Sindri þekkti bæjarstjórann sem Rússar skutu: Þetta hefðu getað verið við Íslenskur maður sem flúði Kænugarð segir mikla heppni að hann hafi ekki verið fluttur inn í hús sem hann var að byggja í bænum Motishin. Hann þekkti bæjarstjórann þar vel sem fannst í gær látin ásamt eiginmanni sínum og syni. Þau höfðu verið skotin af Rússum. Erlent 5. apríl 2022 12:01
Danirnir seldu treyju sínar fyrir 7,6 milljónir og gáfu úkraínskum börnum Danska knattspyrnulandsliðið sitt gerði heldur betur sitt í að safna pening fyrir börn í Úkraínu sem þurfa á mikill aðstoð að halda þessi misserin eftir innrás Rússa í landið. Fótbolti 5. apríl 2022 09:31
Danir sparka fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi Dönsk stjórnvöld hafa ákveðið að vísa fimmtán rússneskum embættismönnum úr landi. Jeppe Kofod, utanríkisráðherra Danmerkur, greindi frá því í morgun að utanríkismálanefnd landsins hafi komist að þessari niðurstöðu. Erlent 5. apríl 2022 09:04
Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk var opnuð í Reykjavík Ný móttökumiðstöð fyrir flóttafólk hefur opnað í Reykjavík þar sem Domus Medica var áður til húsa. Guðmundur Ingi Guðbrandsson félagsmálaráðherra segir mikilvægt að flóttafólkið geti leitað allrar nauðsynlegrar þjónustu á einum stað. Innlent 4. apríl 2022 19:58
Vaktin: Gervihnattamyndir sýna lík á götum Bucha þann 11. mars Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, segir Rússa hafa gerst seka um stríðsglæpi í Bucha og víðar þar sem fólk hafi verið pyntað, konum nauðgað og börn myrt. Hann segist enn opinn fyrir friðaviðræðum en að það reynist þeim sífellt erfiðara að semja við Rússa. Erlent 4. apríl 2022 19:30
Sannfærð um að hinir seku verði sóttir til saka Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, utanríkisráðherra, segist sannfærð um að Rússar verði sóttir til saka vegna stríðsglæpa. Það sagði hún í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag og sagði hún einnig að fregnir af ódæðum rússneskra hermanna í norðurhluta Úkraínu muni hafa áhrif á viðhorf umheimsins gagnvart innrásinni. Innlent 4. apríl 2022 18:53
Kallar Pútín stríðsglæpamann en telur ekki að um þjóðarmorð sé að ræða Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur farið fram á það að Vladímír Pútín Rússlandsforseti verði sóttur til saka fyrir stríðsglæpi sína í Úkraínu og fordæmdi fjöldamorðið í bænum Bucha. Forseti Úkraínu sakar Rússa um þjóðarmorð í bænum en Biden tekur ekki undir það. Erlent 4. apríl 2022 15:47
Rússneska sendiráðið á Íslandi tekur undir með Moskvu en hvað er rétt? Talsmenn sendiráðs Rússlands á Íslandi hafa tjáð sig um hroðaverkin í Bucha og endurtaka þá línu frá Moskvu að um sé að ræða „ögrun“ af hálfu Úkraínustjórnar. Erlent 4. apríl 2022 12:59
Orban gagnrýndi Selenskí í sigurræðu sinni Viktor Orban og Fidesz-flokkur hans unnu öruggan sigur í þingkosningunum í Ungverjalandi sem fram fóru í gær. Það er því ljóst að hann mun gegna stöðu forsætisráðherra í landinu, fjórða kjörtímabilið í röð. Erlent 4. apríl 2022 07:36
Dynamo Kiev leikur gegn stærstu liðum Evrópu til að safna pening fyrir Úkraínu Úkraínsku meistararnir Dynamo Kiev munu leika vináttuleiki gegn Barcelona, Paris Saint-Germain og AC Milan, ásamt öðrum stórliðum Evrópu til að safna pening fyrir stríðshrjáða þjóð þeirra. Fótbolti 4. apríl 2022 06:31
