
„Ömurlegt að fá svona kvikindi inn í sín híbýli“
Einhver gæti kallað það glæp gegn mannkyni en þjófahyski gerði sér lítið fyrir og braust inn í geymslu Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara og stálu myndavélum hans eins og þær lögðu sig.
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.
Einhver gæti kallað það glæp gegn mannkyni en þjófahyski gerði sér lítið fyrir og braust inn í geymslu Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara og stálu myndavélum hans eins og þær lögðu sig.
Nokkuð rólegt virðist hafa verið hjá lögreglu í gærkvöldi og í nótt en þó var nokkuð mikið um að fólk dytti af rafskútum og slasaðist.
Þrettán ára gamall ökumaður var stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði laust eftir klukkan fjögur í nótt. Lögregla segir óalgengt að svo ungir ökumenn séu stöðvaðir af lögreglu en Barnavernd var gert viðvart um málið og það leyst með aðkomu foreldra.
Laust fyrir klukkan fjögur í nótt var ökumaður stöðvaður af lögreglu í Hafnarfirði. Sá reyndist aldrei hafa öðlast ökuréttindi enda aðeins þrettán ára gamall.
Í nótt barst lögreglu tilkynning um bíl sem reynt var ítrekað að aka á bíl þess sem tilkynnti. Bílinn var búinn ólöglegum forgangsljósum.
Fjórir einstaklingar voru í kvöld úrskurðaðir í gæsluvarðhald í Héraðsdómi Reykjavíkur til 17. ágúst í þágu rannsóknar lögreglu á innflutningi á miklu magni af fíkniefnum.
Þrír voru fluttir slasaðir frá gosstöðvunum í Meradölum í nótt en Lögreglan á Suðurnesjum áætlar að þar hafi verið á bilinu sjötíu til áttatíu manns á fjórða tímanum.
Karlmaður á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna gæsluvarðhald að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegum kynferðis- og ofbeldisbrotum.
Lögreglustjórinn á Suðurnesjum hefur ákært fimm pólska karlmenn fyrir brot gegn lögum um ávana- og fíkniefni, með því að hafa flutt inn mikið magn ópíóíðalyfsins Oxycontin. Mennirnir voru teknir á þriggja vikna tímabili með efni í fórum sér en þeir eru allir ákærðir hver í sínu lagi og því er ekki litið á brot þeirra sem samverknað.
Verslunarmannahelgin var með rólegra móti þetta árið þó hátíðarhöld hafi verið víða á landinu og mikil stemning eftir faraldur. Færri líkamsárásir komu á borð lögreglu en oft áður en tilkynnt hefur verið um tvö kynferðisbrot í Vestmannaeyjum.
Fulltrúar lögreglunnar á Suðurnesjum könnuðu aðstæður við Fagradalsfjall í kvöld eftir að bera fór þar á reyk. Sáu þeir ekkert athugavert á svæðinu að sögn náttúruvársérfræðings sem segir engin merki um að kvika sé að koma upp á yfirborðið.
Átta líkamsárásir og tvö kynferðisbrotamál hafa verið skráð hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum í tengslum við nýafstaðna Þjóðhátíð. Heildarmálafjöldi frá fimmtudegi til mánudags er mjög áþekkur því sem var í kringum Þjóðhátíð á árunum 2018 og 2019 en tilkynnt hefur verið um ívið færri líkamsárásir og ofbeldisbrot. Þetta sýna bráðabirgðatölur lögreglunnar.
Tilkynnt var um nítján líkamsárásir á höfuðborgarsvæðinu um helgina, þar af tvær alvarlegar árásir. Þá var tilkynnt um tíu innbrot, fimm þeirra í bifreiðar og geymslur en eitt í íbúðarhúsnæði.
Ofbeldisbrot um verslunarmannahelgina virðast við fyrstu sýn álíka mörg og fyrir faraldur að sögn verkefnastjóra aðgerða gegn ofbeldi hjá ríkislögreglustjóra. Einhver kynferðisbrot hafi komið á borð lögreglu en hafa þurfi í huga að þau séu yfirleitt tilkynnt seinna. Þá sé sumarið ekki búið og stórir viðburðir fram undan.
