

Lögreglumál
Fréttir af verkefnum lögreglunnar á Íslandi.

Tókst að bjarga um helmingi þeirra hvala sem hægt var að bjarga
Staðan nokkuð endanleg fyrir þá sem eftir eru þegar fjarar aftur út í dag.

Allir komi heilir heim
Þorsteinn Matthías Kristinsson, varðstjóri á Suðurlandi, verður á vaktinni seinni hluta verslunarmannahelgarinnar. Hann segir slys og líkamstjón í umferðinni því miður daglegt brauð. Lögreglumenn standi þétt saman til að takast á við

Kýldi lögreglumann í andlitið
Talsverður erill var í gærkvöldi og nótt og komu alls 91 mál inn á borð lögreglu.

Óska eftir vitnum að meintri árás við göngustíg á Selfossi
Karlmaður talinn hafa veist að konu.

Hjólreiðamaður kom stökkvandi inn á gangbraut fyrir bíl í Kópavogi
Myndband náðist af þessu atviki.

Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás á skemmtistað í Kópavogi
Einn var handtekinn vegna líkamsárásar á skemmtistað í Kópavogi um klukkan hálf eitt í gærkvöldi.

Pilturinn sem leitað var að fundinn heill á húfi
Lögregla lýsti eftir piltinum í gær.

Lögreglan leitar að Julian Carli
Hafi einhver upplýsingar um ferðir hans er viðkomandi bent á að hringja í síma 444-2000 eða í 112.

Festu bílana úti í á og þurftu að flýja upp á þak
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna bíla sem voru fastir í á í Flæðum, sunnan við Drekagil.

Grunaður um að hafa rænt verðmætu úri vopnaður eftirlíkingu af skammbyssu
Maðurinn sem handtekinn var í umfangsmiklum aðgerðum lögreglu og sérsveitar í austurborginni síðastliðinn fimmtudag er grunaður um að hafa rænt verðmætu Breitling-úri af manni sem hugðist selja úrið. Hinn grunaði var vopnaður svartri Glock-skammbyssu sem reyndist vera eftirlíking.

Hlupu á brott með stolnar vörur
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í gærkvöldi tvo menn sem grunaðir eru um að hafa stolið matvöru úr verslun í Fossvogi.

Farbann yfir grunuðum Oxycontin-smyglara framlengt
Rannsókn ekki lokið.

Fjórir fíkniefnahundar á þjóðhátíð
Lögreglufulltrúi og yfirlögregluþjónn í Vestmannaeyjum og á Suðurlandi segja að löggæsla verði mikil um helgina.

Gekk um miðborg Reykjavíkur sveiflandi hnífi
Lögreglumenn fóru á vettvang.

Hundur beit póstburðarmann í Eyjum
Hundur glefsaði í hönd póstburðarmanns í Vestmannaeyjum í síðustu viku og þurfti maðurinn að leita sér læknisaðstoðar í kjölfarið.

Í miklu uppnámi eftir bílveltu í Heiðmörk
Bíll valt í Heiðmörk á sjötta tímanum í gær.

Réðust á mann sem beið eftir strætó
Lögreglu á höfuðborgarsvæðinu var um ellefuleytið í gærkvöldi tilkynnt um líkamsárás í Grafarvogi.

22 ára íslensk kona grunuð um smygl á hátt í kílói af MDMA-dufti
22 ára íslensk kona var úrskurðuð í gæsluvarðhald um miðjan júlí grunuð um að hafa reynt að smygla hátt í kílói af MDMA í duftformi til landsins. Það sem af er ári hefur lögreglan á Suðurnesjum lagt hald á mun meira magn fíkniefna en allt árið í fyrra.

Reyndi að stinga lögreglu af á vespu
Í dagbók lögreglu segir að vespan hafi verið óskráð og ökumaðurinn réttindalaus

Flugsamfélagið slegið eftir banaslysið á Haukadalsflugvelli í gær
Áfallateymi Rauða krossins lauk störfum sínum á Haukadalsflugvelli um klukkan hálf tíu í gærkvöldi eftir að banaslys varð þar í gær. Flugsamfélagið er slegið yfir þeim alvarlegu flugslysum sem hafa verið á landinu í sumar að sögn stjórnarmanns Flugmálafélagsins. Tilviljun hafi ráðið því að tvö flugslys hafi orðið á Haukadalsvelli á tveimur dögum. Rannsókn á vettvangi lauk í gær en vélin var heimasmíðuð. Berghildur Erla segir frá.

Kýldi lögreglumann í andlitið við Egilshöll
Alls voru 74 mál skráð hjá lögreglu frá klukkan 17:00-05:00 í nótt og alls fimm aðilar vistaðir í fangageymslu eftir nóttina.

Erlendur ferðamaður segir hátt í átta menn hafa ráðist á sig á Laugavegi
Mikið var um slagsmál og líkamsárásir í miðbænum í nótt.

Vopnað rán í Reykjavík: Einn í gæsluvarðhaldi eftir umfangsmiklar aðgerðir lögreglu og sérsveitar
Karlmaður á þrítugsaldri var í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í gæsluvarðhald til 23. ágúst.

Óku á 130 kílómetra hraða með barn sem var ekki í bílbelti
Lögreglan á Suðurlandi stöðvaði í gærkvöldi erlendan ferðamann á Mýrdalssandi sem ók á hátt í 130 kílómetra hraða.

Handtóku aðdáanda A$AP Rocky í sænska sendiráðinu fyrir mótmæli, eignaspjöll og hótanir
Rebecca Kanter, sem var handtekin í sænska sendiráðinu, er alls ekki sú eina sem hefur mótmælt því sjálfur Bandaríkjaforseti hefur undanfarna daga reynt að fá A$AP Rocky lausan úr haldi.

Ók með ferðamenn um Suðurland án réttinda
Lögregla á Suðurlandi stöðvaði í gær ökumann 50 sæta rútu, sem reyndist aka með útrunnin ökuréttindi.

Flugvél hvolfdi við lendingu í Haukadal
Flugmaðurinn var einn í vélinni en varð ekki meint af.

Alvarlega slasaður eftir slys á torfæruhjóli
Ökumaður torfæruhjóls slasaðist alvarlega á fæti við Landeyjar í gær.

Hrundi niður stiga á skemmtistað
Ellefu einstaklingar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna margvíslegra lögbrota, en lögreglan segir að alls hafi 66 mál ratað inn á hennar borð frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan 5 í morgun.

Rannsakar ekki hvarf Mateusz
Rannsóknarlögreglan á Suðurnesjum rannsakar ekki hvarf Mateusz Tynski sem sást síðast í febrúar.