Erlent

Á­rásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur

Samúel Karl Ólason skrifar
Íranir eru sagðir hafa sent óvopnaða menn á smáum ómerktum bátum til að finna skotmörk á Hormússundi. Bandaríkjamenn sökktu einum slíkum báti í síðustu viku.
Íranir eru sagðir hafa sent óvopnaða menn á smáum ómerktum bátum til að finna skotmörk á Hormússundi. Bandaríkjamenn sökktu einum slíkum báti í síðustu viku. AP/Razieh Poudat, ISNA

Íranir hafa fjölgað árásum sínum á olíuflutningaskip á Hormússundi og gera árásir á stærra svæði. Þetta hefur skilað nokkrum árangri í vel heppnuðum árásum en markmið Írana er að halda eldsneytisverði háu og reyna þannig að hafa áhrif á þingkosningar í Bandaríkjunum í næsta mánuði.

Undanfarna daga hafa þó nokkur skip orðið fyrir eldflaugum, tundurduflum eða drónum á eða við Hormússund, samkvæmt UKMTO, sem er upplýsingaveita og eftirlitsstofnun á vegum breska sjóhersins. Eitt skipanna sökk undan ströndum Óman.

Þá segja Íranir að annað skip, flutningsakip með um 2.500 gáma, hafi sokkið eftir að því hafi verið siglt á tundurdufl á Hormússundi. Þetta hefur ekki verið staðfest enn.

Nýjasta tilkynningin, þegar þetta er skrifað, barst UKMTO í morgun. Þá mun skip hafa orðið fyrir árás en skemmst lítið og var hægt að sigla því áfram.

Á undanförnum vikum hefur tekist að auka flæði olíu og olíuafurða um Hormússund talsvert. Því hefur þó fylgt töluverð áhætta og hafa flutningarnir verið mun kostnaðarsamari en þeir voru fyrir stríð, þegar um fimmtungur olíu og jarðgass heimsins fór um sundið.

Bandaríkjamenn hafa verið að fylgja stórum skipum um sundið, Ómanmegin, og hefur olíu verið dælt af þeim um borð í önnur skip í kjölfarið.

CNBC segir að olíuverð hafi hækkað nú í morgun. Brent-hráolían, sem er gjarnan notuð sem heimsviðmiðið, stendur þegar þetta er skrifað í rúmum 106 dölum á tunnu.

Hækkanirnar í morgun fylgja skýrslu frá Alþjóðlegu orkumálastofnuninni um að vandræði á markaði díselolíu gætu haldið áfram vel inn á næsta ár.

Á sama tíma hafa Bandaríkjamenn haldið Íran í herkví og hefur skipum ekki verið hleypt þaðan eða þangað. Með því vilja Bandaríkjamenn þvinga klerkastjórnina í Íran til að gefa eftir í viðræðum milli ríkjanna.

Tveir íranskir embættismenn sem ku vera háttsettir sögðu í samtali við Reuters að ákveðið hefði verið að breyta um stefnu og leggja meiri áherslu á árásir á skip. Því hvernig árásirnar væru gerðar hefði verið breytt og þeim einnig fjölgað. Markmiðið væri að koma í veg fyrir að eldsneytisverð lækkaði aftur.

Þetta var staðfest af bandarískum embættismanni í varnarmálaráðuneytinu þar. Hann sagði að Bandaríkjamenn hefðu grandað flestum ratsjám byltingarvarðarins en þá hefðu Íranir farið að senda óvopnaða menn á smáum bátum út á Hormússund til að finna möguleg skotmörk fyrir dróna og eldflaugar.

Bandaríkjamenn komust á snoðir um hvað Íranir væru að gera og grönduðu einum slíkum bát í síðustu viku, eftir að hafa sagt mönnunum um borð að fara frá borði.

Nú segja áðurnefndir heimildarmenn Reuters í Íran að aftur sé verið að gefa í þegar kemur að árásum á skip á Hormússundi. Engum skipum verði siglt þar um innan skamms.

Fjölmiðlar vestanhafs hafa sagt frá því að Donald Trump hafi íhugað nýjar árásir á Íran. Embættismenn innan varnarmálaráðuneytisins eru sagðir hafa lagt fram áætlanir um slíkar árásir en Trump vill bíða þar til eftir kosningarnar í næsta mánuði.

Stríðið gegn Íran er mjög svo óvinsælt í Bandaríkjunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×