

Fréttir af flugi
Allt það helsta sem viðkemur flugi.

„Af hverju ættum við að fara í þrot?“
„Af hverju ættum við að fara í þrot?“ spyr Birgir Jónsson, forstjóri flugfélagsins Play, sem kveðst þreyttur á sögusögnum um að félagið sé á barmi gjaldþrots. Hann segir að merki séu um að þrotlaus vinna sé farin að skila sér.

Þrír nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli
Þrír nýir veitingastaðir opna á Keflavíkurflugvelli á þessu ári. Barinn Loksins sem margir kannast við breytist yfir í Loksins Café & Bar.

Faldar myndavélar og leynimakk þegar sá milljónasti flaug til Íslands
Þegar Ikechi Chima Apakama, 32 ára gamall breti, kom til Íslands í síðustu viku hafði hann ekki hugmynd um hann væri milljónasti farþegi flugfélagsins Play. Það vissu hins vegar vinir hans sem fylgdu honum til landsins og skemmtu sér vel.

Von der Leyen svaraði erindi Katrínar en svörin fást ekki afhent
Katrínu Jakobsdóttur barst svarbréf frá Ursulu von der Leyen, forseta framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, við erindi forsætisráðherra frá því í júní í fyrra er varðaði kostnað við losun frá millilandaflugi.

Fundu mennina látna á eldfjallinu
Yfirvöld í Filippseyjum hafa staðfest að mennirnir fjórir sem voru týndir eftir að flugvél brotlenti á Mayon-eldfjallinu séu látnir. Teymi vinnur nú að því að koma líkum mannanna niður af fjallinu.

Fyrirætlanir ESB setji stöðu Íslands í hættu
Fái Ísland ekki undanþágu frá fyrirhuguðum hertum aðgerðum Evrópusambandsins til að sporna við mengun vegna flugsamgangna gæti landið misst stöðu sína sem tengipunktur milli Evrópu og Ameríku, með slæmum afleiðingum fyrir hagkerfið. Þetta segir forstjóri Icelandair.

Fá um 190 þúsund vegna altjóns á ferðatösku af dýrari gerðinni
Icelandair hefur verið gert að greiða viðskiptavinum tæpar 190 þúsund krónur vegna tjóns sem varð á innritaðri ferðatösku af dýrari gerðinni á meðan hún var í vörslu flugfélagsins.

Hafa þurft að aflýsa nokkrum pakkaferðum vegna verkfallsins
Icelandair hefur í nokkrum tilfellum þurft að aflýsa pakkaferðum Icelandair Holidays vegna verkfalls Eflingarstarfsfólks. Verkfallið hafi þó ekki haft áhrif á flugáætlun félagsins og ekki sé ráð fyrir gert að svo verði heldur í fyrirsjáanlegri framtíð.

Jón, Snorri Páll, Sylvía Kristín og Finnur hlutu stjórnunarverðlaun
Fjórir einstaklingar hlutu Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi árið 2023 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Nauthól að viðstöddum forseta Íslands í gær.

Fundu flugvélarflak á eldfjalli
Yfirvöld á Filippseyjum hafa sent björgunarhópa upp á óvirka eldfjallið Mayon í leit að fjórum mönnum sem taldir eru hafa brotlent á fjallinu. Í gær náðu björgunaraðilar að staðsetja flugvélarflak mannanna ofan á fjallinu.

„Þetta er bara svona að búa á þessari eyju“
Annir hafa verið í innanlandsfluginu í dag eftir niðurfellingar flugferða í gær vegna illviðris. Næstu hremmingar íslenskra flugfarþega verða þó líklega ekki vegna veðurs heldur vegna verkfalla.

Upp úr slitnað milli flugmálastarfsmanna og SA
Fundir samninganefnda Félags flugmálastarfsmanna ríkisins og Samtaka atvinnulífsins um gerð nýrra kjarasamninga, sem hafa verið lausir um lengri tíma, hjá ríkissáttasemjara hafa ekki borið árangur. Félagsmenn funduðu í kvöld og blikur eru á lofti varðandi vinnudeiluaðgerðir.

Milljónasti farþeginn fær að fljúga frítt út ævina
Play flutti í morgun milljónasta farþegann en sá fær að fljúga ókeypis með flugfélaginu út ævina. Hinn heppni heitir Ikechi Chima Apakama og er 32 ára gamall Breti. Hann kom hingað til lands frá Liverpool í morgun með tveimur vinum sínum.

Röskun á ferðum um 300 þúsund manns vegna verkfalla
Sólarhringsverkfall þúsunda starfsmanna á sjö þýskum flugvöllum hefur áhrif á ferðir hundruð þúsunda ferðamanna í dag. Búið er að aflýsa þúsundum flugferða víða um Þýskaland.

Play tapaði 6,5 milljörðum króna
Heildartap flugfélagsins Play árið 2022 nemur 6,5 milljörðum króna. Tap sem má rekja til ófærðar á Reykjanesbrautinni í desember er metið á 317 milljónir króna. Heildarfjöldi farþega árið 2022 var 789 þúsund og vonast flugfélagið eftir því að tvöfalda þann fjölda á næsta ári.

Bein útsending: Árshlutauppgjör Play kynnt
Flugfélagið Play mun kynna uppgjör sitt á opnum kynningarfundi sem hefst klukkan 16:15.

