Íranar gera árásir á Kúvæt og Ísraelar sækja dýpra inn í Líbanon Yfirvöld í Kúvæt greindu frá því í morgun að loftvarnir landsins hefðu verið virkjaðar vegna yfirstandandi eldflauga- og drónaárásar. Nokkrum mínútum síðar sögðust hernaðaryfirvöld í Bandaríkjunum hafa gert árásir á radar- og stjórnstöðvar í Íran yfir helgina. Erlent 1.6.2026 07:01
Af hverju Íran óttast að samningur geti orðið upptaktur að nýjum átökum síðar Í Teheran eru þær tilslakanir sem Bandaríkin virðast tilbúin að veita taldar of góðar til að vera sannar. Umræðan 31.5.2026 15:10
Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Samningamenn Bandaríkjanna og Írans eru sagðir hafa samþykkt frumdrög að samkomulagi sem myndi framlengja vopnahlé þeirra á milli um sextíu daga og hefja samningaviðræður um framtíð kjarnorkuáætlunar Írans. Donald Trump Bandaríkjaforseti á enn eftir að samþykkja samkomulagið en hann er sagður deila samningsdrögum með bandamönnum sínum. Erlent 28.5.2026 23:02
Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði í færslu á samfélagsmiðlum að samkomulag um að binda enda á átökin í Miðausturlöndum lægi að mestu fyrir. Meðal ákvæða þess væri að opnað yrði fyrir umferð um Hormússund. Þessu hafna írönsk stjórnvöld alfarið. Erlent 23. maí 2026 22:23
Mjakist nær samkomulagi Donald Trump Bandaríkjaforseti segir Bandaríkjamenn og Írana „færast mun nær“ samkomulagi um að binda enda á stríðið í Miðausturlöndum. Báðir aðilar eru varkárir í yfirlýsingum en teikn um árangur hafa einnig borist frá Teheran. Erlent 23. maí 2026 19:08
Gæti dregið til tíðinda á næstu dögum eða stundum Dregið gæti til tíðinda í friðarviðræðum Bandaríkjamanna og Írans á næstu klukkustundum eða næstu dögum, að sögn utanríkisráðherra Bandaríkjanna. Pakistanskir milligöngumenn segja að árangur hafi náðst í samræðum sínum við Írana í dag. Innlent 23. maí 2026 15:13
Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Stjórnvöld í Íran og Oman hafa rætt saman um að taka upp kerfi þar sem rukkað yrði fyrir skipaumferð um Hormuz-sund. Viðræðurnar eru ekki síst athyglisverðar í ljósi þess að Oman er bandamaður Bandaríkjanna og Bandaríkjastjórn hefur varað við hugmyndum um gjaldtöku á sundinu. Erlent 22. maí 2026 11:35
Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Stjórnvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hugðust koma fyrrverandi forseta Íran, Mahmoud Ahmadinejad, aftur til valda þegar þeir hófu árásir á landið. Ísraelsmenn lögðu á ráðin um árás á heimili Ahmadinejad í Tehran, þar sem hann sætti stofufangelsi, til að frelsa forsetann fyrrverandi. Ahmadinejad, sem særðist í árásinni, ku hafa vitað af áætluninni en snúist hugur þegar hann var frjáls. Ekki er vitað hvar hann er niðurkominn. Erlent 20. maí 2026 10:23
Mesti fjöldi aftaka á heimsvísu í 44 ár Ekki hafa verið fleiri aftökur í heiminum í 44 ár, eða frá árinu 1981. Á síðasta ári voru 2.707 einstaklingar teknir af lífi í sautján löndum. Þetta kemur fram í nýútkominni árlegri skýrslu Amnesty International um beitingu dauðarefsingarinnar. Erlent 18. maí 2026 07:58
„Annars verður ekkert eftir af þeim“ Donald Trump Bandaríkjaforseti segir varar við því að „ekkert verði eftir“ af Írönum ef þeir hafa ekki fljótar hendur við í friðarviðræðum. Viðræður milli Írana og Bandaríkjamanna dregist verulega á langinn og líkur eru á því að stríð brjótist aftur út. Erlent 17. maí 2026 22:35
Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp Á sama tíma og evrópsk flugfélög tilkynntu um samdrátt í flugáætlunum þeirra vegna stórhækkaðs eldsneytisverðs fjölgaði einkaþotuferðum í síðasta mánuði. Einaþotuútgerðir láta gagnrýni sér sem vind um eyru þjóta. Viðskipti erlent 13. maí 2026 11:39