Hryllingur í Bucha: Fullyrðir að rússneskir hermenn séu verri en íslamska ríkið Utanríkisráðherra Úkraínu segir Rússa hafa framið fjöldamorð á almennum borgurum í bænum Bucha, þar sem lík liggja eins og hráviði á götum eftir brotthvarf Rússa. Vestrænir leiðtogar fordæma Rússa fyrir voðaverk á svæðinu og saka þá sumir um stríðsglæpi. Erlent 4. apríl 2022 00:00
Með skilaboð til Íslendinga: „Hjálpin sem þið hafið veitt okkur gleymist aldrei“ Vesturbæingar og fyrirtæki í nágrenninu hafa tekið höndum saman við að útvega úkraínskum flóttamönnum sem dvelja á Hótel Sögu ýmsar nauðsynjar, þar á meðal sundkort. Við hittum flóttamann sem var með skilaboð til íslensku þjóðarinnar. Innlent 3. apríl 2022 20:31
Saka Rússa um þjóðarmorð í Bucha Vólódímír Selenskí forseti Úkraínu hefur sakað Rússa um þjóðarmorð eftir að Rússar yfirgáfu bæinn Bucha í útjaðri Kænugarðs fyrir helgi. Svo virðist sem tugir ef ekki fleiri almennir borgarar hafi verið teknir af lífi í bænum af Rússum og grafa hefur þurft lík þeirra í fjöldagröfum. Erlent 3. apríl 2022 16:30
Skelfilegir stríðsglæpir koma í ljós Alþjóðleg mannréttindasamtök segja ljóst að rússneskir hermenn hafi framið ýmsa stríðsglæpi í Úkraínu. Hræðilegar sögur berast frá íbúum þeirra svæða sem Rússar hafa horfið frá. Erlent 3. apríl 2022 12:39
Vaktin: Rússar kalla eftir neyðarfundi öryggisráðsins Árásir voru gerðar á hafnarborgina Odessa við suðurströnd Úkraínu í morgun og er haft eftir ráðamanni að rússnesk flugskeyti hafi hæft mikilvæga innviði. Erlent 3. apríl 2022 07:34
Vesturbæingar sjá um hundrað flóttamönnum á Hótel Sögu fyrir nauðsynjum Tæplega eitt hundrað úkraínskir flóttamenn, konur og börn, hafa fengið þak yfir höfuðið í Bændahöllinni, þar sem Hótel Saga var þar til nýlega. Svo virðist sem fólkið fái ekki mikið meira en þak yfir höfuðið enda hafa íbúar Vesturbæjar tekið það á sig að verða fólkinu úti um helstu nauðsynjar. Innlent 2. apríl 2022 23:03
Saka Rússa um að hafa gert árásir á friðsæl mótmæli Úkraínumenn saka Rússa um að hafa gert sprengjuárásir á friðsæl mótmæli í sunnanverðri Úkraínu í dag. Stjórnvöld vara við hörðum átökum á svæðinu næstu daga. Frans páfi var óvenjuharðorður í garð Rússlandsforseta í ávarpi í dag. Erlent 2. apríl 2022 23:02
Úkraínsk börn dönsuðu þjóðdansa til fjáröflunar Glatt var á hjalla í menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í dag þar sem haldin var fjáröflun til styrktar fjölskyldum sem komnar eru hingað til lands frá Úkraínu. Innlent 2. apríl 2022 21:11
Segir Rússa hafa rænt áhrifavaldinum sem lifði af árásina á fæðingarspítalann Fréttaritarinn Thomas van Linge segir að úkraínsku konunni, sem lifði af árás Rússa á fæðingarspítala í Maríupól, hafi verið rænt af Rússum. Hún sé ein þeirra mörgu flóttamanna sem Rússar hafi beint frá Maríupól til Rússlands þvert á samninga. Innlent 2. apríl 2022 16:46
Vonar að atvinnurekendur taki flóttafólkinu opnum örmum Móttaka flóttamanna hér á landi fer vel af stað og hafa herbergi á Hótel Sögu meðal annars verið tekin undir þá. Innlent 2. apríl 2022 16:20
