
Haukur Helgi: „Skandall að þetta sé staðan“
Haukur Helgi Pálsson mun að öllum líkindum snúa aftur í landsliðið í kvöld þegar Ísland tekur á móti Ítalíu í undankeppni fyrir Heimsmeistaramótið í körfubolta 2023.
Fréttir af leikmönnum og liðum í körfubolta, bæði á Íslandi og erlendis.
Haukur Helgi Pálsson mun að öllum líkindum snúa aftur í landsliðið í kvöld þegar Ísland tekur á móti Ítalíu í undankeppni fyrir Heimsmeistaramótið í körfubolta 2023.
Steve Nash segir að Kyrie Irving sé spenntur fyrir því að fá að spila í New York City en útlit er nú fyrir það að hann fái fljótlega grænt ljós.
Njarðvík vann tíu stiga sigur á nágrönnum sínum í Keflavík 75-65. Rúnar Ingi Erlingsson, þjálfari Njarðvíkur, var hæstánægður með sigurinn.
Njarðvík vann Suðurnesjaslaginn gegn Keflavík í Ljónagryfjunni og hefndi fyrir tapið í Blue-höllinni í byrjun árs.Njarðvík endaði fyrri hálfleik á miklu flugi og leit aldrei um öxl eftir það. Njarðvík vann að lokum tíu stiga sigur 75-65.
Valur vann afar sannfærandi 14 stiga sigur á Fjölni á Hlíðarenda í kvöld, 87-73.
Leikur Breiðabliks og Hauka var spennandi framan af fyrsta fjórðung þegar liðin mættust í Subway deild kvenna í körfuknattleik fyrr í kvöld í Smáranum í Kópavogi. Haukar náðu þó tökum á leiknum og sigldu svo öruggum 39 stiga sigri heim í síðari hálfleik 57-96.
Það var erfiður dagur á skrifstofunni hjá Breiðablik í dag og var Ívar Ásgrímsson þjálfari liðsins ósáttur við ýmislegt í leik sinna kvenna. Leikurinn endaði 57-96 fyrir Hauka og var sigurinn aldrei í hættu í raun og veru.
Ágúst S. Björgvinsson er hættur störfum fyrir Körfuknattleikssamband Íslands að eigin ósk. Þetta kemur fram í yfirlýsingu hjá Körfuknattleikssambandi Íslands. Ágúst hafði sinnt fjölbreyttum verkefnum hjá sambandinu undanfarin sex ár.
Klara Lundquist er ein efnilegasta körfuboltakona Svía og var komin á samning hjá Washington Mystics í WNBA-deildinni. Það verður þó ekkert af því að hún spili þar í ár.
Caitlin Clark er að eiga magnað tímabil í bandaríska háskólaboltanum og frammistaða hennar er svo eftirtektarverð að NBA-stjörnurnar eru farnir að taka eftir henni.
Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna ásakana Aþenu um þöggun og aðgerðarleysi vegna kynbundins ofbeldis innan körfuboltahreyfingarinnar á Íslandi.
Jón Arnór Stefánsson hraunaði gjörsamlega yfir orðlausa liðsfélaga sína í mikilli eldræðu sem hann flutti í búningsklefanum eftir að hafa tapað með Val gegn sínu gamla liði KR á síðustu leiktíð.
Haukur Helgi Pálsson leikur vonandi sinn fyrsta landsleik í 1099 daga þegar Ísland spilar við Ítali á Ásvöllum.
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta spilar á morgun sinn fyrsta heimaleik í 732 daga þegar Ítalir koma í heimsókn á Ásvelli. Í íslenska liðinu verður Martin Hermannsson sem spilaði síðast á Íslandi í ágústmánuði árið 2019.
Eigandi Dallas Mavericks í NBA deildinni í körfubolta er að sjálfsögðu ánægður með að vera með Slóvenann frábæra Luka Doncic í sínu liði en segir að það hafi orðið breyting á stjörnu liðsins um mitt tímabil.
„Ég veit ekki hvort nokkur sé sáttur þegar maður er rekinn. Þetta kom mér á óvart,“ segir körfuboltaþjálfarinn Daníel Guðni Guðmundsson sem fékk að vita það í gærkvöld að honum hefði verið sagt upp starfi sem þjálfari karlaliðs Grindavíkur.
Juwan Howard, þjálfari körfuboltaliðs Michigan háskólans, hefur verið dæmdur í bann út tímabilið fyrir að kýla aðstoðarþjálfara Wisconsin í leik liðanna um helgina.
Slóvenski bakvörðurinn Goran Dragic hafði úr mörgum liðum að velja í NBA-deildinni eftir að hann fékk sig lausan frá San Antonio Spurs. Nú hefur hann valið sér lið.
Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur vinnur nú að því að ákveða hver stýra muni karlaliði félagsins út leiktíðina eftir að hafa ákveðið að láta Daníel Guðna Guðmundsson taka pokann sinn.
Í tilefni af 75 ára afmæli NBA deildarinnar þá valdi deildin 75 bestu leikmenn allra tíma. Þeim var ekki raðað í röð en ESPN bætti úr því í tilefni af Stjörnuleikshelginni.
Hinn stórskemmtilegi liður „Nei eða Já“ hélt áfram göngu sinni í síðasti þætti af Lögmál leiksins. Stærsta spurningin snerist að þessu sinni um LeBron James og son hans, Bronny James.
Það er um nóg að ræða varðandi NBA-deildina í körfubolta í Lögmálum leiksins í kvöld en þátturinn fer í loftið á Stöð 2 Sport 2 klukkan 21:45. Meðal annars verður rætt um áhrif nýlegra meiðsla lykilmanna í LA Lakers og Phoenix Suns.
Chris Paul tók pínulítinn þátt í Stjörnuleik NBA deildarinnar í nótt en eftir hann bárust nánari fréttir af meiðslum kappans.
Mikil læti brutust út í bandaríska háskólakörfuboltanum eftir leik í gær, leik sem vannst þó örugglega með fjórtán stiga mun. Ástæðan var að gömul stjarna úr NBA-boltanum var ekki par sáttur með leikhlé þjálfara hins liðsins undir blálok leiksins.
Craig Pedersen hefur valið fimmtán manna landsliðshóp fyrir tvo leiki karlalandsliðsins í körfubolta í undankeppni HM. Annar leikjanna er fyrstu heimaleikur íslenska liðsins í langan tíma.
Strákarnir sem eru fæddir í Akron voru stærstu stjörnurnar í NBA-stjörnuleiknum í Cleveland í nótt. Stephen Curry setti nýtt met í þriggja stiga skotum og LeBron James tryggði liði LeBrons sigurinn með því að skora sigurkörfuna í lokin.
Njarðvík vann góðan sigur á Haukum í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.
Fjölnir átti ekki í teljandi vandræðum með Keflavík þegar liðin mættust í Grafarvogi í Subway deildinni í körfubolta í kvöld.
Elvar Már Friðriksson og félagar hans í Antwerp Giants unnu góðan tólf stiga sigur er liðið tók á móti Limburg í belgísku deildinni í körfubolta í dag. Lokatölur urðu 94-82, en Elvar og félagar höfðu tapað seinustu tveimur deildarleikjum sínum.
Obi Toppin, leikmaður New York Knicks, bar sigur úr býtum í troðslukeppni NBA-deildarinnar í körfubolta í nótt eftir einvígi gegn Juan Toscano-Anderson og Karl-Anthony Towns er fyrsti stóri maðurinn til að sigra þriggja stiga keppnina síðan 2012.