Eldgosið raskar ekki flugumferð Allt flug í dag er samkvæmt áætlun sem gerð var vegna verkfallaflugumferðarstjóra. Þær raskanir sem verða eru því ekki vegna eldgossins. Þetta segir Birgir Olgeirsson hjá PLAY. Innlent 19. desember 2023 08:41
Tvær flugvélar þurftu að hringsóla í skamman tíma Starfsemi á Keflavíkurflugvelli er eðlileg og er flogið bæði til og frá vellinum. Tvær flugvélar Icelandair sem voru á leið til Keflavíkurflugvallar þurftu að hringsóla í skamman tíma á meðan unnin var öskuspá vegna gossins sem hófst um fjóra kílómetra norðaustur af Grindavík klukkan 22:17. Innlent 19. desember 2023 01:19
Flugumferðarstjórar fresta verkfallsaðgerðum Félag flugumferðarstjóra hefur ákveðið að hætta við verkfallsaðgerðir næstkomandi miðvikudag í ljósi tíðinda af eldgosinu. Innlent 18. desember 2023 23:22
Frost í viðræðum flugumferðarstjóra og SA Ekki hefur verið fundað formlega í deilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í dag. Innviðaráðherra segir deiluaðila verða að sýn ábyrgð og leysa deiluna við samningaborðið en útilokar ekki stjórnvöld grípi inn í með lagasetningu. Sáttasemjari segir að litið sé til þess að gera skammtímasamning. Innlent 18. desember 2023 19:21
Ábendingar Hörpu komu lögreglunni á Tenerife að góðum notum Ábendingar Hörpu Rósar Júlíusdóttir, sem hefur um nokkurt skeið komið upplýsingum til lögreglunnar á Tenerife frá Íslendingum sem hafa lent í því að munum sé stolið úr töskum þeirra á flugvellinum, voru mikilvægar rannsókn sem endaði með handtöku fjórtán manna. Innlent 18. desember 2023 13:41
Þolimæði stjórnvalda að þrotum komin Þolinmæði stjórnvalda gagnvart verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er við það að bresta. Innviðaráðherra ætlast til að deiluaðilar setjist að samningaborðinu og leysi deiluna. Aðgerðir flugumferðarstjóra hafa nú þegar haft bein áhrif á ferðatilhögun hátt í þrjátíu þúsund farþega íslensku flugfélaganna. Innlent 18. desember 2023 11:48
Icelandair semur um rekstur flugeldhúss félagsins til tólf ára Icelandair hefur gert tólf ára samning við fyrirtækið Newrest Group um rekstur flugeldhúss Icelandair á Keflarvíkurflugvelli. Newrest tekur við rekstrinum 1. febrúar næstkomandi. Flugeldhúsið er eitt stærsta framleiðslueldhús á Íslandi en þar eru framleiddar veitingar sem flugfélagið býður upp á í flugi. Viðskipti innlent 18. desember 2023 11:14
Fyrstu brottfarir klukkan ellefu Verkfallsaðgerðir Félags íslenskra flugumferðarstjóra héldu áfram í nótt þegar flugumferðarstjórar lögðu niður störf í þriðja skiptið. Verkfallið hefur áhrif á alla umferð um Keflavíkurflugvöll og fjölda flugferða hefur verið frestað. Innlent 18. desember 2023 09:13
Segja frumvarp gegn verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra tilbúið Frumvarp um lög gegn verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er tilbúið í innviðaráðuneytinu og líkur á að það verði lagt fram í vikunni. Innlent 18. desember 2023 06:19
Líkur á að fólk komist ekki heim fyrir jól að aukast talsvert Forstjóri Icelandair segir að líkurnar á að farþegar komist ekki á sinn áfangastað fyrir jól aukist talsvert milli vikna í ljósi þeirrar stöðu sem upp er komin í kjaraviðræðum flugumferðarstjóra og sáttasemjara. Slæmt sé að vita til þess að fólk geti ekki einu sinni talað saman. Innlent 17. desember 2023 22:31
