Telja Bandaríkjamenn kunna að hafa framið stríðsglæpi í Íran Kjartan Kjartansson skrifar 17. september 2026 13:24 Bihjólaökumenn aka fram hjá minnisvarða um Ali Khamenei, æðstaklerk Írans, sem féll í árásum Bandaríkjamanna og Ísraela á Íran 28. febrúar. AP/Vahid Salem Mannréttindaráð Sameinuðu þjóðanna telur grundvöll til að telja að Bandaríkjamenn hafi framið stríðsglæpi í tveimur árásum þeirra á Íran á þessu ári. Það telur írönsk stjórnvöld einnig hafa framið glæp gegn mannkyninu þegar þau börðu niður mótmæli.
Sendinefnd á vegum mannréttindaráðsins komst að þeirri niðurstöðu að Bandaríkjaher hefði gert greinarmun á borgaralegum og hernaðarlegum skotmörkum í árásum sínum á Íran. Í tveimur árásum 28. febrúar kunni Bandaríkjamenn að hafa framið stríðsglæp. Anars vegar í loftárás á stúlknaskóla í Minab þar sem íranskir fjölmiðlar segja að 168 manns hafi fallið, meirihlutinn börn. Í hinu tilfellinu sprengdi Bandaríkjaher flísasprengju yfir svæði sem sendinefndin segir að hafi greinilega verið merkt sem íþróttasvæði og íbúðabyggð í Lamerd í sunnanverðu Íran. Nefndin segir að 22 óbreyttir borgarar hafi fallið þar. Nefndin segir að skólinn í Minab hafi greinilega verið skotmark flugskeytis Bandaríkjahers. Mannfallið þar hafi því ekki verið afleiðing mistaka eða árásar á byggingar íranska byltingarvarðarins í nágrenni skólans. Bandaríkjastjórn hefur aldrei tekið opinbera ábyrgð á árásunum og hefur ekki birt niðurstöður rannsóknar varnarmálaráðuneytis hennar á þeim. Bandaríkjaher neitaði sérstaklega að hann bæri ábyrgð á árásinni á Lamerd. Kerfisbundin morð og mannréttindabrot á óbreyttum borgurum Þá sagði sendinefndin að öryggissveitir írönsku klerkastjórnarinnar hefðu myrt sláandi fjölda fólks og óbreyttir borgarar hefðu sætt grófum mannréttindabrotum og glæpum gegn mannkyninu þegar stjórnvöld börðu niður mótmæli í fyrra. Liðsmenn öryggissveita hafi meðal annars skotið úr hríðskotarifflum inn í mannfjölda, barið mótmælendur og handtekið heilbrigðisstarfsmenn. Fangar hafi verið pyntaðir og ekki fengið lögfræðiaðstoð. Þá hafi stjórnvöld notað dauðarefsingu í auknum mæli. Sjötíu manns, þar á meðal fimm konur og þrír piltar ættu enn yfir höfði sér að vera tekin af lífi. Hunsuðu nefndina Nefndin hvatti bæði Bandaríkja- og Íransstjórn til þess að láta af mannréttindabrotum og glæpum og að greiða fórnarlömbum sínum bætur. Hvorki írönsk né bandarísk stjórnvöld urðu við ósk nefndarinnar um upplýsingar í tengslum við rannsóknina.
Sameinuðu þjóðirnar Bandaríkin Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Donald Trump Hernaður Mest lesið „Ég elska Obbu“ Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Maðurinn sem lést var Íslendingur Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Flúði táragas lögreglu í Nice Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira