

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

Vill að sóttvarnalæknir stýri skimunarverkefninu á Keflavíkurflugvelli
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, segir að bæta þurfi samskipti við heilbrigðisráðuneytið. Hann telur eðlilegt að sóttvarnalæknir hafi yfirumsjón með verkefninu skimunum á Keflavíkurflugvelli. Hann eigi í engri baráttu við sýkla- og veirufræðideild Landspítalans.

Kári segir líklegt að Íslensk erfðagreining hjálpi til við skimun á landamærum
Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar kvað það líklegt að til samstarfs Íslenkrar erfðagreiningar og yfirvöldum komi við kórónuveiruskimun á Keflavíkurflugvelli.

EasyJet boðar miklar uppsagnir
Breska lággjaldafélagið EasyJet áformar að segja upp þúsundum manna í starfsliði sínu, eða allt að þrjátíu prósentum starfsmanna.

Yfirstjórn Lufthansa hafnar skilyrðum Evrópusambandsins
Yfirstjórn þýska flugfélagsins Lufthansa hafnaði í dag skilyrðum sem Evrópusambandið setti við björgunarpakka þýskra stjórnvalda til að forða félaginu frá gjaldþroti. Enn á ný er því alls óvíst um framtíð Lufthansa hvar 138 þúsund manns starfa.

Flugumferðarstjórar buðust til að taka á sig launaskerðingu
Engar eiginlegar viðræður áttu sér stað á milli Isavia ANS og Félags íslenskra flugumferðarstjóra áður en gripið var til uppsagna hundrað flugumferðarstjóra í dag, að sögn formanns félagsins. Isavia ANS hafi ekki svarað tilboði félagsins um breytingar á launalið kjarasamninga.

Dótturfélag Isavia segir upp öllum flugumferðarstjórum sínum
Öllum hundrað flugumferðarstjórunum sem stýra umferð um íslenska flugstjórnarsvæðið fyrir dótturfélag Isavia var sagt upp störfum í dag. Þeim verður boðinn nýr ráðningarsamningur með skertu starfshlutfalli í takt við minnkun í flugumferð.

Samningsstaða Icelandair gagnvart Boeing styrkist
Kyrrsetning Boeing Max flugvélanna setti áætlanir Icelandair úr skorðum en félagið á enn eftir að fá tíu af sextán flugvélum sem það pantaði afhentar. Forstjórinn segir samningsstöðu Icelandair gagnvar Boeing styrkjast eftir því sem það dragist að koma flugvélunum í umferð.

Forsætisráðherra segir engan þora á spá um farþegafjölda
Forsætisráðherra segir engan þora að spá til um fjölda farþega til landsins í sumar eftir opnun landamæranna hinn 15. júní. Mikil óvissa ríki áfram um þróun mála í heiminum.

Fangelsaður fyrir að klípa í rass flugþjóns á leið til Íslands
Breskur togarasjómaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur í sex mánaða fangelsi í Bretlandi fyrir að hafa kynferðislega áreitt flugþjón í flugi Easy-Jet til Íslands í október á síðasta ári.

Hægt verður að taka á móti 10 til 15 flugvélum á dag í Keflavík
Ísavia bíður ítarlegri útfærslu á sóttvarnarreglum og framkvæmd þeirra en segir að flugvöllurinn muni ekki verða hindrun í að opna landið á nýjan leik. Flugfélög sýni áhuga á að fljúga aftur til Íslands en séu varkár í yfirlýsingum.

„Ekki fullkomin lausn“ að skima fólk á Keflavíkurflugvelli
Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, segir að það sé ljóst að það þurfi töluvert mikið til og mikinn undirbúning ef það á að skima alla farþega á Keflavíkurflugvelli.

Telur ólíklegt að útboð Icelandair höfði til nýrra fjárfesta
Fyrrverandi forstjóri Icelandair telur ólíklegt að hlutafjárútboð félagsins muni laða til sín marga nýja fjárfesta.

Skipta farþegum í fjórar raðir við komuna til landsins
Farþegum sem koma til landsins verður skipt upp í fjóra hópa á Keflavíkurflugvelli eftir því hvað þeir kjósa þegar opnað verður fyrir millilandaflug 15. júní. Af minnisblaði vinnuhóps um aðferðasvæði við skimun fyrir kórónuveiru á flugvellinum má ráða að mörgum spurningum sé enn ósvarað um hvernig fólki verður hleypt inn í landið.

Geta í mesta lagi prófað 500 ferðamenn á dag
Sýkla- og veirufræðideild Landspítalans er ekki í stakk búin til að taka sýni úr nema 500 farþegum sem koma til landsins á degi hverjum.

Gert að draga úr útblæstri um 50 prósent í skiptum fyrir ríkisaðstoð
Stjórnvöld í Frakklandi hafa sett ströng skilyrði um að flugfélagið Air France dragi hressilega úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda, ætli það sér að fá ríkisaðstoð til að bjarga sér úr ástandinu vegna heimsfaraldursins.