Alls barst lögreglunni á Suðurlandi ein tilkynning um kynferðisbrot um helgina. Einnig barst tilkynning um mögulega byrlun. Alls voru 360 mál og verkefni skráð hjá embættinu yfir helgina.
Þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni sem var sendur í leyfi vegna gruns um kynferðisbrot sneri aftur til starfa í dag þrátt fyrir að málið sé enn til rannsóknar hjá lögreglu. Að sögn Landhelgisgæslunnar er mannekla ástæðan fyrir endurkomu mannsins.
Landsmenn skemmtu sér nokkuð vel um verslunarmannahelgina en að sögn lögreglu var helgin betri en menn þorðu að vona eftir faraldurinn. Á Akureyri og í Vestmannaeyjum var lítið um alvarleg brot en þó á eftir að gera helgina frekar upp.
Grímur Jón Sigurðsson, tökumaður Ríkisútvarpsins, lenti í heldur leiðinlegu atviki við tökur fyrir fréttatíma RÚV á aðfaranótt sunnudags á Þjóðhátíð. Ungir menn sem höfðu verið að trufla tökur hans og Hólmfríðar Dagnýjar Friðjónsdóttur fréttamanns, skvettu drykk yfir Grím og myndavél hans og slógu svo til hans skömmu síðar. Málið er nú í höndum lögreglu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra beitti piparúða til að stöðva slagsmál í miðbæ Akureyrar um fimmleytið í nótt. Enginn var handtekinn en lögregla hlúði að þeim sem urðu fyrir piparúðanum.
Maður var handtekinn klukkan hálf sex í morgun eftir að lögreglu barst tilkynning um að hann væri vopnaður skammbyssu við Smáralind í Kópavogi. Í ljós kom að um leikfangabyssu væri að ræða. Maðurinn reyndist aðeins sautján ára gamall og var foreldrum og barnaverndarnefnd gert viðvart.
Nokkur erill var hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra í gærkvöldi og nótt, eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá embættinu.
Karlmaður var handtekinn fyrir vopnað rán í Hlíðunum í nótt en sá ógnaði konu með hnífi og rændi af henni síma. Maðurinn var vistaður í fangageymslu og málið er í rannsókn.
Ekkert ofbeldisbrot rataði inn á borð lögreglunnar í Vestmannaeyjum í gærkvöldi og nótt. Lögregla segir þjóðhátíðarhöld hafa farið vel fram í nótt og fólk almennt skemmt sér fallega. Á Akureyri var nóttin rólegri en oft áður en mikill erill var hjá lögreglunni í Reykjavík.
Lögreglan hafði afskipti af „afar reiðum“ manni sem lét ófriðlega á bílaleigu Brimborgar á Akureyri í gær. Drykklanga stund tók að róa manninn niður en að lokum var hann tekinn fastur og fluttur á brott.
Mikið var um ölvun og óspektir á höfuðborgarsvæðinu í nótt og sjö gistu fangageymslur, þar á meðal kona sem hafði ítrekað reynt að sparka og bíta í lögreglumenn.
Einn var handtekinn á hinu árlega húkkaraballi í Vestmannaeyjum í gær. Lögregla hafði ætlað að hafa af honum afskipti en hann veittist að lögreglumönnunum og var handtekinn og vistaður í fangageymslu í kjölfarið.
Hatíðarhöld fara fram víða um land um helgina með tilheyrandi umferðarþunga. Lögregla á von á að umferðin fari að þyngjast eftir hádegi og verði hvað þyngst um Suðurlandsveg á leið austur.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu verður með hefðbundið eftirlit um Verslunarmannahelgina. Hún biður íbúa á svæðinu að hafa augun opin með grunsamlegum mannaferðum en innbrotsþjófar herji gjarnan á yfirgefin heimili á þessari helgi.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu mun fara fram á áframhaldandi gæsluvarðhald í þágu almannahagsmuna yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um að hafa orðið Gylfa Bergmann Heimissyni að bana í Barðavogi 4. júní síðastliðinn. Gæsluvarðhald yfir honum rennur út á morgun.
Sérsveit ríkislögreglustjóra stöðvaði för strætisvagns við Háskóla Íslands í dag. Fólk sem grunað er um líkamsárás var handtekið í vagninum.