Vaktin: Gæti tekið mörg ár að hreinsa upp jarðsprengjur Rússa Volódímír Selenskíj, forseti Úkraínu, segir að rússneskar hersveitir hafi komið fyrir jarðsprengjum í íbúðum og líkum á sama tíma og þær hörfi rólega úr norðurhluta landsins. Þetta kom fram í nýjasta ávarpi forsetans til úkraínsku þjóðarinnar. Hann varaði sömuleiðis við því að staðan væri áfram gríðarlega erfið í austurhlutanum þar sem Rússar væru að undirbúa árásir í Kharkív og Donbas-héraði. Erlent 2. apríl 2022 07:38
Rússar á undanhaldi frá Kænugarði en herða tökin á Mariupol Margt bendir til að Rússneskar hersveitir hafi beðið afhroð í nágrenni Kænugarðs og séu á hröðu undanhaldi þaðan. Ekki hefur gengið að fá Rússa til að standa við loforð um frelsun íbúa í Mariupol. Aðstoðarforsætisráðherra Úkraínu segir þá hafa gert neyðarvistir til borgarinnar upptækar. Erlent 1. apríl 2022 20:00
Vaktin: Tvö þúsund manns komust frá Mariupol Eldur geisar á olíubirgðastöð í Belgorod í Rússlandi en ríkisstjórinn á svæðinu segir úkraínskar herþyrlur hafa flogið yfir landamærin og ráðist á stöðina. Úkraínuher hefur ekki tjáð sig um ásakanirnar. Erlent 1. apríl 2022 16:30
Rússar gerðu hjálpargögn á leið til Mariupol upptæk Rússneskar hersveitir hafa komið í veg fyrir að hóferðabilalest sem nálgaðist hafnarborgina Mariupol í gær geti flutt stríðshrjáða íbúa á brott og lagt hald á hjálpargögn sem ætluð voru borgarbúum, að sögn aðstoðarforsætisráðherra landsins. Rússar krefjast þess að evrópuríki greiði fyrir gas frá Rússum með rúblum frá og með deginum í dag. Erlent 1. apríl 2022 13:39
KA fær Úkraínumann á láni KA hefur fengið liðsstyrk fyrir átök sumarsins í Bestu-deild karla í knattspyrnu. Úkraínumaðurinn Oleksiy Bykov er kominn á láni til félagsins. KA greindi frá. Íslenski boltinn 1. apríl 2022 11:46
Vaktin: Selenskí segir rússneska herinn hörfa frá norðurhluta Úkraínu Rússar hafa heitið því að opna „mannúðarhlið“ frá Maríupól í dag. Að sögn varaforsætsiráðherra Úkraínu hefur röð hópferðabifreiða lagt af stað til borgarinnar til að freista þess að koma íbúum burt. Erlent 31. mars 2022 23:27
Úkraínuforseti hvetur til að sett verði hafnbann á Rússa um allan heim Allt bendir til að Rússar séu að safna liði til stórsóknar í austurhluta Úkraínu. Flóttafólk sem kom til Póllands í dag segir ekkert að marka yfirlýsingar þeirra um að hernaðaraðgerðum væri lokið í norðurhluta landsins. Forseti Úkraínu skorar á ríki heims að setja hafnbann á rússnesk skip. Erlent 31. mars 2022 19:45
Merkja gríðarlega aukningu í netárásum Sérfræðingar í tölvuöryggismálum segjast merkja gríðarlega aukningu í netárásum. Árásunum hafi fjölgað eftir innrás Rússa í Úkraínu og afleiðingar eigi enn eftir að koma fyllilega í ljós. Öflugar árásir geti valdið stöðvun á þjónustu heilu borga og bæja. Innlent 31. mars 2022 19:32
Telur að pólitísk einangrun Rússa muni vara í langan tíma Friðrik Jónsson, sérfræðingur í öryggis-og varnamálum telur að jafnvel þótt komi til vopnahlés eða friðarsamninga muni pólitísk einangrun Rússa vara í langan tíma. Innlent 31. mars 2022 17:16
Úkraínski Eurovision-sigurvegarinn Jamala á leið til Íslands Úkraínska söngkonan Jamala sem vann Eurovision 2016 með laginu 1944 kemur fram í söfnunar- og skemmtiþættinum Heimsins mikilvægasta kvöld. Tónlist 31. mars 2022 12:59