Stærsta flugfélag Suður-Ameríku sækir um gjaldþrotavernd
Flugfélagið LATAM hefur sótt um gjaldþrotavernd í Bandaríkjunum, en líkt og með önnur flugfélög hefur heimsfaraldur kórónuveirunnar leikið flugfélagið grátt.

Þýska ríkið og Lufthansa ná samkomulagi um níu milljarða evra björgunarpakka
Þýska flugfélagið Lufthansa og þýska ríkið hafa náð samkomulagi um níu milljarða evra björgunarpakka ríkisins til handa flugfélaginu.

„Það smellir enginn fingri til að redda fullt af störfum“
„Við vitum að það smellir enginn fingri til að redda fullt af störfum, redda einhverjum milljörðum frá NATO vegna þess að ástandið þar er ekki gott um þessar mundir.“

Göngustígar við Skógafoss lagðir ull af íslensku sauðfé
Ull íslensku sauðkindarinnar hefur fengið nýtt hlutverk, - sem undirlag á göngustíga sem verið er að leggja yfir mýrlendi ofan við Skógafoss. Ullinni þannig ætlað að verja ferðamenn frá því að blotna í fæturna.

Heilbrigði í forgangi varðandi opnun landsins
Heilsa þjóðarinnar er í forgangi hjá heilbrigðisráðherra og sóttvarnalækni vegna opnunar landsins fyrir ferðamenn.

Icelandair stefnir á að hefja flug 15. júní
„Við stefnum á að komast á flug upp úr 15. júní og ná sem fyrst að komast í daglega tíðni til okkar helstu áfangastaða til að byrja með og svo auðvitað fylgjumst við eins og allir aðrir með tilkynningum frá okkar nágrannalöndum um hvenær þau opna,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair.

Segir uppbyggingu hernaðarmannvirkja á Suðurnesjum „krossferð einstakra þingmanna Sjálfstæðisflokksins“
„Þessi verkefni munu skapa yfir 300 ársstörf hér á landi. Þau fela meðal annars í sér endurnýjun á kerfum íslenska loftvarnakerfisins og uppfærslur á ratsjár- og fjarskiptastöðvum, viðhald flugbrautakerfis, viðgerðir og endurbætur á flugvélastæðum og flugskýlum og byggingu þvottastöðvar,“ sagði Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra.

„Ég geri fastlega ráð fyrir því að við setjumst við borðið fyrr eða síðar“
Ríkissáttasemjari hefur ekki boðað til fundar í deilu Flugfreyjufélags Íslands og Icelandair. Formaður Flugfreyjufélagsins segir ríkan samningsvilja hjá þeim.

„Undirliggjandi hótanir“ í viðræðum Icelandair og Flugfreyjufélagsins
Nú er lag að gera algildan kjarasamning og koma þannig í veg fyrir að flugfélög undirbjóði hvort annað á íslenskum vinnumarkaði, að mati forseta ASÍ.

Millljarða arfur Samherjakynslóðanna og framtíð Íslands í Víglínunni
Drífa Snædal forseti Alþýðusambandsins ræðir stöðuna í viðræðum Icelandair og flugfreyja sem og hugmyndafræðilegan ágreining um framtíð Íslands að loknum kórónuveiru faraldri í Víglínunni. Rósa Björg Brynjólfsdóttir mætir einnig í þáttinn til að ræða stöðu þjóðmála eins og hugmyndir um hernaðaruppbyggingu á Suðurnesjum.

„Ég hef aldrei séð svona mikla samstöðu í hópnum“
Mikil samstaða er meðal flugfreyja-og þjóna í kjarabaráttu við Icelandair.

Play nægilega fjármagnað og stefnir á að fljúga í haust
Flugfélagið Play er nægilega vel fjármagnað og er stefnt á að hefja flug í síðasta lagi í haust sagði Arnar Már Magnússon, forstjóri Play, í Reykjavík síðdegis í dag.

Icelandair geti lifað af núverandi ástand til næsta vors
Flugáætlun Icelandair frá því um áramót hefur aðeins verið um þrjú prósent af þeirri áætlun sem lá fyrir um fjölda farþega um áramótin. Venjulega fara flugvélar félagsins í 240 ferðir á viku en þær hafa aðeins verið sex á viku undanfarið.

Tugir fórust í flugslysinu í Pakistan
Að minnsta kosti þrjátíu og sjö fórust og enn fleiri er saknað eftir að pakistönsk farþegaflugvél brotlenti í íbúðahverfi í borginni Karachi í dag. Þremur hefur verið bjargað enn sem komið er, tveimur farþegum og einum íbúa hverfisins.

Hlutafjárútboð Icelandair samþykkt samhljóða af hluthöfum
Hluthafar Icelandair samþykktu á hluthafafundi nú rétt í þessu að heimila stjórn félagsins að fara í hlutafjárútboð í lok júní.