FFR og hafnarverkamenn styðja verkfall flugumferðarstjóra Félag flugmálastarfsmanna ríkisins styður kjarabaráttu Félags íslenskra flugumferðarstjóra. Það kemur fram í tilkynningu sem þeir sendu frá sér í dag. Innlent 17. desember 2023 17:37
Pattstaða í samningaviðræðum og enginn veitir viðtal Vinnustöðvun flugumferðarstjóra hefst að óbreyttu í nótt. Deiluaðilar funduðu síðast á föstudaginn og hefur nýr fundur ekki verið boðaður. Innlent 17. desember 2023 13:20
Þakklátur fyrir fagmennsku og góðvild Sundkappinn söngelski Már Gunnarsson segist gríðarlega ánægður með þjónustu Play í flugi sínu heim til landsins í dag. Hann og hundurinn hans Max voru kampakátir og segja það hafa verið besta flug þeirra til þessa. Lífið 17. desember 2023 11:15
Flugumferðarstjórar bjóði upp á gula viðvörun Forstjóri Icelandair líkir verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra við óveður sem olli félaginu um eins milljarðs króna tjóni fyrir sléttu ári. Aðgerðirnar valdi félaginu miklu tjóni en bitni fyrst og fremst á fólki sem stefnir á ferðalög í kringum hátíðirnar. Innlent 17. desember 2023 08:50
Gular viðvaranir í boði flugumferðarstjóra Nú eru rúmlega tvö ár liðin frá því að Icelandair tók á flug á ný eftir að hafa verið í híði í 18 mánuði vegna Covid faraldursins. Sem betur fer hefur Icelandair og ferðaþjónustan á Íslandi náð sér vel á strik og á fyrstu níu mánuðum þessa árs námu útflutningstekjur Íslendinga vegna flugs og ferðaþjónustu 35% af heildarútflutningstekjum þjóðarinnar. Skoðun 16. desember 2023 22:01
Play breytir áætlunarkerfinu vegna verkfallanna Tímabundnar breytingar verða gerðar á tengileiðakerfi flugfélagsins Play meðan á verkfallshrinu flugumferðarstjóra stendur. Breytingarnar eiga við um flugferðir á mánudag, þriðjudag og miðvikudag. Innlent 16. desember 2023 17:53
Mánuður án flugs gæti kostað 40 milljarða Ætla má að algjör stöðvun flugsamgangna í einn dag vegna verkfalls flugumferðarstjóra myndi kosta hagkerfið 1,5 milljarð króna samkvæmt útreikningum Samtaka atvinnulífsins. Þá myndi slík stöðvun í mánuð kosta það fjörutíu milljarða. Samtök atvinnulífsins segja stöðuna átakanlega. Innlent 16. desember 2023 17:36
Þreföld rangstaða flugumferðarstjóra Stór hluti þjóðarinnar horfir nú í forundran á framgöngu lítillar hálaunastéttar, sem hefur það á valdi sínu að loka landinu, eyjunni norður í höfum - þaðan og þangað sem fólk hefur nánast enga möguleika að ferðast, öðruvísi en með flugi. Skoðun 16. desember 2023 16:01
Segir sáttasemjara valdlausan Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, skrifaði pistil sem birtist á Vísi í dag þar sem hún lýsir verkfalli flugumferðarstjóra á Keflavíkurflugvelli sem skæruaðgerðum og gagnrýnir aðgerðarleysi yfirvalda. Innlent 16. desember 2023 15:34
Kaffiboðið í Karphúsinu Styrkur íslensks vinnumarkaðar endurspeglast í kröftugu og fjölbreyttu atvinnulífi, og lífskjörum sem eru á við það besta gerist í heiminum. Skoðun 16. desember 2023 14:31
Óvíst með fund um helgina og næsta verkfall yfirvofandi Sáttasemjari hjá Ríkissáttasemjara segir stöðuna í kjaradeilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins snúna. Hún verði í sambandi við samninganefndir um helgina en ekkert hafi verið ákveðið með framhaldið. Verði af næstu vinnustöðvunum flugumferðarstjóra mun það hafa áhrif á næstum hundrað flugferðir. Innlent 15. desember 2023 19:04
Ólíklegt að allir komist heim fyrir jól Icelandair segir það ólíklegt að allir farþegar komist á áfangastað fyrir jól að öllu óbreyttu. Er það vegna verkfalls flugumferðastjóra sem hefur valdið umtalsverðri truflun og töfum á flugáætlun flugfélagsins. Innlent 15. desember 2023 18:35
Sáttasemjari frestar fundi um óákveðinn tíma Samninganefndir flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins mættu á boðaðan fund hjá ríkissáttasemjara í morgun. Ekkert varð úr sameiginlegum fundi og á öðrum tímanum í dag ákvað sáttasemjari að fresta fundinum. Nýr fundur í kjaradeilunni hefur ekki verið boðaður. Innlent 15. desember 2023 14:47
Verkfallið boðað með lögmætum hætti BSRB, fyrir hönd Félags íslenskra flugumferðarstjóra, hefur verið sýknað af kröfum Samtaka atvinnulífsins. SA kröfðust þess að viðurkennt yrði með dómi Félagsdóms að verkfall sem Félag íslenskra flugumferðarstjóra hefur boðað og koma á til framkvæmda 18. desember 2023, klukkan 4:00, væri ólögmætt. Innlent 15. desember 2023 14:02
Semja við Erni um flug til Eyja Vegagerðin hefur samið við flugfélagið Erni um flug til Vestmannaeyja. Flognar verða fjórar ferðir í viku á tímabilinu 15. desember til 28. febrúar og verður fyrsta flugið næstkomandi sunnudag. Innlent 15. desember 2023 10:40
Samskiptaleysi olli því að farþegaþotan lenti á sömu braut Kerfisbundin mistök og skortur á samskiptum urðu til þess að farþegaþota Icelandair á leið frá Seattle lenti í október árið 2019 á flugbraut í Keflavík þar sem önnur flugvél var fyrir. Innlent 15. desember 2023 08:16
Enn langt í milli Fundi Félags íslenskra flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í kjaradeilu flugumferðastjóra er lokið. Samningsaðilar funda á ný á morgun klukkan tíu, en næsta vinnustöðvun er næstkomandi mánudag. Innlent 14. desember 2023 18:41
EasyJet stefnir áfram á flug til og frá Akureyri næsta vetur Breska flugfélagið easyJet hefur hafið sölu á flugferðum til Akureyrarflugvallar frá London Gatwick í október og nóvember á næsta ári. Flugfélagið hóf beint flug til Norðurlands í október síðastliðnum og er með ferðir á áætlun tvisvar í viku út mars, á þriðjudögum og laugardögum. Stefnt er að flugi sama tímabil næsta vetur og mun félagið setja fleiri mánuði í sölu þegar nær dregur. Viðskipti innlent 14. desember 2023 11:48
Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hafin Önnur lota verkfallsaðgerða flugumferðarstjóra hófst klukkan fjögur í nótt, en aðgerðirnar hafa áhrif á ferðir þúsunda ferðalanga. Aðgerðirnar nú standa líkt og á þriðjudag til klukkan 10. Innlent 14. desember 2023 06:36
Maðurinn með níu líf Guðmundur Hinrik Hjaltason húsasmíðameistari er sagður vera með níu líf. Í vikunni fór hann inn í logandi bíl, til að losa hann úr handbremsu. Aðgerðin bjargaði líklega húsi Guðmundar frá eldsvoða. Innlent 13. desember 2023 21:47