

Kauphöllin
Fréttir úr Kauphöllinni á Íslandi og af skráðum félögum á markaði.

Jómfrúarflug Play farið í loftið: „Nú er komið að Play“
Jómfrúarflug flugfélagsins Play er farið í loftið og er ferðinni heitið til Lundúna. Forstjóri flugfélagsins segir tilfinningaríka stund að sjá þetta raungerast.

Bandarískt fjárfestingarfélag kaupir 16,6 prósent í Icelandair
Bandaríska fjárfestingarfélagið Bain Capital hefur gert samkomulag við Icelandair Group um kaup á 16,6 prósent hlut í félaginu. Kaupin hljóma upp á rúma átta milljarða íslenskra króna.

Icelandair segist ekki eiga persónugreinanlegar upptökur úr vélum sínum
Persónuvernd hefur áminnt Icelandair fyrir að hafa tekið of langan tíma í að afgreiða beiðni einstaklinga um aðgang að öllum gögnum fyrirtækisins sem kynnu að geyma persónuupplýsingar um þá.

Play flýgur til Kanarí
Flugfélagið Play ætlar að fljúga til Gran Canaria á Spáni, betur þekktar sem Kanaríeyjar, frá 22. desember 2021 til 20. apríl 2022. Flogið verður í hverri viku á miðvikudögum.

Sjáðu listann yfir stærstu hluthafa Íslandsbanka
Íslandsbanki hefur birt lista yfir stærstu hluthafa bankans, eftir hlutafjárútboð sem lauk þann 15. júní síðastliðinn. Hlutabréf Íslandsbanka voru tekin til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland í gær.

Forsvarsmenn WOW air sækja um flugrekstrarleyfi
Forsvarsmenn WOW air hafa sótt um flugrekstrarleyfi hjá Samgöngustofu. Ögmundur Gíslason flugrekstrarfræðingur, sem vinnur fyrir Michele Ballarin, segir áætlanir sannarlega standa til þess að endurreisa flugfélagið.

Hlutafjárútboð Solid Clouds hefst í næstu viku
Hlutafjárútboð íslenska tölvuleikjafyrirtækisins Solid Clouds hefst næsta mánudag klukkan 10 og mun standa fyrir til klukkan 16 miðvikudaginn 30. júní. Arion banki sér um útboðið en félagið verður skráð á First North markaðinn.

Kjarasamningarnir sögð ein af forsendum framtíðarmöguleika Play
Þeir kjarasamningar sem stjórnendur Play hafa gert við flugmenn og áhöfn eru ein af grunnstoðum rekstraráætlunar félagsins og framtíðarmöguleika.

Forstjóri Play og stjórnarmenn til rannsóknar
Forstjóri Play og einn stjórnarmanna félagsins hafa verið til rannsóknar hjá skattayfirvöldum og þá er annar stjórnarmeðlimur til rannsóknar hjá ákæruvaldinu í tengslum við söluna á Skeljungi.

Kynntu allar upplýsingar varðandi hlutafjárútboð Play
Hlutafjárútboð Fly Play hf. fara fram í lok vikunnar. Play bauð til kynningarfundar í tengslum við útboðin í morgun þar sem farið var yfir helstu upplýsingar.

Tímamót í Kauphöllinni þegar Íslandsbanki var skráður
Bjöllunni var hringt við mikinn fögnuð í Kauphöll Íslands í morgun þegar Íslandsbanki hf. var skráður á aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hlutir upp á 35% í félaginu eru nú skráðir og geta þar með gengið kaupum og sölum.

Segir verðmætar flugrekstrarhandbækur horfnar og krefst skýrslutöku
Athafnakonan Michele Ballarin hefur óskað eftir því að teknar verði vitnaskýrslur af ellefu einstaklingum sem tengjast WOW air, vegna flugrekstrarhandbóka sem eru sagðar horfnar.

Gagnrýnir aðkomu Boga Nils að auglýsingu Kvenréttindafélagsins
Sólveig Anna Jónsdóttir gagnrýnir aðkomu Boga Nils Bogasonar að auglýsingu Kvenréttindafélags Íslands. Hún sakar hann um að hafa leitt aðför gegn kvennastétt fyrir ári síðan.

Jóhann færir sig um set og auglýst eftir nýjum fjármálastjóra
Jóhann Sigurjónsson mun láta af störfum sem fjármálastjóri fasteignafélagsins Regins næsta haust og færa sig um set innan félagsins. Samhliða breytingunum verður auglýst eftir nýjum fjármálastjóra.

Play lék listir sínar yfir Reykjavík
Fagurrauð þota nýja flugfélagsins Play flögraði nokkra hringi yfir höfuðborgarsvæðinu nú síðdegis í kynningarskyni. Jómfrúarflug félagsins til Lundúna er eftir níu daga.

