Kópavogur

Kópavogur

Mannfjöldi: 40.041 (2025). Flatarmál: 110 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Í­þrótta­mann­virki til sölu fyrir at­kvæði

Kosningar eru skemmtilegasti parturinn af stjórnmálum. Þá lifnar líf og skoðanaskipti eiga sér stað um samfélagið allt. En kosningar draga líka fram það versta í stjórnmálamönnum: örvæntingafull loforð eru gefin og ráðist er í vanhugsaðar framkvæmdir í þágu þess að tryggja atkvæðin sem réttlæta tilveru stjórnmálamannsins. Það segir sig sjálft að slíkt er ekki skynsamlegt til langs tíma og ekki til þess fallið að tryggja að vel sé farið með okkar sameiginlegu sjóði.

Skoðun

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

„Snákaolía“ Mið­flokksins

Dómsmálaráðherra Viðreisnar, Þorbjörg Sigríður, sá sig knúna til að skrifa facebook færslu sérstaklega um tillögu okkar í Miðflokknum í Kópavogi, um að hækka heimgreiðslur og gera þær að raunverulegum kosti fyrir fjölskyldur. Hún uppnefnir tillöguna ,,snákaolíusölu“. Þar dró hún athyglina í burtu frá hinu raunverulega vandamáli sem er það tómarúm sem myndast á milli fæðingarorlofs og leikskólavistunar barna.

Skoðun
Fréttamynd

Kópa­vogur í sókn: Að þora meðan aðrir sitja hjá

Þann 16. maí kjósum við ekki aðeins um fulltrúa til að stýra Kópavogsbæ næstu ár, heldur um stefnu, hugarfar og framtíðarsýn. Við kjósum um hvort við ætlum að sitja hjá eða taka skref fram á við. Kjörorð Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi eru skýr: Kópavogur í sókn. En hvað þýðir það í raun?

Skoðun
Fréttamynd

Ör­væntir ekki yfir fregnum af falli meiri­hlutans

Bæjarstjóri Kópavogs segist ekki örvænta þó ný könnun Maskínu sem gerð var fyrir DV sýni að meirihluti Sjálfstæðismanna og Framsóknarmanna sé fallinn. Hún segist trúa því að Kópavogsbúar vilji áfram sömu forystu, enda mælist flokkurinn mesta fylgið í bænum. Oddvitar flokkanna sem bæta mestu við sig í Kópavogi segjast sáttir með sitt en útiloka ekkert þegar kemur að meirihlutasamstarfi.

Innlent
Fréttamynd

Deilu­efni jafnað við jörðu í Kópa­vogi

Niður­rifi bygginga við Fann­borg er lokið og þar með eru gamla félags­heimilið og gömlu bæjar­skrif­stofurnar í Kópa­vogi horfin af yfir­borði jarðar og lítið stendur eftir af áralöngu deilu­efni annað en urð og grjót.

Innlent
Fréttamynd

Sviptur réttindunum á staðnum

Lögreglan svipti ökumann í Breiðholti ökuréttindum sínum á staðnum eftir að hann var kærður fyrir að aka á ríflega tvöföldum hámarkshraða. Á hóteli í miðborg Reykjavíkur voru aðrir kærðir fyrir fjársvik, þjófnað og fyrir að gefa lögreglunni rangar upplýsingar.

Innlent
Fréttamynd

Grinda­vík og Hvera­gerði talin í mestri hættu vegna eld­gosa

Tvö bæjarfélög suðvestanlands, Grindavík og Hveragerði, eru á svæðum á efsta hættustigi í nýju áhættumati Veðurstofu Íslands vegna eldfjallavár á Reykjanesskaga. Hluti Hafnarfjarðar er mjög nærri svæðum þar sem mjög mikil hætta er á hraunflæði. Líkur á gosupptökum eða hraunflæði eru annars metnar litlar á meginhluta höfuðborgarsvæðisins. Allar jarðvarmavirkjanir á Reykjanesfjallgarði; virkjanirnar á Reykjanesi, í Svartsengi, á Hellisheiði og á Nesjavöllum, eru staðsettar á svæðum sem flokkast á efsta hættustigi.

Innlent
Fréttamynd

Eldur olli miklum skemmdum í kjallara

Allt tiltækt slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út vegna tilkynningar um reyk í fjölbýlishúsi í Kópavogi við Fossvog. Upp kom eldur í kjallaraíbúð, Furugrund 42 en miklar skemmdir urðu á íbúðinni vegna eldsins.

Innlent
Fréttamynd

Inn­brot í kirkju og slags­mál í strætis­vagni

Brotist var inn í kirkju í Múlunum í Reykjavík að sögn lögreglu og gerendur farnir þegar hún kom á staðinn. Ekki liggur fyrir að svo stöddu hvort einhverju hafi verið stolið. Einnig var óskað eftir aðstoð vegna slagsmála í strætisvagni í Árbæ í Reykjavík.

Innlent
Fréttamynd

Kópavogsdalur er okkar Central Park

Skipulagsmál eru einhver mikilvægustu verkefni sem sveitarfélög hafa með höndum. Það er á forræði skipulagsyfirvalda að ráðstafa takmörkuðum gæðum þannig að lífsgæði verði betri. Þar skiptir öllu að fagleg og vönduð vinnubrögð séu höfð að leiðarljósi.

Skoðun
Fréttamynd

Kominn tími til í Kópa­vogi

„Ég þarf bara einhvern þangað inn sem hlustar á bæjarbúa og gengur í verkin.“ Þetta heyri ég aftur og aftur í samtölum við Kópavogsbúa. Skilaboðin eru skýr: fólk vill bæjarfulltrúa sem hlusta - og ganga í verkin. Það er kjarninn í því sem Viðreisn í Kópavogi vill gera. Við viljum betra bæjarfélag þar sem almannahagsmunir ráða ferðinni, ekki sérhagsmunir.

Skoðun
Fréttamynd

Ein­vígi aldarinnar endur­tekið

Andri Steinn Hilmarsson, Sjálfstæðismaður og bæjarfulltrúi í Kópavogi, og Leifur Þorsteinsson, annar stjórnenda hlaðvarpsins Chess After Dark, mætast í hraðskákeinvígi í kvöld á Arena. Tefldar verða tíu hraðskákir og munu tveir skákmeistarar lýsa einvíginu.

Lífið