Hafa gert leynilegar árásir í Íran Sameinuðu arabísku furstadæmin hafa gert leynilegar árásir á skotmörk í Íran. Sérfræðingar hafa lengi velt vöngum yfir slíkum árásum en þær eru meðal annars sagðar hafa beinst gegn olíuvinnsluinnviðum og vatnseymingarstöð. Erlent 12. maí 2026 11:25
Skák og mát í Íran Bandaríkin geta hvorki snúið við né stjórnað afleiðingunum af því að tapa þessu stríði við Íran. Umræðan 11. maí 2026 17:47
Vopnahléið í öndunarvél eftir „rusl“ svar klerkastjórnarinnar Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, segir vopnahléið gegn Íran hanga á bláþræði. Það er eftir að hann lýsti yfir miklum vonbrigðum með svör klerkastjórnarinnar í Íran við tillögum að mögulegum friði. Erlent 11. maí 2026 16:07
Viðræður virðast stranda á kjarnorkumálunum Tillögur Írana um forsendur fyrir viðræðum um varanlegan frið eru sagðar fela í sér afléttingu hafnbanns Bandaríkjanna á Hormuz-sundi, afléttingu allra refsiagerða gegn Íran og tryggingu fyrir því að ekki verði gerðar frekari árásir á landið. Þá segir Wall Street Journal tillögurnar fela í sér skammvinnra bann gegn auðgun úrans en Bandaríkjamenn höfðu lagt til og útflutning aðeins hluta birgða Írana af auðguðu úrani. Erlent 11. maí 2026 07:01
„Gjörsamlega óásættanlegt“ Svör bárust frá írönskum stjórnvöldum í dag við friðartillögum Bandaríkjamanna. Lítið er vitað um innihald þeirra en Donald Trump Bandaríkjaforseti segir þau vera óboðleg. Erlent 10. maí 2026 21:29
Vopnahléið enn í gildi en alls óvíst um varanlegt samkomulag Donald Trump Bandaríkjaforseti segir vopnahlé enn í gildi milli Bandaríkjanna og Íran, þrátt fyrir að komið hafi til átaka á Hormuz-sundi í gær. Erlent 8. maí 2026 06:55
Skutu hvor á annan: Saka Bandaríkjamenn um að brjóta gegn vopnahléinu Íranski herinn sakar Bandaríkjaher um að hafa brotið gegn samkomulaginu um vopnahlé. Bandaríkjamenn segjast hafa skotið gegn Írönum í sjálfsvörn. Erlent 7. maí 2026 21:59
Franskur floti á leið til Persaflóa Frakkar eru að senda flugmóðurskipið Charles de Gaulle og fylgiskip þess í átt að Hormússundi. Flotanum var siglt gegnum Súesskurðinn í gær og er honum ætlað að koma að því að tryggja siglingar um sundið á nýjan leik. Forseti Frakklands segir þó að flotinn eigi alls ekki að koma að átökum á svæðinu. Erlent 7. maí 2026 09:14
Segja Írani hafa valdið meiri skaða en menn hafa viðurkennt Íranir hafa valdið mun meiri skaða á innviðum Bandaríkjahers í Mið-Austurlöndum en Bandaríkjastjórn hefur viljað kannast við. Þetta eru niðurstöður Washington Post, sem byggja á rannsóknum á gervihnattamyndum. Erlent 7. maí 2026 07:30
Segja Bandaríkin enn með óásættanlegar kröfur Íranskir fjölmiðlar segja það ekki rétt að viðræður um mögulegan frið við Bandaríkjamenn hafi tekið stakkaskiptum og að samkomulag gæti brátt legið fyrir. Íranir hafi enn ekki sent svar við nýjustu samningsdrögum Bandaríkjamanna og það þau drög innihaldi einhverjar „óásættanlegar kröfur“. Erlent 6. maí 2026 14:02
„Frelsisaðgerð“ Trumps mun ekki skila árangri við að opna Hormússundið Trump hefur reynt loftárásir, hafnbann og nú síðast óljósar fylgdaraðgerðir til að opna fyrir skipaumferð – en Íran ræður eftir sem áður enn ferðinni á Hormuz-sundi. Aðeins diplómatískar leiðir geta leitt til raunverulegrar lausnar á þessari krísu. Umræðan 6. maí 2026 12:44
Telja samkomulag líklegt á næstu dögum Utanríkisráðherra Íran segir að ríkisstjórn landsins muni eingöngu samþykkja „sanngjarnt og víðtækt“ friðarsamkomulag við Bandaríkin. Íranir muni standa vörð um lögmætan rétt sinn og hagsmuni. Starfsmenn Hvíta hússins segja samkomulag við Írani aldrei hafa verið líklegra en nú. Erlent 6. maí 2026 09:47
Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefur gert hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi. Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir að fyrstu sókn Bandaríkjanna og Ísraels í Íran, Operation Epic Fury, sé lokið og að markmiðum hennar hafi verið náð. Erlent 5. maí 2026 23:36