
Leita enn að því sem féll í sjóinn
Enn er verið að að athuga hvort hægt sé að endurheimta þá hluta Skylark Micro eldflaugarinnar sem féllu í sjóinn eftir vel heppnað eldflaugaskot á Langanesi um helgina.
Fréttir af geimvísindum og geimferðum.
Enn er verið að að athuga hvort hægt sé að endurheimta þá hluta Skylark Micro eldflaugarinnar sem féllu í sjóinn eftir vel heppnað eldflaugaskot á Langanesi um helgina.
Eldflaug var skotið upp af Langanesi um klukkan tíu í morgun.
Annan daginn í röð er of hvasst á skotstað á Langanesi í dag þar sem skoska fyrirtækið Skyrora hyggst skjóta upp tilraunaeldflaug.
Starfsmönnum fyrirtækisins SpaceX tókst í gærkvöldi að fljúga frumgerð að Starship geimfarinu á loft og lenda því aftur.
Bandarísku geimfararnir Doug Hurley og Bob Behnken lentu nú á sjöunda tímanum á jörðu eftir tveggja mánaða dvöl í Alþjóðlegu geimstöðunni.
Áætluð lending er klukkan 18:40 að íslenskum tíma.
Tveir bandarískir geimfarar sem voru þeir fyrstu til að fara út í geim með einkafyrirtækinu SpaceX eru lagðir af stað heim til jarðar frá Alþjóðlegu geimstöðinni.
Ef mannveran ætlar sér að búa úti í geim þarf allt að vera til staðar. Menn eins og Elon Musk, forstjóri SpaceX, hafa nú þegar gert áætlanir um að fólk geti í framtíðinni einfaldlega flutt til Mars og búið þar.
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna og United Launch Alliance ætla að skjóta vélmenninu Perseverance af stað til mars í dag.
Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, stefnir á að skjóta geimfari af stað til Mars í vikunni.
Tveir gasrisar sjást á braut um stjörnu sem líkist sólinni okkar á fyrstu myndinni sem stjarnvísindamenn hafa náð af sólkerfi með fleiri en einum hnetti.
Kínverjar skutu í nótt á loft geimfari sem mun flytja könnunarfar til plánetunnar Mars.
Geimferðastofnun Sameinuðu arabísku furstadæmanna hefur sett stefnuna á rauðu plánetuna Mars en könnunarhnettinum Hope var skotið á loft japönsku geimstöðinni Tanegashima í gær.
Fjöldi áður óséðra smárra sólblossa sem vísindamenn kalla „bálkesti“ kom í ljós á fyrstu nærmyndum geimfarsins Solar Orbiter af yfirborði sólarinnar sem voru birtar í dag. Bálkestirnir eru taldir geta haft áhrif á hitastig kórónu sólarinnar.
Geimfarinn vinsæli, Chris Hadfield, er margreyndur í sínu fagi og fór hann á dögunum yfir þekktar geimfaramyndir á YouTube-síðu Vanity Fair og útskýrir fyrir áhorfendum hvort atriði í slíkum myndum geti í raun og veru átt sér stað.
Vísindamenn á vegum Evrópsku geimvísindastofnunarinnar hafa unnið að uppbyggingu og hönnun tunglhíbýlis í Stefánshelli í Hallmundarhrauni í vikunni. Markmiðið er að hanna tímabundinn dvalarstað fyrir tunglfara.
Óvenjumassamikill berghnöttur sem stjörnufræðingar fundu þétt upp við móðurstjörnu sína virðist vera kjarni stórrar reikistjörnu á borð við gasrisann Júpíter. Slíkur kjarni hefur aldrei áður fundist og getur fundurinn hjálpað vísindamönnum að skilja betur innviði gasrisa.
Starfsmenn fyrirtækisins SpaceX munu ekki sitja auðum höndum, þó þeir hafi náð þeim merka árangri fyrir rúmri viku síðan að vera fyrsta einkafyrirtækið til að skjóta mönnum út í geim. Nú verður þróun Starship-geimfarsins sett í forgang hjá fyrirtækinu.
Fyrsta mannaða geimskotið frá Bandaríkjunum í tæpan áratug og allra fyrsta mannaða geimskot einkafyrirtækis, heppnaðist fullkomlega í gærkvöldi.
Líklegt er að veðrið muni aftur leika starfsmenn NASA og SpaceX grátt í dag.
Frumgerð fyrirtækisins SpaceX af Starship geimfarinu sprakk í loft upp eftir tilraun á hreyfli geimfarsins í Texas í gær.
Geimferðafyrirtækið SpaceX hyggst nú gera aðra tilraun til að koma þeim Doug Hurley og Bob Behnken út í geim og um borð í alþjóðlegu geimstöðina (ISS).
Fréttir hafa verið á kreiki um nokkuð skeið sem snúa að því að stórleikarinn Tom Cruise stefni á að fara út í geim og taka þar upp kvikmynd.
Yfirmaður NASA er borubrattur fyrir laugardaginn þegar ný tilraun verður gerð til að skjóta tveimur geimförum út í geim.
Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) og SpaceX ætla að reyna við tímamóta geimskot í kvöld.
Allt virðist klárt fyrir fyrsta mannaða geimskotið frá Bandaríkjunum í tæpan áratug.
Starfsmönnum fyrirtækisins Virgin Orbit, sem er í eigu auðjöfursins Richard Branson, mistókst í gærkvöldi að skjóta eldflaug út í geim.
Myndir sem hópur stjörnufræðinga hefur birt eru taldar þær fyrstu af reikistjörnu í fæðingu í nýju sólkerfi sem er að myndast í hundraða ljósára fjarlægð frá jörðinni. Uppgötvunin getur hjálpað stjörnufræðingum að skilja betur hvernig reikistjörnur verða til.
Yfirmaður mannaðra geimferða hjá Geimvísindastofnun Bandaríkjanna, NASA, sagði af sér í dag. Rétt rúm vika er þar til NASA ætlar að skjóta mönnum út í geim frá Bandaríkjunum í fyrsta sinn frá árinu 2011.
Flugher Bandaríkjanna stefnir á að skjóta dularfullri geimflaug á braut um jörðu á morgun. Farið sem kallast X-37B mun bera mörg tilraunaverkefni en eitt þeirra hefur vakið meiri athygli en önnur.