
Sagan skrifuð þegar Denver náði aftur forystunni
Tveir leikmenn Denver Nuggets voru með þrefalda tvennu þegar liðið vann Miami Heat, 94-109, í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Denver leiðir einvígið, 2-1.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Tveir leikmenn Denver Nuggets voru með þrefalda tvennu þegar liðið vann Miami Heat, 94-109, í þriðja leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt. Denver leiðir einvígið, 2-1.
Bandaríska tónlistarkonan Taylor Swift er nú orðuð við leikmann körfuboltaliðsins Los Angeles Lakers.
Götuboltamót X977 og KKÍ fer fram á laugardaginn 10. júní á Klambratúni, heimili götuboltans á Íslandi. Skipulagið er einfalt, fjórir leikmenn í liði og þrír inná í einu, spilað í riðlum og tvö efstu liðin fara áfram í útsláttarkeppni.
Körfuknattleiksdeild Þórs Þorlákshafnar hefur samið við Ragnar Örn Bragason um að leika með liðinu næstu tvö tímabil í Subway-deild karla í körfubolta. Þetta er í þriðja sinn sem Ragnar gengur í raðir Þórs.
Kyrie Irving hefur haft samband við fyrrverandi samherja sinn LeBron James í von um að sannfæra hann um að spila með sér í Dallas á næstu leiktíð í NBA-deildinni í körfubolta.
Michael Malone, þjálfari Denver Nuggets, lét sína menn heyra það eftir að þeir töpuðu fyrir Miami Heat, 108-111, í öðrum leik liðanna í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta.
Miami Heat jafnaði metin í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar í körfubolta með þriggja stiga sigri á Denver Nuggets í nótt, 108-111.
Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Elvar Már Friðriksson leikmaður Rytas í Litháen, gaf fimm stoðsendingar þegar að liðið bar sigur úr býtum gegn Zalgiris Kaunas í úrslitaeinvígi litháísku deildarinnar í dag.
Pétur Ingvarsson, nýráðinn þjálfari Keflavíkur, er strax farinn að taka til hendinni í leikmannamálum Keflavíkur. Samkvæmt fréttatilkynningu Keflavíkur við ráðningu þjálfarans er von á fréttum af leikmannamálum félagsins á næstu dögum.
Pétur Ingvarsson, nýráðin þjálfari Keflavíkur, segir að markmið liðsins í vetur verður að spila skemmtilegan körfubolta ásamt því að berjast um alla þá titla sem í boði eru.
Martin Hermannsson og liðsfélagar hans í Valcenia sáu aldrei til sólar í 25 stiga tapi gegn Barcelona, 64-87.
Ægir Þór Steinarsson og félagar í HLA Alicante eru úr leik í úrslitakeppni Leb Oro deildarinnar á Spáni, eftir 60-63 tap gegn Zunder Palencia í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum.
Tindastóll og Pavel Ermolinskij skrifuðu rétt í þessu undir samkomulag um að þjálfarinn verði áfram í herbúðum félagsins næstu tvö ár.
Pablo Bertone, leikmaður Vals, fór inn í herbergi dómara eftir tapið gegn Tindastóli í oddaleiknum um Íslandsmeistaratitilinn í körfubolta fyrir tveimur vikum, og hefur nú verið úrskurðaður í fimm leikja bann.
Nikola Jokic fór á kostum þegar Denver Nuggets vann í nótt fyrsta leikinn í úrslitaeinvíginu á móti um meistaratitilinn í NBA deildinni í körfubolta.
Úrslitaeinvígi Denver Nuggets og Miami Heat í NBA-deildinni fer af stað í kvöld. Fyrsti leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 2 og hefst upphitun á miðnætti.
Pétur Ingvarsson hefur verið ráðinn nýr þjálfari Keflavíkur og mun því stýra liðinu í Subway-deild karla í körfubolta á næstu leiktíð.
Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Rytas biðu lægri hlut gegn Zalgiris Kaunas í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi þeirra um litháíska meistaratitilinn.
Leikmaður New York Knicks opnaði óvæntar dyr á samfélagsmiðlum í gær og fékk vægast sagt hörð viðbrögð frá NBA-heiminum.
Kvennalið Snæfells verður á ný með í efstu deild kvenna í körfubolta, Subway-deildinni, á næstu leiktíð eftir að hafa þegið boð þess efnis.
Lokaúrslit NBA deildarinnar í körfubolta eru fram undan en þau ættu að verða þægileg fyrir annað liðið samkvæmt spám.
Hinn 33 ára gamli Jimmy Butler verður til umræðu í Lögmálum leiksins á Stöð 2 Sport 2 í kvöld, eftir að hafa leitt Miami Heat inn í úrslitaeinvígið um NBA-meistaratitilinn í körfubolta.
Það kemur í hlut nýs þjálfara að freista þess að stýra KR aftur upp í efstu deild karla í körfubolta því Helgi Már Magnússon er hættur störfum.
Miami Heat er komið í úrslitaeinvígi NBA deildarinnar í körfubolta eftir öruggan nítján stiga sigur á Boston Celtics, 103-84, í oddaleik í Boston í nótt.
Nick Nurse verður næsti þjálfari Philadelphia 76ers í NBA deildinni í körfubolta en hann fær það verkefni að reyna að vinna fyrsta titil félagsins í meira en fjörutíu ár.
Íslandsmeistarar Tindastóls vilja ólmir fá Kristófer Acox, miðherja Vals, í sínar raðir. Formaður körfuknattleiksdeildar Vals segir enga breytingu á stöðu Kristófers hjá félaginu.
Miami Heat mætir Boston Celtics – í Boston – í oddaleik um sæti í úrslitum NBA-deildarinnar í körfubolta. NBA spekingur vestanhafs hefur greint frá því að lið Miami hafi nú þegar bókað flugið til Denver eftir að leik kvöldsins lýkur.
Boston Celtics vann í nótt frækinn sigur á Miami Heat í sjötta leik liðanna í úrslitum austurdeildar NBA-deildarinnar. Miami komst fljótt í stöðuna 3-0 í einvígi liðanna en hefur nú glutrað niður þeirri forystu og þarf nú að fara til Boston í leik sjö sem mun skera úr um hvort liðið fer í úrslitaeinvígi NBA-deildarinnar.
Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari Vals í Subway-deild karla í körfubolta, mun stýra liðinu áfram á komandi tímabili.
Máté Dalmay skrifaði undir fimm ára samning við Hauka á dögunum. Hann hlakkar til að byggja liðið upp til framtíðar og ætlar sér stóra hluti með það þótt hann sé meðvitaður um að ýmis ljón gætu verið á veginum.