Hlutafjárútboð Play hefst í næstu viku
Hlutafjárútboð Play fyrir skráningu félagsins á First North markaðinn hefst þann 24. júní klukkan 10. Útboðið mun standa yfir í rúman sólarhring en lokað verður fyrir kaup klukkan 16 föstudaginn 25. júní.

Ein af vélum Play orðin leikhæf
Búið er að mála eina af flugvélum sem prýða mun flota flugfélagsins Play með einkennislitum og merki félagsins. Í dag eru ellefu dagar í fyrsta flug félagsins þann 24. júní til Lundúna.

Icelandair Group losar sig við Iceland Travel
Icelandair Group og Nordic Visitor undirrituðu í dag samning um kaup þess síðarnefnda á 100 prósent hlut Icelandair Group í Iceland Travel.

Fella niður þrjár ferðir til Lundúna
Flugfélagið Play hefur fellt niður þrjár ferðir til Lundúna í byrjun júlímánðar vegna þess að Bretar virðast orðnir hræddir við að ferðast eftir að hafa lent óvænt í sóttkví við heimkomuna frá öðrum löndum að sögn forstjóra félagsins.

Strigaskór og þægindi einkenna búninga flugáhafna Play
Flugfélagið Play fékk hjónin Gunna Hilmarsson og Kolbrúnu Petreu Gunnarsdóttur til þess að hanna búninga flugáhafna félagsins. Gunni vann á dögunum Indriðaverðlaun fatahönnunarfélags Íslandsn fyrir framúrskrandi störf á sviði íslenskrar fatahönnunar.

Rúmast sjálfbærni innan tilgangs hlutafélaga?
Í ljósi aukinnar umræðu um sjálfbærni þá er eðlilegt að velta fyrir sér hvaða aðilar það eru sem bera mestu ábyrgðina gagnvart samfélagi og umhverfi. Við sem einstaklingar getum borið okkar ábyrgð t.d. með því að stýra okkar neyslu, kaupa minna, endurnýta og velja umhverfisvænni kosti.

Fjöldi farþega milli landa tvöfaldast milli mánaða
Fjöldi farþega í millilandaflugi hjá Icelandair í maí var rúmlega tvöfalt fleiri en í síðasta mánuði. Félagið hefur aukið flugframboð sitt að undanförnu í takt við aukna eftirspurn eftir flugi, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu sem vísar til flutningatalna sem Icelandair Group birti í Kauphöll í dag.

Nadine fer til Play
Nadine Guðrún Yaghi fréttamaður á Stöð 2, Vísi og Bylgjunni hefur ráðið sig til flugfélagsins Play sem samskiptastjóri fyrirtækisins. Hún hættir störfum á fréttastofunni í sumar.

Verkalýðshreyfingin óttast gullgrafaraæði innan ferðaþjónustunnar
Forystufólk verkalýðshreyfingarinnar er ekki sérlega spennt fyrir því að ferðaþjónustan fari aftur á fullt. Þau eru viss um að brotum á vinnumarkaði taki aftur að fjölga mjög á næstu mánuðum.

Munu hvergi hvika í baráttu gegn aðferðum Play
Drífa Snædal, forseti Alþýðusambands Íslands, kveðst hvergi munu hvika í baráttu sambandsins gegn samningum flugfélagsins Play við gula stéttarfélagið ÍFF.

Fyrsta skráning sjávarútvegsfyrirtækis í 22 ár
Tímamót urðu í Kauphöllinni í morgun þegar viðskipti hófust með bréf í Síldarvinnslunni. Þetta er fyrsta skráning sjávarútvegsfyrirtækis á markaðítuttugu og tvö ár og fyrsta skráning í Kauphöllinni fráárinu 2019.

Samherji og Kjálkanes áfram með meirihluta í Síldarvinnslunni eftir útboðið
Samherji hf. og Kjálkanes ehf. eru áfram stærstu hluthafar Síldarvinnslunnar hf. að loknu hlutafjárútboði félagsins sem lauk þann 12. maí. Samanlagt fara félögin með 51,8% hlut í Síldarvinnslunni en hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækisins voru tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag.

Áforma hlutafjárútboð og skráningu Íslandsbanka í Kauphöll
Bankasýsla ríkisins og Íslandsbanki hafa nú staðfest áform sín um að hefja hlutafjárútboð og í framhaldinu skráningu hlutabréfa Íslandsbanka á aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Boeing 737 Max eyðir minna og nær lengra en reiknað var með
Boeing 737 Max þotur Icelandair hafa reynst sparneytnari og langdrægari en upphaflegir útreikningar gerðu ráð fyrir. Þetta þýðir að tegundin nýtist til fjarlægari áfangastaða, eins og Seattle, og um leið minnkar þörfin á að kaupa langdrægari Airbus þotur.

Kaupa helmingshlut í Lemon
Hagar hf. og eigendur Djús ehf. hafa náð samkomulagi um kaup Haga á helmingshlut í Djús ehf., sem á og rekur veitingastaði undir merkjum Lemon.