

Golf
Fréttir og úrslit úr heimi golfsins.

Birgir Leifur bætti sig um 7 högg en staða hans er vonlítil
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG lék á 73 höggum í dag eða 3 höggum yfir pari á öðrum keppnisdegi lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi. Birgir bætti sig um 7 högg frá því á fyrsta hringnum þar sem hann lék á 80 höggum.

McDowell sigraði Woods í bráðabana á mögnuðum lokahring á Chevron meistaramótinu
Norður-Írinn Graeme McDowell kom í veg fyrir að Tiger Woods næði að sigra á einu golfmóti á árinu 2010. McDowell sýndi fádæma keppnishörku á lokakeppnisdegi Chevron meistaramótsins og tryggði sér sigur á fyrstu holu í bráðabana gegn Tiger Woods sem var með fjögurra högga forskot á McDowell fyrir lokahringinn.

Westwood sigraði með yfirburðum í Suður-Afríku og fékk 144 milljónir kr.
Lee Westwood sýndi mikið öryggi í leik sínum þegar hann sigraði á Nedbank meistaramótinu í golfi sem fram fór í Suður-Afríku. Westwood, sem er efstur á heimslistanum, lék lokahringinn á 68 höggum eða 4 höggum undir pari.

Rickie Fowler vann sér inn 330 milljónir kr. og var valinn nýliði ársins
Rickie Fowler var valinn nýliði ársins en hann var valinn í bandaríska Ryderliðið sem keppti á Celtic Manor. Fowler, sem er 21 árs, náði fínum árangri á sínu fyrsta ári, en hann er sá yngsti sem fær þessa virðurkenningu frá árinu 1996 þegar Tiger Woods var valinn nýliði ársins.

Jim Furyk kylfingur ársins á PGA mótaröðinni
Jim Furyk var í gær valinn kylfingur ársins á PGA mótaröðinni en það eru kylfingarnir sjálfir sem standa að kjörinu. Furyk, sem er fertugur, sigraði í Fed-Ex úrslitakeppninni og er þetta í fyrsta sinn sem hann fær þessa viðurkenningu.

Tiger Woods er með fjögurra högga forskot fyrir lokadaginn
Tiger Woods heldur sínu striki á Chevron meistaramótinu í golfi og er hann með fjögurra högga forskot á Graeme McDowell frá Norður-Írlandi fyrir lokadaginn.

Birgir Leifur í neðsta sæti
Kylfingurinn Birgir Leifur Hafþórsson er í vondum málum á lokaúrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Hann er á 7 höggum yfir pari eftir 15 holur en þá varð að hætta keppni vegna frosts í jörðu. Birgir Leifur er í neðsta sæti af þeim keppendum sem komust af stað í dag.

Tiger með fínt forskot
Tiger Woods er að spila hágæðagolf á Chevron-mótinu í Kaliforníu og hefur nú fjögurra högga forskot eftir tvo hringi. Tiger lék á 66 höggum í gær.

Tiger Woods heldur sínu striki og er líklegur til afreka
Tiger Woods heldur sínu striki á Chevron meistaramótinu í golfi sem fram fer í Bandaríkjunum og er hann með fjögurra högga forskot þegar keppni er hálfnuð. Chevron meistaramótið er óhefðbundið golfmót fyrir atvinnumenn þar sem að aðeins 18 kylfingar taka þátt og gestgjafinn er sjálfur Tiger Woods.

Tiger Woods lék sitt besta golf og á enn möguleika á að sigra á þessu ári
Tiger Woods sýndi gamla takta á fyrsta keppnisdegi á Chevron meistaramótinu í golfi sem hófst í gær á PGA mótaröðinni í Bandaríkjunum. Woods er efstur eftir 18 holur á 7 höggum undir pari eða 65 höggum.

Tiger Woods fékk óvænta jólagjöf frá Fred Couples
Tiger Woods fékk óvænta jólagjöf frá Fred Couples fyrirliða úrvalsliðsins sem stýrir bandaríska liðinu í Forsetabikarnum í nóvember á næsta ári gegn Alþjóðlega úrvalsliðinu.

Tiger svaraði spurningum aðdáenda á Twitter
Tiger Woods hefur unnið yfirvinnu síðustu mánuði til þess að laga ímynd sína og hann er hvergi nærri hættur. Kappinn er nú mættur á Twitter-samskiptasíðuna þar sem hann virðist ætla að vera öflugur.

Veðurguðirnir í Wales hafa enn áhrif á Ryderkeppnina í golfi
Fjögurra daga Ryderkeppni í golfi verður á meðal þeirra hugmynda sem ræddar verða á stjórnarfundi PGA – og Evrópumótaraðarinnar í byrjun næsta árs.

Matteo Manassero nýliði ársins á Evrópumótaröðinni
Ítalski táningurinn Matteo Manassero er var í gær valinn nýliði ársins á Evrópumótaröðinni í golfi. Manassero er yngsti sigurvegarinn á Evrópumótaröðinni frá upphafi en hann var aðeins 17 ára og 188 daga gamall þegar hann sigraði á Castello meistaramótinu á Spáni í október.

Birgir Leifur komst áfram og keppir um 30 laus sæti á Evrópumótaröðinni
Birgir Leifur Hafþórsson komst í gegnum 2. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi og mun hann taka þátt á lokaúrtökumótinu sem hefst þann 4. desember þar sem 160 kylfingar keppa um 30 laus sæti á næst stærstu atvinnumótaröð heims. Birgir endaði í 2.-3. sæti á mótinu á Arcos Garden.

