
„Ég eiginlega barði þetta í gegn“
„Ég er ógeðslega glaður og ánægður með að byrja og fá að koma inn í þetta núna. Maður sá það kannski ekki alveg fyrir tveimur vikum. Ég er ánægður með hvernig við fórum að þessu í dag,“ sagði Aron Pálmarsson, landsliðsfyrirliði, sem er mættur til leiks á HM í handbolta.