

Fréttir af handbolta og handboltafólki, bæði innanlands sem utan.
Íslendingar voru í eldlínunni í tveimur leikjum sem var rétt í þessu að ljúka í Evrópudeildinni í handbolta. Aðalsteinn Eyjólfsson og lærisveinar hans í Kadetten unnu góðan tveggja marka sigur gegn Sporting, en Bjarki Már Elísson og félagar hans í Lemgo töpuðu gegn Benfica.
Fram tryggði sér í kvöld sæti í átta liða úrslitum Coca Cola bikars kvenna í handbolta með þrettán marka sigri gegn B-deildarliði Víkings 36-23.
Handboltadómararnir Anton Gylfi Pálsson og Jónas Elíasson munu dæma stórleik Flensburg og Kielce í Meistaradeild Evrópu annað kvöld.
Íslendingaliðið Magdeburg lenti ekki í miklum vandræðum er liðið tók á móti Gorenje í Evrópudeildinni í handbolta í kvöld. Liðið vann öruggan tíu marka sigur, 34-24.
Handknattleiksmaðurinn Aron Dagur Pálsson er genginn til liðs við norsku meistarana í Elverum frá sænska liðinu Guif.
Sjúkraþjálfari Aftureldingar var í miklu stuði á hliðarlínunni í leik liðsins gegn Val í Olís-deild kvenna á dögunum.
Margar af skærustu stjörnum íslenska handboltans fóru í handboltaskólann í Kiel í Þýskalandi. Guðjón Guðmundsson kynnti sér þennan eina íslenska handboltaskóla í Kiel í Seinni bylgjunni.
Létt var yfir mönnum undir lok Seinni bylgjunnar í gær þar sem gjöfum var útdeilt og óvæntur gestur lét sjá sig.
Fjöldi bikarleikja fer fram næstu daga í 16-liða úrslitum Coca Cola bikarsins í handbolta og um helgina verða svo 8-liða úrslitin leikin.
Haukar unnu góðan þriggja marka sigur er liðið heimsótti Selfyssinga í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Lokatölur urðu 27-30, en Aron Rafn Eðvaldsson stal senunni í marki Hauka.
Halldór Jóhann Sigfússon, þjálfari Selfyssinga, var eðlilega svekktur með þriggja marka tap sinna manna gegn Haukum í Olís-deild karla í handbolta í kvöld. Hann segir að sínir menn hafi gerst sekir um of mörg aulamistök.
FH vann sigur úr býtum í æsispennandi leik er þeir mættu botnliði Víkings í Víkinni fyrr í kvöld. Víkingur var með yfirhöndina í fyrri hálfleik en í þeim síðari snéru FH-ingar blaðinu við og unnu þriggja marka sigur, 26-29.
ÍBV datt fyrr í kvöld út úr átta liða úrslitum EHF bikars kvenna í handbolta eftir að hafa tapað seinni leiknum fyrir Malaga, 34-27. ÍBV tapaði einnig fyrri leiknum í gær stórt og voru lokatölur í einvíginu 68-50.
„Þetta er sterkur sigur hjá okkur, mikilvægur og ég er því mjög ánægður,“ sagði Jónatan Magnússon þjálfari KA eftir 25-24 sigur á Stjörnunni í KA heimilinu í dag.
Öllum fjórum leikjum dagsins í þýska handboltanum er nú lokið eftir að viðureign Lemgo og Stuttgart var frestað.
ÍBV tók á móti Íslandsmeisturum Vals í sínum fyrsta leik eftir jóla- og EM-hlé og unnu frækinn sigur, 28-26, í háspennuleik.
Þann 22. maí árið 2019 skoraði Sverrir Pálsson eitt mark í tíu marka sigri Selfyssinga gegn Haukum í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins í handbolta. Sigurinn tryggði Selfyssingum fyrsta Íslandsmeistaratitilinn í sögu félagsins, en Sverrir hefur ekki leikið keppnisleik í handbolta síðan. Í kvöld verður þó breyting á því.
Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og það voru Íslendingar í eldlínunni í þeim öllum. Íslendingalið MT Melsungen vann öruggan sjö marka sigur gegn Daníel Þór Ingasyni og félögum hans í HBW Balingen-Weilstetten, 28-21.
Fram komst aftur á sigurbraut eftir sigur á Haukum í jöfnum leik. Fram spilaði góðan síðari hálfleik sem skilaði sér í eins marks sigri 23-24.
Fram vann Hauka á Ásvöllum í Olís-deild kvenna með einu marki 23-24. Karen Knútsdóttir, leikmaður Fram, var ánægð með sigurinn.
ÍBV heimsótti Costa del Sol Malaga í fyrri leik liðanna í átta liða úrslitum Evrópubikars kvenna í handbolta á Spáni í dag. Eyjakonur þurftu að sætta sig við ellefu marka tap, 34-23, en Malaga er ríkjandi meistari keppninnar.
KA/Þór fór með sigur af hólmi gegn Stjörnunni í Olís-deild kvenna í dag er liðin mættust en lokatölur leiksins voru 25-27.
Sigurjón Guðmundsson varði átján skot í marki HK í sigrinum á Fram, 28-23. Hann var að vonum kátur í leikslok enda fyrsti sigur HK-inga í vetur.
HK vann sinn fyrsta sigur í Olís-deild karla á tímabilinu þegar liðið lagði Fram að velli, 28-23, í dag.
Íslendingar voru í eldlínunni í fjórum leikjum danska handboltans í dag, bæði karla- og kvennamegin. Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í GOG eru enn taplausir á toppi dönsku úrvalsdeildarinnar eftir eins marks sigur gegn Bjerringbro/Silkeborg og Sandra Erlingsdóttir skoraði níu mörk í stórsigri Álaborgar.
Valur vann afar sannfærandi níu marka sigur, 23-14, er liðið heimsótti HK í Olís-deild kvenna í handbolta í dag.
Kristján Örn Kristjánsson var markahæstur þegar Aix vann Nancy með sex marka mun í frönsku úrvalsdeildinni í kvöld. Þá er íslendingalið Gummersbach enn á toppi þýsku B-deildarinnar í handbolta þrátt fyrir tveggja marka tap gegn Lübeck-Schwartau á útivelli í kvöld.
Íslenska handboltalandsliðið náði sjötta sætinu á Evrópumótinu í síðasta mánuði sem er besti árangur liðsins í langan tíma. Liðið náði þessu þrátt fyrir að besti handboltamaður Íslands undanfarin ár hafi misst af meirihluta leikja íslenska liðsins.
Þráinn Orri Jónsson og Magnús Óli Magnússon mættu í Seinni bylgjuna og fóru yfir atburðarrásina þegar þeir voru kallaðir út á Evrópumótið í Ungverjalandi og Slóvakíu í síðasta mánuði.
Íslendingar voru í eldlínunni í öllum fjórum leikjum þýsku úrvalsdeildarinnar í handbolta sem fram fóru í kvöld.