Íslenskt flugfélag fjórði stærsti flugrekandi júmbó-þotunnar
Framleiðslu júmbó-risaþotunnar hefur nú verið hætt og hefur síðasta Boeing 747-þotan verið afhent frá verksmiðjunum. Í upprifjun erlendra fjölmiðla á yfir hálfrar aldar sögu hennar hefur komið fram að íslenskt flugfélag er í fjórða sæti yfir stærstu flugrekendur þessarar einstöku flugvélar.

Tilfinningaþrungnir endurfundir móður og átta barna eftir fjögurra ára aðskilnað
Það var tilfinningaþrungin stund í Leifsstöð í dag, þegar Hodman Omar hitti börnin sín átta, eftir fjögurra ára aðskilnað. Hodman Omar er fjörutíu ára gömul, menntuð sem læknir og kemur frá Sómalíu. Hún er gift íslenskum manni, Gunnari Waage og hefur verið hér á landi í fjögur ár sem flóttamaður. Hún neyddist til að flýja heimili sitt í Mogadishu, Sómalíu þar sem hryðjuverkasamtökin al-Shaba höfðu tekið yfir.

Trúir því ekki að verkfallið dragist á langinn
Forstjóri Icelandair segist ekki hafa trú á því að verkfall olíuflutningabílstjóra dragist á langinn. Þetta sagði hann ítrekað í viðtali við fréttastofu nú síðdegis. Að óbreyttu hefst ótímabundið verkfall olíuflutningabílstjóra í Eflingu klukkan tólf á hádegi á morgun.

Mestar áhyggjur að starfsmenn verði bensínlausir og komist ekki til vinnu
Forstjóri flugfélagsins Play segist verulega áhyggjufullur af boðuðum verkföllum hjá Olíudreifingu og Skeljungi. Hann hefur ekki síst áhyggjur yfir því að starfsfólk bæði Play og Isavia komist ekki til vinnu þegar bensínstöðvarnar verða uppiskroppa með eldsneyti.

Ýmsir kostir við njósnabelgi en vont að vera nappaður
Þrátt fyrir að tæknin sé ef til vill gamaldags geta stórþjóðir hagnýtt sér ýmsa kosti loftbelgja til að njósna um keppinauta sína á alþjóðavettvangi. Gallinn er þó sá að það getur verið vont ef upp kemst um njósnabelgina, þar sem ekki sé ólíklegt að það gerist fyrir augum almennings, eins og gerðist yfir Bandaríkjunum á dögunum.

Náði að rétta flugvélina af 800 fetum yfir Kyrrahafi
Flugvél United sem var á leið frá Maui á Havaii til San Fransisco hrapaði skyndilega yfir Kyrrahafi áður en flugmaðurinn náði að rétta hana af um 800 fet fyrir ofan hafið. Þetta gerðist stuttu eftir flugtak í desembermánuði og mátti litlu muna að flugvélin færist.

Búið að aflýsa nánast öllu flugi
Öllu innanlandsflugi hefur verið aflýst. Mikil röskun er á flugi á Keflavíkurflugvelli vegna veðurs. Búið er að aflýsa nánast öllum flugferðum á Keflavíkurflugvelli.

Skúli í Subway fær tugi milljóna frá Icelandair
Icelandair Group ber að greiða Suðurhúsi ehf. tæpar 138 milljónir vegna vangoldinnar húsleigu. Suðurhús er í meirihlutaeigu Skúla í Subway en húsnæðið sem um ræðir hýsir hótelið Konsúlat Hótel við Hafnarstræti 17-19.

Ætti ekki að undrast að erlendir fjárfestar hafi bætt við sig í Icelandair
Gengi flugfélaga hefur hækkað „gríðarlega mikið“ að undanförnu. Algegnt er að félög hafi hækkað um 30 til 40 prósent frá áramótum. Má nefna Icelandair, Finnair, Air France, Lufthansa og Ryanair sem dæmi. EasyJet, WizzAir og American Airlines hafa hækkað um nærri 50 prósent á sama tíma. „Það skildi engan undra að erlendir fjárfestar hafa verið að auka vægi sitt í Icelandair.“

Flugtak inni í háskóla
Sýndarveruleikagleraugu verða héðan í frá notuð í þjálfun flugmanna Icelandair. Búnaðurinn er mjög nákvæmur en með hjálp hans er hægt framkvæma nær allt sem hægt er að gera í flugstjórnarklefanum. Elísabet Inga, skutlaði nokkrum Íslendingum til Tenerife með hjálp gleraugnanna í dag.

Fljúga til Feneyja í sumar
Flugfélagið Play mun fljúga til Feneyja á Ítalíu í sumar. Fyrsta flugið verður þann 29. júní og mun félagið fljúga til borgarinnar út september.

Þrjár flugvélar þurftu að hætta við lendingu í Keflavík
Snúa þurfti við þremur flugvélum sem áttu að lenda á Keflavíkurflugvelli í kringum klukkan 14 í dag. Upplýsingafulltrúi Isavia segir að lélegt skyggni sé á flugvellinum og þess vegna hafi vélunum verið snúið við.

Flutti inn 55 eða 47 pakkningar af kókaíni innvortis
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt konu í tíu mánaða fangelsi fyrir að hafa reynt að smygla um 700 grömmum af kókaíni með flugi til landsins í nóvember síðastliðinn.

Allt hafi farið tiltölulega vel í hvellinum sem kom og fór hratt
Óveðrið sem gekk yfir landið í morgun virðist vera að renna sitt skeið og er reiknað með að óvissustigi almannavarna verði aflétt fljótlega eftir hádegi. Áfram er þungfært á vegum víða um land en flugsamgöngur eru að komast í eðlilegt horf. Almannavarnir þakka fyrir að fáir hafi verið á ferð.