Handbolti

Gísli valinn í úr­vals­lið EM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Gísli Þorgeir Kristjánsson er í úrvalsliði EM.
Gísli Þorgeir Kristjánsson er í úrvalsliði EM. epa/Johan Nilsson

Leikstjórnandi íslenska karlalandsliðsins í handbolta, Gísli Þorgeir Kristjánsson, var valinn í úrvalslið Evrópumótsins 2026.

Gísli hefur spilað einkar vel á EM og er stoðsendingahæsti maður mótsins með 54 slíkar.

Eins og við var búist var Mathias Gidsel valinn besti leikmaður mótsins. Hann er markahæstur á EM ásamt Portúgalanum Francisco Costa sem var valinn besti ungi leikmaður EM. Félagi hans í portúgalska landsliðinu, Salvador Salvador, var valinn besti varnarmaðurinn.

Þjóðverjar eiga tvo fulltrúa í úrvalsliðinu, markvörðinn Andreas Wolff og línumanninn Johannes Golla. Norðmaðurinn August Pedersen er í vinstra horninu og Króatinn Mario Sostaric í því hægra. Costa er í stöðu hægri skyttu og hinn danski Simon Pytlick í stöðu vinstri skyttu.

Úrvalslið EM 2026.ehf

Gísli og félagar í íslenska landsliðinu mæta Króatíu í leiknum um bronsið á EM í dag. Leikurinn hefst klukkan 14:15 og verður í beinni textalýsingu á Vísi. Leiknum verða svo gerð ítarleg skil á vefnum.


Tengdar fréttir

Sér fyrir sér bronsverðlaun um hálsinn

„Maður er eins góður og við má búast. Maður hefur reynt að gleyma svekkelsinu og einblína á Króatana,“ sagði Elliði Snær Viðarsson, línumaður íslenska landsliðsins, þegar hann var tekinn tali í gær. Ísland mætir Króatíu í leik um bronsið á EM í dag.

Sigvaldi skráður til leiks

Hornamaðurinn Sigvaldi Björn Guðjónsson hefur verið skráður inn í Evrópumótið í handbolta

Veikindi í króatíska hópnum og markvörðurinn sat heima

Króatískir fjölmiðlar greina frá því að veikindi herji á króatíska landsliðshópinn í handbolta sem mætir Íslandi í leik um bronsið á EM í Herning í dag. Markvörður liðsins hélt sig á hótelinu á meðan liðið fór í leikdagsgöngu.

Ísland - Króatía | Brons í boði

Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætir því króatíska í leiknum um bronsið á Evrópumótinu 2026. Sextán ár eru síðan Íslendingar unnu sín einu bronsverðlaun á EM.

„Bæði lið eru á felgunni“

Það er komið að því. Í dag skýrist hvort strákarnir okkar fara með verðlaun heim frá EM eður ei. Fram undan er leikur gegn Króatíu um bronsverðlaunin.

„Verður nú varla verra. Eða jú, kannski“

Spurning sem brennur á mörgum Íslendingum í dag er hvort Dagur Sigurðsson muni hafa af liðinu bronsmedalíu á EM. Hann stýrir Króötum gegn Íslandi í leik um bronsið í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×