Birgir lék vel áður en keppni frestað vegna veðurs í lokaumferðinni
Keppni var frestað í morgun á Spáni á lokakeppnisdegi á 2. stigi úrtökumótsins í golfi fyrir Evrópumótaröðina vegna úrkomu og hvassviðris. Birgir Leifur Hafþórsson hafði leikið 8 holur í morgun þegar keppni var frestað og var hann einu höggi undir pari í dag og samtals á -3.

Karlsson sigraði Poulter í spennandi bráðabana – Kaymer efstur á peningalistanum
Sænski kylfingurinn Robert Karlsson sigraði á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem lauk í dag í Dubai. Hann hafði betur í bráðabana gegn Englendingnum Ian Poulter en Poulter gerði afdrifarík mistök á 18. flöt í bráðabananum.

Birgir Leifur í 7.-8. sæti - enn í fínum málum
Birgir Leifur Hafþórsson er enn í góðum málum á úrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina í golf sem fer fram á Spáni.

Birgir Leifur er í 9.-12. sæti þegar keppni er hálfnuð á úrtökumótinu á Spáni
Birgir Leifur Hafþórsson atvinnukylfingur úr GKG bætti stöðu sína á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina í golfi með því að leika á 74 höggum í dag.

Fisher og Poulter eru efstir og jafnir þegar keppni er hálfnuð í Dubai
Ensku kylfingarnir Ross Fisher og Ian Poulter eru efstir og jafnir þegar keppni er hálfnuð á lokamóti Evrópumótaraðarinnar í golfi sem fram fer í Dubai. Fisher lék á 8 höggum undir pari í dag og er samtals á 9 höggum undir pari, en Poulter lék á 66 höggum.

Birgir Leifur er ánægður með fyrsta hringinn á úrtökumótinu á Spáni
Birgir Leifur Hafþórsson byrjaði vel á fyrsta keppnisdegi á 2. stigi úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi í dag. Birgir lék á 70 höggum eða 2 höggum undir pari á Arcos Garden vellinum á Spáni. Í samtali við visir.is sagði Íslandsmeistarinn að hann væri ánægður með fyrsta keppnisdaginn. Birgir er í 11.-19. sæti en um 20 kylfingar komast áfram.

Martin Kaymer gæti unnið sér inn 310 milljónir kr. með sigri í Dubai
Martin Kaymer gerði sig líklegan til þess að ná efsta sæti heimslistans í golfi með því að leika á 67 höggum í dag á fyrsta keppnisdegi Dubai heimsmótsins. Sigurvegari mótsins fær um 140 milljónir kr. í sinn hlut og sá sem verður í efsta sæti peningalistans fær um 170 milljónir kr. fyrir þann árangur. Ef sami aðilinn sigrar og endar í efsta sæti peningalistans fær hann samtals um 310 milljónir kr.

Mourinho tekur þátt í hörkubaráttu gegn Madrid
Jose Mourinho, knattspyrnustjóri spænska stórliðsins Real Madrid, einbeitir sér ekki aðeins að því að stjórna einu stærsta fótboltaliði heims. Hann hefur tekið að sér það hlutverk að vera talsmaður umsóknar Portúgala sem vilja halda Ryderkeppnina í golfi árið 2018.

Tiger leggur línurnar í viðtali við ESPN
Tiger Woods vinnur að því hörðum höndum þessa dagana að laga ímynd sína. Það er bráðum liðið ár frá því að hann lenti í enn óútskýrðri uppákomu með fyrrum eiginkonu sinni, Elin, sem endaði með því að rúða í bíl hans var brotin með golfkylfu og hann keyrði á tré.

Ginola stefnir á atvinnumennsku í golfi
„Ég er kylfingur, en ekki kvikmyndastjarna," segir Frakkinn David Ginola sem á árum áður var í fremstu röð í ensku knattspyrnunni með Newcastle, Tottenham og Aston Villa. Ginola, sem er 43 ára gamall, gerir lítið annað en að leika golf en hann hefur sett sér það markmið að komast í gegnum úrtökumót fyrir atvinnumótaröð 50 ára og eldri á Evrópumótaröðinni.

Garrigus fékk um 100 milljónir kr. fyrir sigurinn
Robert Garrigus tryggði sér keppnisrétt á PGA mótaröðinni í golfi næstu tvö keppnistímabilin með því að sigra á Children's Miracle meistaramótinu sem lauk í gær.

Adam Scott sigraði í Singapúr
Adam Scott frá Ástralíu sigraði á Barclays meistaramótinu á Evrópumótaröðinni í golfi í gær en mótið fór fram í Singapúr. Þetta er í þriðja sinn sem Scott sigrar á þessu móti og alls hefur hann sigrað á sjö mótum á Evrópumótaröðinni. Scott lék samtals á 17 höggum undir pari en hann lék lokahringinn á 68 höggum. Hann var þremur höggum betri en Anders Hansen frá Danmörku.

Tiger búinn að missa af lestinni í Ástralíu
Það er orðið endanlega ljóst að Tiger Woods nær ekki að verja titil sinn á ástralska meistaramótinu í golfi. Tiger fór þriðja hringinn á 71 höggi og er 10 höggum á eftir efsta manni, Adam Bland, fyrir lokadaginn.

Garcia heitur en Tiger kaldur
Sergio Garcia spilaði sinn besta golfhring á árinu er hann lék annan hringinn á opna ástralska meistaramótinu á 65 höggum. Hann er sex höggum á eftir efsta manni, Adam Bland.

Birgir Leifur endaði í fjórða sæti á Spáni
Birgir Leifur Hafþórsson, kylfingur úr GKG, endaði í fjórða sæti á á Condado Open mótinu sem fram fer á Hi5 mótaröðinni á Spáni og lauk í dag. Birgir Leifur var í fimmta sæti fyrir lokadaginn og hækkaði sig því um eitt sæti í dag.