

Innrás Rússa í Úkraínu
Fréttir af yfirstandandi innrás Rússa í Úkraínu sem hófst 24. febrúar 2022.

Dularfullar sprengingar á tveimur herstöðvum í Rússlandi
Nokkrir eru látnir eftir sprengingar á tveimur herflugvöllum í Rússlandi. Báðir vellirnir eru í hundruð kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Úkraínu; nærri borginni Ryazan og í Saratov.

Evrópa of háð Bandaríkjunum í öryggismálum
Innrás Rússa í Úkraínu sýnir að Evrópulönd séu of háð Bandaríkjunum um eigið öryggi, að mati Sönnu Marin, forsætisráðherra Finnlands. Hún vill að Evrópulönd auki vopnaframleiðslu og varnarviðbúnað sinn.

Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar
Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu.

Bréfsprengjurnar taldar heimagerðar og sendar innan Spánar
Spænska lögreglan telur að sex bréfsprengjur sem hafa fundist undanfarna tvo sólarhringa hafi verið heimasmíðaðar. Bréfin eru sögð hafa innihaldið lítið magn af púðri og sprengjubrotum og verið send innan Spánar.

„Án Bandaríkjanna værum við í vanda“
Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur kallað eftir því að Evrópuríkin efli varnargetu sína í kjölfar átakanna í Úkraínu. Hún segir styrk Evrópu ónógan án Bandaríkjanna.

Sprengifimt efni sent forsætisráðherra Spánar
Innanríkisráðuneyti Spánar upplýsti í dag að sprengifimt efni hefði verið sent til Pedro Sánchez, forsætisráðherra, í síðustu viku. Fréttirnar koma í kjölfar þess að í það minnsta fjögur önnur slík bréf hafa borist stofnunum og fyrirtækjum síðasta sólarhringinn.

Rýnt í upphaf innrásarinnar: Rússar komust nær sigri en flestir átta sig á
Þótt eldflaugar eins og Javelin og NLAW, sem hannaðar eru til að granda skriðdrekum, nytu mikillar athygli og bakhjarlar Úkraínu sendu slík vopn þangað í massavís, var það hið hefðbundna stórskotalið sem gerði Úkraínumönnum kleift að verja Kænugarð í upphafi innrásar Rússa í febrúar og mars. Um tíma voru tólf rússneskir hermenn á móti hverjum úkraínskum hermanni á svæðinu.

Þrjár bréfsprengjur á Spáni á einum sólarhring
Bréfsprengjur hafa verið sendar á þrjá staði á Spáni síðasta sólarhringinn, nú síðast til herflugvallar þaðan sem fylgst er með gervihnöttum. Starfsmaður úkraínska sendiráðsins í Madrid særðist lítillega þegar bréfsprengja sprakk þar í gær.

Sex milljónir án rafmagns á fyrsta degi vetrar
Úkraínumenn halda fyrsta vetrardag hátíðlegan í dag, fyrsta desember.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Hart barist í hakkavélinni við Bakhmut
Utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins hétu því í gær að Úkraína fengi á endanum inngöngu í bandalagið og að frekari hernaðaraðstoð yrði send til Úkraínumanna. Því var einnig lofað að bandalagið myndi aðstoða Úkraínumenn við uppbyggingu að stríðinu loknu.

Pyntingar á pyntingar ofan
Rúmum tveimur vikum eftir að Rússar hörfuðu frá Kherson-borg og vesturbakka Dniproár fer frásögnum af pyntingum og öðrum ódæðum rússneskra hermanna í héraðinu fjölgandi. Minnst fimm staðir hafa fundist í borginni og fjórir aðrir á svæðinu þar sem íbúar segja að þeir hafi verið yfirheyrðir, pyntaðir, þeim hafi verið misþyrmt og hótað lífláti.

„Við getum ekki leyft Pútín að stela jólunum okkar“
Borgaryfirvöld í Kænugarði hyggjast reisa jólatré út um alla borg til að sýna að Rússum takist ekki að berja niður jólaanda borgarbúa, þrátt fyrir sprengjuárásir og orkuskort.

Þórdís Kolbrún átti fund með Selenskí í Kænugarði: „Dagurinn hefur verið stór og mikill“
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segir það skipta hana miklu máli að sjá aðstæður í Kænugarði með eigin augum. Í dag átti hún og aðrir utanríkisráðherrar Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna fundi með Selenskí Úkraínuforseta ásamt forsætisráðherra og utanríkisráðherra landsins.

Utanríkisráðherra í óvæntri heimsókn í Kænugarði
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, er nú stödd í heimsókn í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu, ásamt sex starfssystkinum sínum frá Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjum.

Bandaríkin og Rússland hafi leiðir til að höndla kjarnorkuógnina
Það eru til staðar úrræði fyrir Bandaríkin og Rússland að draga úr áhættunni á kjarnorkustríði, hefur ríkisfréttastofan Ria Novosti eftir fulltrúa sendiherra Bandaríkjanna í Moskvu. Engir fundir um ógnina eru á dagskrá, segir hún.

Segja Rússa ætla að ræna rúmlega tíu þúsund börnum
Yfirvöld í Úkraínu segja að Rússar ætli sér að ræna rúmlega tíu þúsund börnum af hernumdum svæðum þeirra í Luhansk-héraði í austurhluta landsins og reyna að þvinga foreldra þeirra til að fylgja þeim eftir. Þegar eru Rússar sakaðir um að hafa rænt minnst tólf þúsund úkraínskum börnum en líklegt er að þau séu mun fleiri.

Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Yfirmenn sagðir hafa hvatt til nauðgana
Ekkert lát virðist ætla að vera á árásum Rússa á orkuinnviði í Úkraínu en þessum árásum hefur verið lýst sem stríðsglæpum. Veturinn er að ganga í garð í Úkraínu og er þegar byrjaður að hafa áhrif á víglínunum og heimilum óbreyttra borgara.

Sakar Rússa enn og aftur um glæpi gegn mannkyni
Volodómír Selenskí Úkraínuforseti sakar Rússa enn of aftur um glæpi gegn mannkyninu eftir að þeir skutu eldflaugum sínum enn og aftur á landið með það að augnamiði að eyðileggja orkuinnviði.

Tafir á stáli seinka viðbyggingunni til vorsins 2024
Reiknað er með að hægt verði að taka langþráða nýja viðbyggingu við Akureyrarflugvöll í notkun vorið 2024, tæpu ári á eftir áætlun. Tafir við afhendingu á ýmsum aðföngum, svo sem stálgrind hússins, gera þetta að verkum.

Fjögur hundruð milljónir bandaríkjadala í hernaðaraðstoð
Bandaríkjamenn hyggjast styðja Úkraínu um ígildi 400 milljón bandaríkjadala í hernaðaraðstoð. Vopn, skotfæri og loftvarnarkerfi verða meðal hergagna.

Rússar grunaðir um netárás á vefsíðu Evrópuþingsins
Netárás var gerð á vefsíðu Evrópuþingsins fyrr í dag. Árásin var gerð mjög skömmu eftir að þingmenn samþykktu þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Rússneskur hópur hefur lýst yfir ábyrgð.

Víða rafmagnslaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið
Umfangsmiklar stýriflaugaárásir Rússa á Úkraínu í dag hafa leitt til þess að rafmagnslaust er víða um landið. Minnst þrír eru látnir og níu særðir í Kænugarði og er borgin þar að auki án neysluvatns í kjölfar árásanna.

Skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki: Tveggja daga gamalt barn dó í eldflaugaárás á fæðingardeild
Þingmenn Evrópuþingsins samþykktu í dag þingsályktun um að skilgreina Rússland sem hryðjuverkaríki. Er það gert með vísan í ítrekaðar árásir Rússa á orkuinnviði Úkraínu, sjúkrahús, skóla og neyðarskýli. Nýfætt barn lést í árás Rússa á fæðingardeild í suðurhluta landsins í nótt.

Berjast um mikilvægan skaga við ósa Dniproár
Yfirvöld í Úkraínu segjast ætla að reka rússneska hermenn frá mikilvægum skaga vestur af Kherson-borg. Úkraínskir sérsveitarmenn eru þegar sagðir berjast við rússneska hermenn á Kinburn-skaga við ósa Dniproár við Svartahaf.

Óvíst að gervihnattasamband myndi anna öllum fjarskiptaþörfum mikilvægra innviða
Gervihnattasamband hefur takmarkaða flutningsgetu og óvíst að fjarskiptasamband um gervihnetti geti annað öllum fjarskiptaþörfum mikilvægra inniviða eða ríkisins við útlönd.

Sanna Marin segir Úkraínu verða að sigra stríðið án þess að tapa landsvæðum
Forsætisráðherra Finnlands segir skipta öllu máli að Vesturlönd hjálpi Úkraínu að vinna stríðið gegn Rússum og gefi þar ekkert eftir. Vinni Rússar stríðið væri það ávísun á enn frekari hernað þeirra gegn öðrum Evrópuríkjum.

Sjá mörg tækifæri til frekari samvinnu ríkjanna
Sanna Marin og Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherrar Finnlands og Íslands, segjast sjá mörg tækifæri til nánara samstarfs ríkjanna tveggja á hinum ýmsu sviðum. Sanna Marin kom til íslands í vinnuheimsókn í dag og fundaði með Katrínu.

Vopnaframleiðendur beðnir um að bretta upp ermarnar
Ráðamenn á Vesturlöndum hafa áhyggjur af því hve mikið vestrænir herir hafa þurft að ganga á skotfærabirgðir sínar vegna vopnasendinga til Úkraínu. Vopnaframleiðendur hafa verið beðnir um að bretta upp ermarnar og auka framleiðslu á vopnum og skotfærum og sérstaklega með tilliti til þess að stríðinu í Úkraínu mun líklega ekki ljúka á næstunni.

Milljónir í hættu á að deyja sökum kulda
Milljónir Úkraínumanna eru í hættu á að deyja í vetur sökum kulda, segir Alþjóðaheilbrigðisstofnunin. Helmingur orkuinnviða landsins er skemmdur eða ónýtur og um 10 milljón manns án rafmagns.

Surovikin undir þrýstingi eftir undanhald frá Kherson
Sergei Surovikin, sem stýrir innrás Rússa í Úkraínu, er undir þrýstingi um að ná árangri eftir að hafa hvatt til þess að rússneski herinn hörfaði frá vesturbakka Dniproár og Kherson-borg. Herforinginn þarf að geta sýnt fram á að ákvörðunin hafi verið rétt og geti skilað Rússum árangri annarsstaðar í Úkraínu.