik kvöldsins gegn RB Salzburg.
Mikael Neville Anderson, landsliðsmaður í fótbolta og leikmaður AGF í Danmörku, flaug til Stokkhólms í gær og er sagður ætla að semja við sænska félagið Djurgården.
Ítalska liðið Inter er komið áfram í sextán liða úrslit á HM félagsliða eftir 2-0 sigur í nótt gegn River Plate, í leik þar sem tvö rauð spjald fóru á loft.
Íslendingaliðið Preston North End bryddar upp á nýjungum á næsta tímabili og auglýsir TikTok stjörnur framan á búningum sínum. Ekki eru allir stuðningsmenn félagsins sáttir en samningurinn er þó við mikla stuðningsmenn liðsins.
Helena Ólafsdóttir og sérfræðingar hennar í Bestu mörkunum ræddu sérstakt atvik úr leik Fram og Þróttar í Bestu deild kvenna á dögunum.